‏ 3 John

1Frá Jóhannesi – öldungnum.

Til míns kæra Gajusar, sem ég elska í sannleika.

2Kæri vinur, það er bæn mín að þér líði vel, að þú sért jafn hraustur líkamlega og þú ert andlega. 3Sumir bræðranna, sem komu hér við, glöddu mig stórlega þegar þeir sögðu mér að þú lifðir hreinu og góðu lífi eftir orði Guðs. 4Það er ekkert sem gleður mig jafnmikið og slíkar fréttir af börnum mínum.

Farðu eftir því sem gott er

5Kæri vinur, þú vinnur Guði gott verk með því að sjá fyrir kennurum þeim og kristniboðum, sem leið eiga um hjá þér. 6Þeir hafa sagt söfnuðinum frá hlýhug þínum og kærleiksverkum. Það gleður mig að þú skulir leysa þá út með gjöfum, 7því að Drottins vegna ferðast þeir um og þiggja hvorki mat, föt, húsaskjól né peninga af heiðingjunum, enda þótt þeir hafi flutt þeim Guðs orð. 8Af þessari ástæðu ber okkur að annast þá og með því verðum við samstarfsmenn þeirra í verki Drottins.

9Ég sendi söfnuðinum stutt bréf um þessa hluti, en hinn stolti Díótrefes, sem sækist eftir að verða leiðtogi kristinna manna þar, viðurkennir ekki vald mitt og neitar að hlusta á mig. 10Þegar ég kem mun ég segja þér hvað hann hefur gert, hvernig hann rægir mig og einnig hvers konar orðbragð hann notar. Það er ekki aðeins að hann neiti sjálfur að taka á móti kristniboðunum, sem þar fara um, heldur bannar hann líka öðrum að gera það og hlýði þeir ekki, reynir hann að reka þá úr söfnuðinum.

11Kæri vinur, láttu þetta illa fordæmi ekki hafa áhrif á þig, heldur fylgdu því einu sem gott er.

Mundu að þeir, sem gera rétt, sanna með því að þeir séu Guðs börn, en hinir, sem leggja stund á hið illa, sýna að þeir þekkja ekki Guð.

12Demetríus fær hins vegar gott orð hjá öllum og einnig hjá sjálfum sannleikanum. Sama segi ég, og þú veist að ég fer með rétt mál.

13Það er margt sem ég þyrfti að segja þér, en um þá hluti vil ég ekki skrifa, 14
1:14a í flestum biblíum.
því að ég vona að ég muni sjá þig fljótlega og þá getum við rætt saman.
15
1:14b í flestum biblíum.
Ég kveð þig hér með í þetta sinn. Vinirnir, sem hér eru, biðja kærlega að heilsa þér. Skilaðu sérstakri kveðju frá mér til allra vinanna, hvers um sig.

Jóhannes
Copyright information for IslLO