‏ 2 Thessalonians 1

1Frá Páli, Sílasi og Tímóteusi.

Til safnaðarins í Þessaloníku, sem er varðveittur í Guði föður og í Drottni Jesú Kristi.
2Guð, faðir Drottins Jesú Krists, blessi ykkur ríkulega og fylli hugi ykkar og hjörtu friði sínum.

Þjáningin hefur sinn tilgang

3Kæru vinir, það er okkur bæði rétt og skylt að þakka Guði fyrir ykkur, því að trú ykkar hefur vaxið undursamlega og kærleikur ykkar eflst innbyrðis. 4Það er okkur ljúft að segja öðrum söfnuðum frá þolinmæði ykkar og trausti til Guðs, þrátt fyrir ógnir og erfiðleika sem þið hafið orðið að þola. 5Þetta er enn ein staðfesting þess að Guð er sanngjarn og réttlátur í öllu. Hann notar þjáningarnar til að efla ykkur í trúnni, 6og samtímis vinnur hann að dómi og refsingu þeirra sem ofsækja ykkur.

7Því segi ég við ykkur sem illt þolið: Guð mun frelsa ykkur, og okkur, úr þessum þrengingum. Það verður þegar Drottinn Jesús kemur frá himnum ásamt sínum voldugu englum. 8Hann kemur í logandi eldi og mun kveða upp dóm yfir þeim sem ekki þekkja Guð og þeim sem óhlýðnast fagnaðarerindi hans. 9Þeir munu glatast og þeim refsað með eilífum aðskilnaði frá Drottni. Þeir munu ekki sjá dýrð hans og mátt, 10er hann birtist til að hljóta lof og tilbeiðslu allra þeirra sem á hann trúa, en þeirra á meðal verðið þið, því þið trúðuð vitnisburði okkar um hann.

11Þess vegna biðjum við stöðugt fyrir ykkur, að Guð varðveiti ykkur og fullkomni allt það góða sem þið vinnið að í trú og krafti hans. 12Þá mun nafn Drottins verða vegsamlegt í lífi ykkar og þið sjálf verða honum til dýrðar. Þessu mun kærleikur og miskunn Guðs koma til leiðar.
Copyright information for IslLO