‏ Acts 18

1Eftir þetta fór Páll frá Aþenu og kom til Korintu. 2 3Þar komst hann í kynni við Akvílas, sem var Gyðingur frá Pontus. Hann var, ásamt konu sinni Priskillu, nýkominn til borgarinnar frá Ítalíu. En þaðan hafði þeim verið vísað burt samkvæmt þeirri ákvörðun Kládíusar keisara að reka alla Gyðinga frá Róm. Páll fór til þeirra og vegna þess að hann og Akvílas stunduðu sömu iðn, tjaldsaum, settist hann að hjá þeim og þeir unnu saman.

Páll verður postuli heiðingjanna

4Páll fór í samkomuhús Gyðinganna á hverjum helgidegi og reyndi að sannfæra Gyðinga og Grikki, sem þangað komu. 5Eftir að Sílas og Tímóteus komu til Korintu frá Makedóníu, varði Páll öllum tíma sínum til að predika og vitna fyrir Gyðingunum um að Jesús væri Kristur. 6En Gyðingarnir risu gegn honum og lastmæltu Jesú. Þá hristi hann rykið af fötum sínum og sagði: „Þið berið ábyrgð á þessari ákvörðun ykkar – ég er saklaus og héðan í frá mun ég predika hjá heiðingjunum.“

7Eftir þetta dvaldist hann hjá manni að nafni Títus Jústus. Hann var ekki Gyðingur, en tilbað þó Guð. Heimili hans var í næsta húsi við samkomuhús Gyðinga. 8Svo fór þó að lokum að Krispus, stjórnandi samkomuhússins, tók trú á Drottin, og allt hans heimafólk. Var hann skírður, auk margra annarra Korintubúa

9Nótt eina talaði Drottinn til Páls í draumi og sagði: „Vertu ekki hræddur! Þú átt ekki að þegja heldur tala! 10Ég er með þér og enginn getur gert þér mein, því að ég á margt fólk í þessari borg.“ 11Þarna dvaldist Páll í hálft annað ár og fræddi fólkið í orði Guðs.

12Þegar Gallíón varð landstjóri í Akkeu, sameinuðust Gyðingarnir gegn Páli og drógu hann fyrir landstjórann, til þess að fá hann dæmdan. 13Þeir ákærðu Pál fyrir að hvetja menn til að tilbiðja Guð á annan hátt en rómversk lög leyfðu. 14En rétt í því er Páll ætlaði að fara að verja mál sitt, sneri Gallíón sér að ákærendum hans og sagði: „Takið eftir, Gyðingar! Ef þessi málshöfðun væri vegna einhvers glæpsamlegs athæfis, þá væri ég skyldugur að hlusta á ykkur. 15En fyrst þetta er aðeins þras um merkingu og túlkun ýmissa orða í ykkar heimskulegu lögum, þá er það ykkar mál. Ég kem ekki nálægt slíku!“ 16Síðan rak hann þá alla út úr réttarsalnum.

17Þá réðist múgurinn á Sósþenes, nýja samkomuhússtjórann, og barði hann fyrir utan réttarsalinn, en Gallíón gaf því engan gaum.

18Eftir þetta dvaldist Páll enn nokkra daga í borginni. Síðan kvaddi hann hina kristnu og sigldi til Sýrlands ásamt Priskillu og Akvílasi. Í Kenkreu lét Páll klippa sig að sið Gyðinga – var það vegna þess heits sem hann hafði gefið. 19Þegar komið var til hafnar í Efesus skildi hann okkur eftir um borð, en fór sjálfur í land til að ræða við Gyðinga í samkomuhúsi þeirra. 20Þeir báðu hann að staldra við nokkra daga, en hann sagðist engan tíma hafa.

21„Ég má til með að komast til Jerúsalem á hátíðina,“sagði hann, en hann lofaði þeim að koma seinna, ef Guð leyfði. Síðan sigldum við aftur af stað.

22Næsti viðkomustaður var Sesarea. Þaðan fór hann í heimsókn til safnaðarins í Jerúsalem en síðan var siglt til Antíokkíu. 23Þegar hann hafði dvalist þar um hríð, fór hann aftur til Litlu-Asíu. Hann ferðaðist um Galatíu og Frýgíu, heimsótti þar kristna söfnuði og uppörvaði þá.

24Um þessar mundir var Gyðingur einn, Apollós að nafni, nýkominn til Efesus frá Alexandríu í Egyptalandi. Hann var mjög Biblíufróður og sannfærandi predikari. 25 26Hann hafði fengið fræðslu um trúna, var brennandi af áhuga og kenndi í krafti heilags anda um Jesú, en þekkti þó aðeins skírn Jóhannesar. Hann predikaði djarflega og af miklum áhuga í samkomuhúsinu. Eitt sinn voru Priskilla og Akvílas stödd þar þegar Apollós var að predika og það var kröftug ræða. Að ræðunni lokinni töluðu þau við hann og skýrðu enn rækilegar fyrir honum trúna á Drottin.

27Apollós hafði áhuga á að fara til Grikklands og þegar hinir trúuðu fréttu það, hvöttu þeir hann eindregið. Þeir skrifuðu bréf til þeirra sem þar voru kristnir og báðu þá að taka vel á móti honum. Þegar hann kom til Grikklands notaði Guð hann til mikils gagns í söfnuðunum. 28Í opinberum rökræðum gerði hann alla Gyðinga orðlausa og sannaði út frá Gamla testamentinu að Jesús væri Kristur.
Copyright information for IslLO