Acts 1
Kæri Þeófílus!
1Fyrri frásaga mín var um allt sem Jesús gerði og kenndi. 2Hvernig hann sneri aftur til himna, eftir að hafa flutt postulunum, sem hann valdi, sérstök fyrirmæli frá heilögum anda. 3Næstu fjörutíu daga eftir krossfestinguna birtist hann þeim oft og sannaði að hann væri raunverulega lifandi, og talaði við þá um guðsríki.Jesús fer til himna
4Eitt sinn, er þeir voru saman komnir, sagði hann þeim að fara ekki burt frá Jerúsalem fyrr en heilagur andi hefði komið yfir þá, samkvæmt loforði föðurins, en um það hafði hann rætt við þá áður. 5Hann minnti þá á að Jóhannes hefði skírt með vatni og bætti síðan við „en eftir nokkra daga verðið þið skírðir með heilögum anda.“ 6Seinna birtist hann þeim aftur og þá spurðu þeir hann: „Drottinn, ætlarðu að frelsa Ísrael núna (undan valdi Rómverja) og endurreisa sjálfstæði þjóðar okkar?“ 7„Faðirinn einn ákveður hvenær það verður,“svaraði hann, „og ykkur er ekki ætlað að vita það fyrir. 8En þegar heilagur andi kemur yfir ykkur, þá munuð þið fá djörfung og kraft til að vitna um dauða minn og upprisu fyrir íbúum Jerúsalem, Júdeu, Samaríu – já, öllum heiminum.“ 9Og Jesús hafði ekki fyrr lokið þessum orðum sínum en hann var hafinn frá jörðu og hvarf í ský, en þeir stóðu einir eftir og störðu á eftir honum. 10En er þeir störðu til himins og reyndu að koma auga á hann, stóðu skyndilega hjá þeim tveir menn í hvítum klæðum. 11Þeir sögðu: „Hvers vegna standið þið hér og starið til himins? Jesús er farinn til himna! En dag einn mun hann koma aftur, og þá á sama hátt og hann fór.“ 12Eftir þennan atburð, sem varð á Olíufjallinu, sneru lærisveinarnir til Jerúsalem, sem var spölkorn þaðan. 13– 14Er þangað kom fóru þeir í loftstofuna, þar sem þeir héldu til. Lærisveinarnir voru þessir: Pétur, Jóhannes og Jakob, Andrés, Filippus, Tómas, Bartólómeus, Matteus, Jakob Alfeusson, Símon (kallaður „hinn róttæki“) og Júdas Jakobsson. Bræður Jesú voru þarna einnig ásamt nokkrum konum, þar á meðal móður Jesú.Nýr postuli valinn
15Þau voru öll samhuga og staðföst í bæninni. Dag einn, er þarna voru saman komin um 120 manns, stóð Pétur upp og ávarpaði viðstadda þessum orðum: 16„Það hlaut óhjákvæmilega að rætast sem Biblían segir um Júdas, sem sveik Jesú, og olli því að múgurinn handtók hann. Þessu spáði Davíð konungur fyrir innblástur heilags anda. 17Júdas var í okkar hópi og honum var falin sama þjónusta og okkur. 18Þessi maður keypti akur fyrir féð, sem hann fékk fyrir svikin, og þar steyptist hann til jarðar, svo að kviður hans rifnaði og innyflin féllu út. 19Þetta varð kunnugt um alla Jerúsalem og fólkið kallaði staðinn „blóðakur“. 20Spádómur Davíðs konungs í Sálmunum segir svo: „Heimili hans fari í eyði og þar skal enginn búa.“Einnig: „Öðrum skal falið að vinna hans verk.“ 21– 22Af þessum sökum verðum við að velja einhvern annan í stað Júdasar, til að vera vitni ásamt okkur um upprisu Jesú. Við skulum velja einhvern, sem hefur verið með okkur alla tíð, frá því við kynntumst Drottni fyrst – eða frá þeirri stundu er Jóhannes skírði hann og til þess dags er hann var uppnuminn frá okkur til himna.“ 23Áheyrendur tilnefndu tvo menn: Jósef Jústus (líka kallaður Barsabbas) og Mattías. 24– 25Síðan báðu þeir Guð að rétti maðurinn yrði valinn. „Ó, Drottinn,“sögðu þeir, „þú þekkir hjörtu allra. Sýndu okkur, hvorn þessara manna þú hefur valið til postula í stað Júdasar, svikarans, sem nú er á sínum eigin stað.“ Þá vörpuðu þeir hlutkesti og kom upp hlutur Mattíasar. Hann var þar með valinn postuli ásamt hinum ellefu.
Copyright information for
IslLO