1 Thessalonians 5
1Hvenær verður þetta? Reyndar er óþarfi fyrir mig að ræða það, kæru vinir, 2því að ykkur er sjálfum ljóst að það veit enginn. Dagur Drottins kemur fyrirvaralaust – eins og þjófur um nótt. 3Fólk segir: „Nú er friður og ró og allt í besta lagi,“– en þá mun skelfingin dynja yfir, eins og fæðingarhríðir hjá konu sem er að því komin að ala barn. Fólk þetta mun ekki sjá neina undankomuleið – hvergi mun skjól að finna. 4Kæru vinir, ég veit að ykkur er þetta ljóst og þegar dagur Drottins kemur, kemur hann ykkur ekki í opna skjöldu eins og óvinur, 5því að öll eruð þið börn ljóssins og börn dagsins. Þið heyrið ekki nóttunni til né myrkrinu. 6Verið því allsgáð og sofið ekki á verðinum eins og sumir. Vakið og væntið komu Drottins! 7Nóttina nota menn til svefns og sumir til að drekka sig fulla, 8en við, sem lifum í ljósinu skulum vera allsgáð, vernduð brynju trúar og kærleika og með hjálm hjálpræðisins á höfði. 9Guð hefur ekki kallað okkur til refsingar, 10heldur til eilífs lífs með sér, hvort sem við verðum lífs eða liðin þann dag er Drottinn kemur aftur. 11Uppörvið því hvert annað og hjálpist að, hér eftir sem hingað til.Ýmsar áminningar
12Kæru vinir, sýnið leiðtogum safnaðar ykkar tilhlýðilega virðingu. Þeir leggja hart að sér ykkar vegna og vara ykkur við öllu því sem rangt er. 13Hugsið vel til þeirra og berið umhyggju fyrir þeim, því að þeir gera sitt besta til að hjálpa ykkur. Haldið svo frið hvert við annað. 14Kæru vinir, áminnið þá sem latir eru og uppörvið þá sem kjarklitlir eru. Sýnið nærgætni og umhyggjusemi þeim sem viðkvæmir eru og verið þolinmóð hvert við annað. 15Gætið þess að enginn gjaldi illt fyrir illt, en reynið í hvívetna að gera hvert öðru gott og einnig þeim sem ekki eru kristnir. 16Verið ávallt glöð. 17Verið stöðug í bæninni. 18Þakkið Guði í öllum kringumstæðum, því það er vilji Guðs með þá sem Kristi tilheyra. 19Hindrið ekki heilagan anda 20með því að ávíta þá sem koma með spádóm frá Guði, 21en sannprófið það sem þeir segja í ljósi Guðs orðs, til að ganga úr skugga um hvort það sé rétt, og ef svo er, þá takið við því. 22Haldið ykkur frá öllu sem illt er. 23Ég bið þess að Guð friðarins hreinsi ykkur algjörlega og varðveiti líkama ykkar, sál og anda, allt til þess dags er Drottinn Jesús Kristur kemur aftur. 24Guð, sem kallaði ykkur til að verða börn sín, mun koma þessu til leiðar, eins og hann hefur lofað. 25Kæru vinir, biðjið fyrir okkur. 26Skilið kveðju frá mér til allra bræðranna. 27Ég bið þess og krefst í nafni Drottins að þið látið lesa þetta bréf upp fyrir öllum söfnuðinum. 28Drottinn blessi ykkur ríkulega, eitt og sérhvert. Páll
Copyright information for
IslLO