1 John 5
Þetta verðið þið að skilja
1Þið eruð Guðs börn, ef þið trúið því að Jesús sé Kristur – að hann sé sonur Guðs og frelsari ykkar. Þeir sem elska föðurinn, eiga einnig að elska börnin hans. 2Hversu heill ert þú í kærleika þínum og hlýðni við Guð? Það getur þú séð á því hversu þú elskar börn Guðs. 3Að elska Guð er að hlýða honum og það er létt. 4Hvert einasta Guðs barn getur hlýtt Guði, sigrað syndina og allar illar girndir, með því að treysta hjálp Krists. 5Enginn getur barist til sigurs í þessu stríði, nema hann trúi því að Jesús sé í sannleika sonur Guðs. 6– 7– 8 ▼▼Texti vers(s) 8 hefur verið sameinaður þessu versi.
▼▼Texti vers(s) 8 hefur verið sameinaður þessu versi.
Við vitum að Jesús er sonur Guðs, því að svo sagði rödd Guðs, sem hljómaði frá himnum, þegar hann var skírður og er hann stóð andspænis dauðanum. Sama segir heilagur andi, andi sannleikans. Þar með höfum við þrjú vitni: Rödd heilags anda í hjörtum okkar, röddina af himni þegar Jesús var skírður og röddina sem hljómaði er hann gekk í dauðann. Vitnin þrjú – andinn, vatnið og blóðið – eru öll sammála. „Jesús Kristur er sonur Guðs.“ 9Fyrst við trúum vitnisburði manna fyrir dómstólum getum við óhikað trúað öllu sem Guð segir. Guð segir að Jesús sé sonur sinn 10og allir sem því trúa, finna innra með sér að það er satt. Sá sem vill ekki trúa þessu, segir þar með að Guð sé lygari, þar sem hann ekki trúir því sem Guð hefur sagt um son sinn. 11Hvað hefur Guð sagt? Að hann hafi gefið okkur eilíft líf og að þetta líf sé í syni hans. 12Sá, sem trúir á son Guðs, á lífið, en sá, sem ekki trúir, á ekki lífið. 13Þetta hef ég skrifað ykkur, sem trúið á son Guðs, til þess að þið vitið að þið eigið eilíft líf. 14Við vitum einnig með vissu að hann hlustar á okkur hvenær sem við biðjum hann eftir hans vilja. 15Og fyrst við erum viss um að hann hlusti þegar við tölum við hann og biðjum, megum við einnig treysta því að hann svari okkur. 16Ef þið sjáið kristinn mann drýgja synd, sem ekki leiðir til dauða, þá biðjið Guð að fyrirgefa honum og Guð mun gefa honum líf, nema því aðeins að hann hafi drýgt þá synd sem veldur dauða. Til er dauðasynd og hafi hann drýgt hana er tilgangslaust að biðja fyrir honum. 17Allt ranglæti er synd, en hér á ég ekki við þessar venjulegu syndir, ég er að tala um þá synd sem endar með dauða. 18Enginn, sem tilheyrir fjölskyldu Guðs, heldur áfram að syndga af ásettu ráði, heldur gætir hann sín og djöfullinn nær engu taki á honum. 19Við vitum að við erum Guðs börn og við vitum einnig að heimurinn er á valdi Satans og undir hans stjórn. 20Við vitum að Kristur, sonur Guðs, kom til að hjálpa okkur til þess að skilja og finna hinn eina sanna Guð. Nú tilheyrum við honum vegna þess að við erum í Jesú Kristi, syni hans. Hann er hinn eini sanni Guð – hann er eilífa lífið. 21Börnin mín, forðist allt sem getur leitt hjörtu ykkar burt frá Guði. Jóhannes
Copyright information for
IslLO