2 Corinthians 6
1Sem samstarfsmenn Guðs biðjum við ykkur að láta ekki þessi góðu skilaboð, um kærleika hans ganga ykkur úr greipum. 2Guð hefur sagt: „Þegar þið hrópuðuð, þá heyrði ég, og hjálp mín stóð ykkur til boða, því að þá var hjálpræðisdagur.“Já, einmitt nú er Guð reiðubúinn að svara ykkur. Í dag vill hann frelsa ykkur! 3Við kappkostum að lifa þannig að hegðun okkar hneyksli engan né hindri í því að finna Drottin. 4Látum það sjást að við séum sannir þjónar Guðs í öllu sem við gerum. Þolinmæði okkar stendur af sér allar þjáningar, þrengingar og erfiðleika. 5Við höfum verið barðir, okkur hefur verið stungið í fangelsi og oft höfum við horfst í augu við trylltan múg. Við höfum unnið meðan kraftar entust, vakað margar nætur og liðið hungur. 6Við höfum staðið við orð okkar og lifað heilbrigðu lífi. Þessu hefur þrautseigja og skilningur okkar á fagnaðarerindinu komið til leiðar. Við höfum iðkað góðsemi og sannan kærleika og verið leiddir af heilögum anda. 7Við höfum talað sannleikann og máttur Guðs hefur hjálpað okkur í öllu sem við höfum gert. Við höfum íklæðst herklæðum hins kristna manns – og notað vopnin til sóknar og varnar. 8Við höfum verið Drottni trúir, hvort sem aðrir heiðra okkur eða forsmá, lasta eða lofa. Við erum heiðarlegir, þótt þeir kalli okkur lygara. 9Heimurinn lætur sér fátt um okkur finnast, en Guð þekkir okkur. Við erum í stöðugri lífshættu, en þó lifum við enn. Við höfum hlotið sár, en þó haldið lífi. 10Við erum hryggir, en þó alltaf glaðir í Drottni. Við erum fátækir, en auðgum þó marga með andlegum gjöfum. Við erum allslausir, en eigum þó allt. 11Kæru vinir í Korintu. Ég hef talað af hreinskilni og ég elska ykkur af öllu hjarta. 12Ef einhver kuldi er enn okkar á milli, þá er hann ekki vegna skorts á kærleika af minni hálfu, heldur vegna þess að kærleikur ykkar nær ekki til mín og megnar því ekki að draga mig til ykkar. 13Nú tala ég við ykkur eins og þið væruð mín eigin börn. Opnið hjörtu ykkar fyrir okkur. Endurgjaldið kærleika okkar.Forðist alla málamiðlun
14Forðist félagsskap við þá sem ekki elska Drottin, því hvað eiga börn Guðs sameiginlegt með börnum syndarinnar? Hvernig er hægt að sameina ljós og myrkur? 15Hvað á Kristur saman við Satan að sælda? Hvernig getur kristinn maður átt samfélag við þann sem ekki trúir? 16Getur nokkurt samband verið milli musteris Guðs og skurðgoðanna? Þið eruð musteri Guðs, bústaður hins lifandi Guðs, og um ykkur segir hann: „Ég vil búa hjá þeim og ganga um meðal þeirra. Ég mun vera þeirra Guð og þeir munu vera mitt fólk.“ 17Af þessari ástæðu segir Drottinn: „Yfirgefið þá! Farið burt frá þeim. Snertið ekkert óhreint og þá mun ég taka ykkur með mér. 18Þá mun ég vera faðir ykkar og þið munuð vera synir mínir og dætur.“
Copyright information for
IslLO