1 Corinthians 16
Lokaorð
1Varðandi peningana, sem þið eruð að safna handa söfnuðinum í Jerúsalem, þá skuluð þið fara eins að og ég hef sagt söfnuðinum í Galatíu. 2Hvern sunnudag skuluð þið, hvert og eitt, leggja til hliðar þá upphæð sem efni leyfa. Látið þetta ekki dragast þangað til ég kem. 3En þegar ég kem, mun ég senda kærleiksgjöf ykkar til Jerúsalem, ásamt bréfi mínu, með traustum sendiboðum, sem þið hafið sjálf valið til fararinnar. 4Hafi ég sjálfur tíma til að fara, þá geta þeir orðið mér samferða. 5Ég kem til ykkar frá Makedóníu, en þar mun ég aðeins hafa stutta viðdvöl. 6Ef til vill mun ég dvelja nokkuð hjá ykkur, jafnvel allan veturinn, og eftir það getið þið sent mig áfram til næsta ákvörðunarstaðar. 7Í þetta sinn ætla ég sem sagt að vera lengur með ykkur, ef Drottinn leyfir. 8Hér í Efesus ætla ég að dveljast fram að hvítasunnu, 9því að hér hef ég nóg að gera við að predika og kenna. Hér er mikið um að vera, en andstæðingarnir eru líka margir. 10Ef Tímóteus skyldi koma, sjáið þá til þess að honum líði vel, því að hann vinnur verk Drottins eins og ég. 11Látið engan lítilsvirða hann vegna þess hve ungur hann er og þegar hann hefur lokið sér af hjá ykkur, sendið hann þá ánægðan til mín. Ég hlakka til að sjá hann, svo og hina bræðurna, sem væntanlegir eru. 12Ég bað Apollós að verða samferða bræðrunum til ykkar, en hann fékkst ekki til þess nú, hann kemur seinna, ef tækifæri býðst. 13Vakið! Standið stöðug í trúnni. Verið djörf og sterk 14og látið kærleikann leiða ykkur í öllu. 15Þið munið eftir Stefanasi og fjölskyldu hans, en þau voru fyrst til að taka trú í Grikklandi. Þau hafa helgað sig starfinu til hjálpar kristnum mönnum. 16Verið þeim hjálpleg og fylgið ráðleggingum þeirra, svo og öðrum þeim er vinna meðal ykkar af sömu alúð og dugnaði og þau. 17Það gleður mig mjög að Stefanas, Fortúnatus og Akkaíkus hafa heimsótt ykkur. 18Þeir hafa veitt mér mikla hjálp og bætt mér upp fjarveru ykkar. Þeir hafa verið mér til mikillar uppörvunar og styrktar, og ég er viss um að þið hafið sömu reynslu af þeim og ég. 19Söfnuðirnir hér í Litlu-Asíu senda ykkur kærar kveðjur. Akvílas og Priska biðja að heilsa, svo og söfnuðurinn sem kemur saman á heimili þeirra. 20Allir vinirnir hér senda ykkur kveðjur. Heilsið hvert öðru hjartanlega. 21Þessi kveðjuorð rita ég eigin hendi: 22Sá sem ekki elskar Drottin, er útilokaður frá samfélaginu við Guð og þar með undir bölvun. Kom þú Drottinn Jesús! 23Kærleikur og náð Drottins Jesú sé með ykkur. 24Mínar innilegustu kveðjur til ykkar allra sem tilheyrið Kristi Jesú. Amen. Páll
Copyright information for
IslLO