‏ 1 Chronicles 1

1Adam, Set, Enos. 2Kenan, Mahalalel, Jared. 3Henok, Methúsala, Lamek. 4Nói, Sem, Kam og Jafet. 5Synir Jafets voru: Gómer, Magóg, Madaí, Javan, Túbal, Mesek og Tíras. 6Synir Gómers: Askenas, Rífat og Tógarma. 7Synir Javans: Elísa, Tarsis, Kittar og Ródanítar. 8Synir Kams: Kús, Mísraím, Pút og Kanaan. 9Synir Kúss: Seba, Havíla, Sabta, Raema og Sabteka. Og synir Raema: Séba og Dedan. 10Og Kús gat Nimrod. Hann tók að gjörast voldugur á jörðinni. 11Mísraím gat Lúdíta, Anamíta, Lehabíta, Naftúkíta, 12Patrúsíta, Kaslúkíta (þaðan eru komnir Filistar) og Kaftóríta. 13Kanaan gat Sídon, frumgetning sinn, og Het, 14og Jebúsíta, Amoríta, Gírgasíta, 15Hevíta, Arkíta, Síníta, 16Arvadíta, Semaríta og Hamatíta. 17Synir Sems: Elam, Assúr, Arpaksad, Lúd, Aram, Ús, Húl, Geter og Mas. 18Og Arpaksad gat Sela og Sela gat Eber. 19Og Eber fæddust tveir synir. Hét annar Peleg, því að á hans dögum greindist fólkið á jörðinni, en bróðir hans hét Joktan. 20Og Joktan gat Almódad, Salef, Hasarmavet, Jara, 21Hadóram, Úsal, Dikla, 22Ebal, Abímael, Séba, 23Ófír, Havíla og Jóbab. Þessir allir voru synir Joktans. 24Sem, Arpaksad, Sela, 25Eber, Peleg, Reú, 26Serúg, Nahor, Tara, 27Abram, það er Abraham. 28Synir Abrahams: Ísak og Ísmael. 29Þetta er ættartal þeirra: Nebajót var frumgetinn sonur Ísmaels, þá Kedar, Adbeel, Míbsam, 30Misma, Dúma, Massa, Hadad, Tema, 31Jetúr, Nafis og Kedma. Þessir voru synir Ísmaels. 32Synir Ketúru, hjákonu Abrahams: Hún ól Símran, Joksan, Medan, Midían, Jísbak og Súa. Og synir Joksans voru: Séba og Dedan. 33Og synir Midíans: Efa, Efer, Hanok, Abída og Eldaa. Allir þessir voru niðjar Ketúru. 34Abraham gat Ísak. Synir Ísaks voru Esaú og Ísrael. 35Synir Esaú: Elífas, Regúel, Jehús, Jaelam og Kóra. 36Synir Elífas voru: Teman, Ómar, Sefí, Gaetam, Kenas, Timna og Amalek. 37Synir Regúels voru: Nahat, Sera, Samma og Missa. 38Og synir Seírs: Lótan, Sóbal, Síbeon, Ana, Díson, Eser og Dísan. 39Og synir Lótans: Hórí og Hómam, og systir Lótans var Timna. 40Synir Sóbals voru: Aljan, Manahat, Ebal, Sefí og Ónam. Og synir Síbeons: Aja og Ana. 41Sonur Ana: Díson. Og synir Dísons: Hamran, Esban, Jítran og Keran. 42Synir Esers voru: Bílhan, Saavan og Jaakan. Synir Dísans voru: Ús og Aran. 43Þessir eru þeir konungar, sem ríktu í Edómlandi, áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum: Bela, sonur Beórs, og hét borg hans Dínhaba. 44Og er Bela dó, tók Jóbab, sonur Sera frá Bosra, ríki eftir hann. 45Og er Jóbab dó, tók Húsam frá Temanítalandi ríki eftir hann. 46Og er Húsam dó, tók Hadad sonur Bedads ríki eftir hann. Hann vann sigur á Midíanítum á Móabsvöllum, og borg hans hét Avít. 47Og er Hadad dó, tók Samla frá Masreka ríki eftir hann. 48Og er Samla dó, tók Sál frá Rehóbót hjá Fljótinu ríki eftir hann. 49Og er Sál dó, tók Baal Hanan, sonur Akbórs, ríki eftir hann. 50Og er Baal Hanan dó, tók Hadad ríki eftir hann, og hét borg hans Pagí, en kona hans Mehetabeel, dóttir Madredar, dóttur Me-Sahabs. 51Og Hadad dó. Og höfðingjar Edómíta voru: höfðinginn Timna, höfðinginn Alva, höfðinginn Jetet, 52höfðinginn Oholíbama, höfðinginn Ela, höfðinginn Pínon, 53höfðinginn Kenas, höfðinginn Teman, höfðinginn Mibsar, 54höfðinginn Magdíel, höfðinginn Íram. Þessir voru höfðingjar Edómíta.
Copyright information for Icelandic