‏ 1 Thessalonians 3

Góðar fréttir frá Tímóteusi

1Þegar ég gat ekki afborið þetta lengur, ákvað ég að verða eftir í Aþenu. 2 3Ég sendi Tímóteus, bróður okkar og þjón Guðs, til ykkar, til að styrkja ykkur og uppörva í trúnni og koma í veg fyrir að þið misstuð kjarkinn vegna allra erfiðleikanna sem þið mættuð. Auðvitað vitið þið að slíkir erfiðleikar eru þáttur í áætlun Guðs með okkur kristna menn. 4Meðan við vorum hjá ykkur, þá sögðum við ykkur að þið mynduð brátt mæta ofsóknum og það stóð heima.

5En sem sagt, þegar ég þoldi ekki lengur þessa óvissu, þá sendi ég Tímóteus til að komast að því hvort þið væruð staðföst í trúnni. Ég var hræddur um að Satan hefði ef til vill fellt ykkur og erfiði okkar væri allt unnið fyrir gýg. 6En nú er Tímóteus nýkominn aftur með þær gleðifréttir, að trú ykkar sé sterkari og kærleikurinn dýpri en nokkru sinni. Hann sagði einnig að þið hefðuð minnst heimsóknar okkar með gleði og þráð jafn heitt og við að við gætum hist á ný.

7Kæru vinir, þessar fréttir, að þið séuð stöðug í Drottni, hafa huggað okkur stórlega í þeim erfiðleikum og þjáningum sem við verðum að þola hér. 8Við getum þolað hvað sem er, svo framarlega sem við vitum að þið séuð staðföst í trúnni á Jesú Krist.

9Hvernig getum við nógsamlega þakkað Guði fyrir gleðina sem þið hafið veitt okkur í samfélaginu við Drottin? 10Við biðjum Guð þess dag og nótt að við fáum að heimsækja ykkur á ný, svo að við getum aukið enn meir við trú ykkar. 11Ég bið þess að sjálfur Guð, faðir okkar, og Drottinn Jesús, opni okkur leið til ykkar á ný. 12Auk þess bið ég Drottin að kærleikur ykkar hvers til annars og til allra, aukist æ meir, eins og kærleikurinn sem við berum til ykkar. 13Þannig mun Guð, faðir okkar, styrkja ykkur og helga, og hreinsa hjörtu ykkar af allri synd, svo að þið getið staðið hrein frammi fyrir honum þann dag, er Drottinn Jesús Kristur kemur aftur ásamt öllum þeim er honum tilheyra.
Copyright information for IslLO