‏ 1 Corinthians 6

1Hvernig stendur á því að ef þið eigið eitthvað sökótt við annan safnaðarbróður, þá kærið þið og látið heiðinn dómstól dæma í málinu, í stað þess að láta aðra kristna menn skera úr um það hvor hafi á réttu að standa. 2Vitið þið ekki, að við kristnir menn eigum að dæma heiminn og stjórna honum? Hvers vegna getið þið þá ekki gert út um svona smámál ykkar í milli? 3Vitið þið ekki að við kristnir menn munum dæma og launa sjálfum englum himinsins? Ykkur ætti því að vera í lófa lagið að leysa vandamál ykkar hér á jörðu. 4Hvers vegna leitið þið þá til utanaðkomandi dómara, sem eru ekki einu sinni kristnir? 5Ég segi þetta svo að þið blygðist ykkar. Er enginn í kirkjunni nógu vitur til að setja niður þessar deilur? 6Þið eruð kristin en ákærið samt hvert annað og það í áheyrn trúleysingja!

7Slík málaferli eru flest algjör ósigur ykkar sem kristins fólks. Hvers vegna þolið þið ekki heldur órétt? Látið heldur hafa af ykkur, það væri Drottni þóknanlegra. 8En þess í stað hafið þið rangt við og níðist jafnvel á systkinum ykkar í trúnni.

Ekki er guðsríki allra

9 10Vitið þið ekki, að þeir sem svona hegða sér eiga engan hlut í guðsríki? Látið ekki blekkjast! Þeir sem lifa siðlausu lífi – hjáguðadýrkendur, hórkarlar, kynvillingar – munu engan hlut eiga í ríki Guðs, ekki heldur þjófar eða ágjarnir, drykkjumenn, rógberar eða ræningjar. 11Þetta voruð þið sumir hverjir eitt sinn, en nú eru syndir ykkar burt þvegnar og þið eruð helgaðir og teknir frá handa Guði. Hann hefur sýknað og viðurkennt ykkur sem sín börn, vegna þess sem Drottinn Jesús Kristur og andi Guðs hafa gert fyrir ykkur. 12Ég get gert hvað sem ég vil, hafi Kristur ekki bannað það, en sumt er mér ekki til góðs. Þótt það sé leyfilegt, þá mun ég standa gegn því, ef ég held að það geti náð þeim tökum á mér að ég ætti erfitt með að hætta því.

13Takið til dæmis matinn. Guð hefur gefið okkur matarlyst og maga til að melta. En það þýðir ekki að við eigum að borða meira en við þurfum. Fæðan er ekki mikilvæg, því að Guð mun á sínum tíma gera að engu bæði mat og maga. Saurlífi á aldrei rétt á sér. Líkamar okkar voru ekki skapaðir til þess, heldur handa Drottni, og Drottinn vill sjálfur helga líkama okkar. 14Guð mun sjálfur reisa líkama okkar frá dauðum, með mætti sínum á sama hátt og hann reisti Drottin Jesú Krist. 15Vitið þið ekki að líkamar ykkar eru limir Krists – hlutar af honum? Ætti ég þá að taka hluta Krists og sameina hann skækju? Nei. 16Vitið þið ekki að hafi maður mök við vændiskonu, verður hann hluti af henni og hún hluti af honum? Guð segir í orði sínu að í augum hans verði þau eitt hold. 17En ef þú gefst Drottni, þá ert þú og Kristur samtengdir sem einn maður.

18Haldið ykkur því frá öllu kynferðislegu lauslæti. Engin synd hefur jafnmikil áhrif á líkamann og sú. Ef þið syndgið á þennan hátt, þá er það gegn ykkar eigin líkama. 19Hafið þið ekki skilið að líkami ykkar er híbýli heilags anda, sem Guð gaf ykkur og lifir í ykkur? Þið eigið ekki líkama ykkar! 20Guð hefur keypt ykkur dýru verði. Vegsamið því Guð með líkama ykkar.
Copyright information for IslLO