1 Peter 5
Nokkur orð til leiðtoganna
1Prestar og leiðtogar, nú tala ég til ykkar sem samstarfsmaður. Ég sá Krist með eigin augum deyja á krossinum og ég mun einnig fá hlutdeild í dýrð hans og vegsemd þegar hann kemur aftur. Kæru samstarfsmenn, ég minni ykkur á 2að annast hjörð Guðs. Gætið hennar af fúsleika, en ekki með nauðung; ekki launanna vegna, heldur vegna þess að ykkur er umhugað að þjóna Drottni. 3Stjórnið ekki söfnuðinum með harðri hendi, heldur gangið á undan með góðu fordæmi 4og þegar Jesús Kristur – yfirhirðirinn – kemur, mun hann launa ykkur og launin verða hlutdeild í hans eilífu dýrð. 5Ungu menn, verið leiðtogum ykkar undirgefnir. Þjónið hver öðrum í auðmýkt, því að Guð er andstæðingur dramblátra en blessar og hjálpar auðmjúkum. 6Ef þið auðmýkið ykkur fyrir Guðs voldugu hönd, mun hann á sínum tíma upphefja ykkur. 7Varpið öllum áhyggjum ykkar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir ykkur. 8Verið á verði – gætið ykkar á árásum Satans, því að hann er versti óvinur ykkar. Hann æðir um og öskrar, eins og hungrað ljón sem leitar að bráð. 9Verið viðbúin árásum hans. Treystið Drottni. Munið að kristnir menn um allan heim þola sömu þjáningar og þið. 10En eftir að þið hafið þjáðst skamma hríð, mun Guð, sem birtir kærleika sinn í Kristi, veita ykkur af sinni eilífu dýrð. Hann mun koma sjálfur til að sækja ykkur og leiða ykkur inn í dýrð sína og gera ykkur sterkari en nokkru sinni fyrr. 11Hans er mátturinn um alla framtíð, öld eftir öld. Amen. 12Þetta stutta bréf hef ég skrifað ykkur með hjálp Silvanusar, en hann er traustur bróðir að mínu áliti. Ég vona að bréfið verði ykkur til uppörvunar, því að með því hef ég reynt að benda ykkur á leiðina að blessun Guðs og ég vona einnig að það hjálpi ykkur til að vera staðföst í kærleika hans. 13Söfnuðurinn hér í Róm sendir ykkur kveðjur sínar og það gerir einnig sonur minn, hann Markús. 14Heilsið hvert öðru á kærleiksríkan hátt. Friður sé með ykkur öllum, sem Kristi tilheyrið. Pétur
Copyright information for
IslLO