‏ 2 John

1Frá Jóhannesi, öldungi kirkjunnar.

Til hennar, sem Guð útvaldi, og barna hennar, sem ég og allir aðrir í kirkjunni elska af hjarta.
2Við höldum fast við sannleikann 3og því mun Guð, faðirinn, og sonur hans, Jesús Kristur, blessa okkur með miskunn sinni og friði, sannleika og elsku.

Gætið ykkar á falsleiðtogum

4Það var mjög ánægjulegt að hitta nokkur barna þinna hér og sjá að þau lifa lífinu eins og ætlast er til, í fylgd með sannleikanum og hlýðni við boð Guðs.

5Kæru vinir, ég minni ykkur alvarlega á gamla boðorðið sem Guð gaf okkur þegar í öndverðu: Kristnir menn eiga að elska hver annan. 6Ef við elskum Guð gerum við það sem hann býður okkur – í upphafi sagði hann okkur að elska hvert annað.

7Gætið ykkar á falsleiðtogum – og nóg er af þeim – sem trúa því ekki að Jesús Kristur hafi komið til jarðarinnar sem maður í líkama, eins og þeim, sem við höfum. Slíkir menn eru í andstöðu við sannleikann og einnig við Krist. 8Gætið þess að verða ekki eins og þeir, því að þá glatið þið því, sem þið hafið þegar öðlast í samfélaginu við Guð. Látið ekkert koma í veg fyrir að þið fáið full laun frá Drottni. 9Ef þið farið út fyrir kenningu hans, snúið þið baki við Guði, en ef þið hlýðið orðum Krists, eigið þið samfélag við Guð, já, bæði föðurinn og soninn.

10Ef einhver, sem ekki trúir orðum Krists, kemur til þess að uppfræða ykkur, þá bjóðið honum hvorki inn á heimili ykkar né hvetjið hann á nokkurn hátt, 11því að ef þið gerið það, þá verðið þið þátttakendur í illverkum hans.

12Ég hefði gjarnan viljað segja ýmislegt fleira, en ég ætla ekki að gera það í þessu bréfi. Ég vona að ég geti fljótlega komið til ykkar og þá getum við rætt saman og átt góðar stundir.

13Börn systur þinnar – en hún er líka Guðs barn – biðja að heilsa þér.

Jóhannes
Copyright information for IslLO