Colossians 4
1Þrælaeigendur! Verið sanngjarnir og heiðarlegir við þræla ykkar. Munið að þið hafið sjálfir húsbónda á himnum sem fylgist vel með ykkur. 2Þreytist ekki á að biðja en haldið því áfram uns þið fáið svar frá Guði og gleymið þá ekki að þakka honum. 3Gleymið ekki heldur að biðja fyrir okkur, að Guð gefi mörg tækifæri til að boða fagnaðarerindið um Krist, en þess vegna er ég í fangelsi. 4Biðjið þess að ég fái djörfung til að tala opinskátt, óhindrað og á einfaldan hátt, eins og mér ber að gera. 5Umgangist viturlega þá sem ekki trúa og notið sérhvert tækifæri til að boða þeim fagnaðarerindið. 6Verið nærgætin en markviss í samtölum ykkar við fólk, svo að þið getið gefið því rétt svör við spurningum þess.Kveðjur
7Týkíkus, okkar heittelskaði bróðir, mun segja ykkur allt sem er að frétta af mér. Hann er duglegur samstarfsmaður í þjónustu Drottins. 8Það var ég sem sendi hann í þessa ferð, vegna þess að mig langaði að fá að vita hvernig ykkur liði og einnig að hugga ykkur og uppörva. 9Ég sendi einnig Onesímus, kæran og trúan bróður, en hann er einn af ykkur. Hann og Týkíkus munu segja ykkur allar nýjustu fréttir héðan. 10Aristarkus er hér í fangelsinu ásamt mér. Hann sendir ykkur kæra kveðju og einnig Markús, en hann er ættingi Barnabasar. Eins og ég hef áður sagt, bið ég ykkur að taka sérlega vel á móti honum, ef hann kemur við hjá ykkur. 11Júdas Jústus sendir einnig kæra kveðju. Þetta eru einu kristnu Gyðingarnir sem starfa hér með mér og þeir hafa sannarlega uppörvað mig. 12Epafras, þjónn Jesú Krists – hann er frá Kólossu eins og þið – sendir ykkur kærar kveðjur. Hann biður Guð að styrkja ykkur og fullkomna og sýna ykkur vilja sinn í öllu. 13Það segi ég satt, að hann hefur barist fyrir ykkur í bænum sínum og þeim í Laodíkeu og Híerapólis. 14Lúkas, læknirinn kæri, sendir innilega kveðju og sömuleiðis Demas. 15Viljið þið skila kveðju frá mér til kristnu vinanna í Laodíkeu og einnig til Nýmfu og þeirra sem koma saman á heimili hennar. 16Þegar þið hafið lesið þetta bréf, þá sendið það til safnaðarins í Laodíkeu. Þið ættuð svo að lesa bréfið sem ég sendi þeim. 17Segið við Arkippus: „Gættu þess að vinna vel það verk sem Drottinn hefur falið þér.“ 18Ég rita kveðju mína með eigin hendi. Minnist þess að ég er fangi. Blessun Guðs umvefji ykkur! Páll
Copyright information for
IslLO