‏ 1 Corinthians 10

1Gleymum aldrei, vinir mínir, því sem kom fyrir þjóð okkar í eyðimörkinni forðum. Guð vísaði þeim veginn með skýi sem fór á undan þeim, og leiddi þá heilu og höldnu yfir Rauðahafið. 2Þetta mætti kalla skírn þeirra til fylgdar við Móse – því þeir voru skírðir bæði í hafinu og skýinu. 3 4Og á yfirnáttúrlegan hátt sendi Guð þeim fæðu að eta og vatn að drekka þarna í miðri eyðimörkinni – þeir drukku vatnið sem Kristur gaf þeim. Hann var þar hjá þeim eins og klettur og veitti andlega svölun og endurnæringu. 5En þrátt fyrir allt þetta, þá óhlýðnuðust flestir þeirra Guði og hann lét þá falla í eyðimörkinni.

6Af þessu sjáum við að við eigum ekki að girnast það sem illt er, eins og þeir gerðu, 7né tilbiðja hjáguði, eins og þeir. Biblían segir: Fólkið settist niður til að eta og drekka og stóð upp til að dansa – kring um gullkálfinn.

8Önnur aðvörun felst í því sem gerðist þegar sumir þeirra drýgðu hór. Afleiðing þess var að 23.000 þeirra dóu á einum degi! 9Misbjóðið ekki heldur þolinmæði Drottins, það gerðu þeir og dóu því af höggormsbitum. 10Kvartið ekki gegn Guði og verkum hans, eins og þeir gerðu, munið að Guð sendi engil sinn til að eyða þeim. 11Allt þetta henti þá, okkur til viðvörunar. Þessir atburðir voru færðir í letur til þess að við gætum lesið um þá og lært af þeim nú er endalok heimsins nálgast.

12Gætið því að ykkur. Hugsið ekki sem svo: Þannig mundi ég aldrei hegða mér, þetta kemur aldrei fyrir mig! Látið þetta ykkur að kenningu verða, því þið gætuð líka gert rangt. 13En munið þetta: Þær girndir sem þið þurfið að takast á við í lífi ykkar, eru ekkert nýtt eða einstakt. Margir hafa áður orðið að kljást við sömu vandamál og þið. En engin freisting er óyfirstíganleg. Þið getið treyst því að Guð muni ekki leyfa freistingunni að sigra ykkur. Þessu hefur hann lofað og hann stendur við orð sín. Hann mun sýna ykkur leið til að komast undan freistingunni, til þess að þið getið staðist hana ef þið viljið. 14Gætið þess, vinir mínir umfram allt, að forðast hvers konar hjáguðadýrkun.

Þið getið ekki leikið tveim skjöldum

15Þið eruð skynsemdarfólk. Dæmið því um það sem ég ætla nú að segja: 16Þegar við biðjum um blessun Guðs yfir bikarinn, sem við drekkum af við heilaga kvöldmáltíð, þýðir það þá ekki að allir, sem drekka af honum, njóti saman blessunar af blóði Krists? Og þegar við brjótum brauðið og neytum þess saman, þá sýnir það að við njótum öll sameiginlega gjafa líkama hans. 17Ekki skiptir máli hve mörg við erum, við neytum öll af sama brauði og sýnum þar með að við erum öll limir á líkama Krists. 18Eins er með Gyðingana, allir sem borða fórnarkjötið eru sameinaðir, bæði innbyrðis og í Guði, í þeirri athöfn.

19Hvað er ég að reyna að segja? Er ég að segja að skurðgoðin, sem heiðingjarnir færa fórnir, séu lifandi og raunverulegir guðir og að kjöt, þeim fórnað, verði fyrir illum áhrifum? Nei, alls ekki. 20Ég á við að þeir, sem fórna til þessara skurðgoða, eru sameinaðir í því að fórna til illra anda en alls ekki Guðs og ég vil ekki að neitt ykkar eigi samfélag við illa anda. 21Þið getið ekki drukkið af bikar Drottins og einnig af bikar Satans. Þið getið ekki meðtekið brauð við máltíð Drottins og einnig við borð illra anda.

22Eigum við að reita Drottin til reiði? Erum við öflugri en hann? 23Auðvitað megið þið borða mat sem fórnað hefur verið skurðgoðum, ef þið viljið. Neysla slíks kjöt er ekki brot á lögum Guðs, en það þýðir þó ekki að þið eigið að gera það. Það getur verið leyfilegt en kann þó að vera óráðlegt. 24Hugsið ekki aðeins um ykkur sjálf. Reynið líka að hugsa um meðbróður ykkar og systur og hvað þeim sé fyrir bestu.

25Farið þannig að: Kaupið það kjöt sem selt er á torginu. Spyrjið ekki hvort það sé fórnarkjöt. 26Jörðin og öll hennar gæði tilheyra Guði og eru ykkur til gagns og gleði.

27Ef einhver, sem ekki er kristinn, býður þér í kvöldmat, þá skaltu hiklaust þiggja boðið ef þú vilt. Borðaðu allt sem fyrir þig er sett og spurðu einskis. Þá veistu ekki hvort maturinn hefur verið notaður til fórna eða ekki, og átt því ekki á hættu að fá samviskubit. 28En ef einhver aðvarar þig og segir að þetta sé fórnarkjöt, skaltu ekki borða það, af tillitssemi við þann sem varaði þig við og samvisku hans. 29Í þessu tilviki er það hans afstaða sem máli skiptir en ekki þín.

Nú finnst þér ef til vill undarlegt hvers vegna þér ber að láta skoðanir annarra hafa áhrif á og stjórna gerðum þínum.
30Geti ég þakkað Guði fyrir matinn og notið hans, hvers vegna á ég þá að láta einhvern annan eyðileggja allt, bara af því að honum finnst ég hafa rangt fyrir mér? 31Jú, sjáið til. Það er vegna þess að allt sem þið gerið á að vera Drottni til dýrðar, jafnvel matur ykkar og drykkur. 32Verið því ekki öðrum til hneykslunar, hvort sem það eru Gyðingar, heiðingjar eða trúbræður. 33Þannig fer ég að: Ég reyni að þóknast öllum í öllu sem ég geri, og hugsa þá ekki aðeins um það sem mér fellur best eða gagnast mest, heldur um það sem getur orðið þeim fyrir bestu, svo að þeim verði bjargað – þeir frelsist.
Copyright information for IslLO