2 Corinthians 5
1Við vitum að þegar tjaldið sem við nú búum í – okkar jarðneski líkami – verður fellt, en það gerist þegar við deyjum, þá munum við fá nýja líkama á himnum – bústað sem endist okkur um alla eilífð. Sá bústaður verður ekki gerður af manna höndum, heldur af Guði sjálfum. 2Við þreytumst í þessu lífi og því hlökkum við til þess dags er við fáum hina himnesku líkama, sem við íklæðumst eins og nýjum fötum, 3því að ekki munum við vera andar án líkama. 4Í þessu lífi er mæða og strit en samt kvíðum við dauðanum, af því að allt hið líkamlega og jarðneska er okkur svo kært. En við viljum íklæðast nýju líkömunum, svo að þessir deyjandi líkamar umbreytist til eilífs lífs. 5Þessu hefur Guð lofað okkur og því til staðfestingar hefur hann gefið okkur sinn heilaga anda. 6Nú horfum við glöð fram til þess tíma er við fáum þessa himnesku líkama okkar. En minnumst þess jafnframt að hvert andartak, sem við lifum í jarðnesku líkömunum, er tími sem við eyðum fjarri okkar eilífa heimili á himnum hjá Jesú. 7Þetta sjáum við ekki með líkamlegum augum, heldur með augum trúarinnar. 8Við erum alls óhrædd við dauðann, því að þá fáum við að fara heim til Drottins. 9Markmið okkar er því ávallt að þóknast honum í öllu sem við gerum, hvort sem það er í líkamanum, á jörðu, eða á himnum hjá Drottni. 10Öll verðum við að standa frammi fyrir dómstóli Krists. Hann mun rannsaka líf okkar og kveða upp sinn dóm. Þá mun sérhver fá endurgoldið eins og hann hefur til unnið, eftir því hvort hann hefur gert gott eða illt meðan hann lifði hér á jörðu.Erindrekar Krists
11Vegna þess að við óttumst Drottin – elskum hann, virðum og heiðrum – þá leggjum við hart að okkur við að ávinna menn til trúar á hann. Guð þekkir hjörtu okkar og einlægni í þessu efni og ég vona að þið gerið það einnig. 12Erum við nú enn að reyna að hæla sjálfum okkur? Nei, en ég er að fá ykkur í hendur ágætt vopn. Þetta vopn getið þið notað gegn predikurum þeim sem stæra sig af útliti sínu og ræðum og láta stjórnast af óhreinu hugarfari. En hvað sem því líður, þá getið þið verið hreykin af heiðarleika okkar og góðum ásetningi. 13– 14Sumir telja okkur ruglaða, en allt sem við gerum er vegna Guðs, vegna þess að kærleikur Krists knýr okkur. Fyrst við trúum því að Kristur hafi dáið fyrir okkur öll, þá eigum við einnig að trúa því að við séum dáin því lífi sem við lifðum. 15Hann dó fyrir alla til að allir sem lifa – og hafa eignast eilíft líf hjá honum – lifi ekki framar til að þóknast sjálfum sér, heldur honum sem dó og reis upp þeirra vegna. 16Hættið því að vega og meta kristna menn eftir því hvað heimurinn segir um þá eða eftir útliti þeirra. Áður fyrr leit ég á Krist aðeins frá mannlegu sjónarmiði, en þar urðu mér á mikil mistök. Nú hef ég svo sannarlega aðra skoðun. 17Sá sem verður kristinn, verður nýr maður. Hann er ekki lengur sá sami, því hann hefur eignast nýtt líf! 18Allt þetta nýja er frá Guði, sem leiddi okkur aftur til sín með því sem Kristur Jesús gerði. Því næst veitti Guð okkur þau forréttindi að fá að hvetja alla menn til að koma og sættast við hann. 19Guð sætti heiminn við sig í Kristi og hann ákærir mennina ekki lengur fyrir syndir þeirra, heldur fyrirgefur þeim. Þennan stórkostlega boðskap hefur hann falið okkur að flytja öllum mönnum. 20Við erum erindrekar Krists. Við biðjum í Krists stað: Sættist við Guð! 21Guð lagði syndir okkar á Krist, sem var syndlaus, en í staðinn jós hann kærleika sínum yfir okkur.
Copyright information for
IslLO