‏ Ephesians 2

Þá – og nú

1Áður voruð þið undir bölvun Guðs – þið voruð dauðadæmd vegna synda ykkar. 2Þið bárust með straumnum og voruð eins og allir aðrir, bundin af synd og hlýðni við hinn volduga Satan, hinn volduga, sem ríkir í andaheiminum og starfar í þeim sem ekki trúa á Drottin. 3Þannig var eitt sinn ástatt um okkur öll. Við létum stjórnast af illum hvötum, og gerðum allt það sem eigingirni okkar og vondar hugsanir leiddu okkur til – við gerðum bara eins og okkur sýndist. Þess vegna beið okkar ekki annað en dómur Guðs. Við vorum ofurseld reiði Guðs, eins og allir sem þannig er ástatt um.

4En Guð er svo sannarlega auðugur að miskunn. 5Þótt við værum andlega dauð og dæmd vegna synda okkar, elskaði hann okkur svo heitt að hann gaf okkur lífið á ný – það gerði hann þegar hann reisti Krist upp frá dauðum. Það er aðeins óverðskuldaðri miskunn hans að þakka að við höfum bjargast. 6Hann vakti okkur til nýs lífs með Kristi, flutti okkur inn í ríki hans og bjó okkur stað með honum í hinu himneska ríki – allt árangur af verki Jesú Krists. 7Til þess að við gætum borið vitni um óendanlegan kærleika hans, sem birtist í öllu því sem hann hefur gert fyrir okkur.

8Það var miskunn Guðs að þakka að þið frelsuðust, með því að trúa á Krist. Trú ykkar er ekki ykkur að þakka, hún er líka gjöf frá Guði. 9Hjálpræði Guðs er ekki laun fyrir góðverk ykkar og þess vegna getur heldur enginn þakkað sjálfum sér það. 10Guð einn hefur gert okkur að því sem við erum og gefið okkur nýtt líf í Kristi Jesú, og hann ákvað fyrir löngu að þetta nýja líf skyldum við nota öðrum til hjálpar.

11Því skuluð þið ekki gleyma að eitt sinn voruð þið heiðingjar og Gyðingarnir kölluðu ykkur guðlaus og „óhrein“. (Hjörtu þeirra voru reyndar líka óhrein, enda þótt þeir hefðu haldið fast við allar sínar trúarvenjur og látið umskera sig sem tákn um guðrækni.) 12Minnist þess að á þeim tíma þekktuð þið alls ekki Krist, þið voru óvinir þeirra sem tilheyra Guði og vissuð ekki að Guð vildi hjálpa ykkur. Þið voru glötuð, guðvana og vonlaus.

Kristur brúaði bilið

13Nú tilheyrið þið Kristi Jesú! Þótt þið væruð áður fyrr langt frá Guði, eruð þið nálæg honum nú. Allt er það því að þakka, sem Jesús Kristur gerði fyrir ykkur með dauða sínum.

14Jesús Kristur veitir okkur frið, og enginn annar. Hann hefur komið á friði milli okkar sem erum Gyðingar, og ykkar heiðingjanna, með því að gera okkur öll að einni fjölskyldu og brjóta niður vegginn, sem hafði aðskilið okkur svo lengi. 15Með dauða sínum batt hann enda á þann bitra fjandskap sem var okkar á milli vegna lögmáls Gyðinganna. Lögin veittu Gyðingunum sérstöðu, en útilokuðu heiðingjana. Jesús dó til að binda enda á þetta lagakerfi Gyðinga. Eftir það sameinaði hann þessa tvo andstöðuhópa, með því að sameina þá sjálfum sér. Hann sameinaði okkur, svo að við urðum öll eitt. Hann gerði okkur að nýjum mönnum og þá loks komst friður á. 16Af því að við erum nú limir á sama líkama, getum við ekki lengur borið kala hvert til annars, því að við höfum sæst við Guð. Þessari deilu lauk á krossinum. 17Síðan boðaði Guð okkur friðinn – ykkur heiðingjunum sem voruð svo fjarri honum og einnig okkur Gyðingunum sem stóðum nær. 18Nú eigum við öll, hvort sem við erum Gyðingar eða heiðingjar, aðgang að Guði föður með hjálp heilags anda, vegna þess sem Kristur hefur gert fyrir okkur.

19Nú eruð þið ekki lengur ókunnug Guði og himinninn ekki framandi land. Nú eruð þið meðlimir í fjölskyldu Guðs. Þið eruð ríkisborgarar og heimamenn í landi hans, ásamt öllum öðrum sem kristnir eru. 20Þið eruð eins og bygging sem stendur á grunni postulanna og spámannanna, en hornsteinn byggingarinnar er sjálfur Kristur Jesús. 21Hann tengir okkur öll, sem trúum, saman og lætur okkur vaxa og styrkjast sem fagran helgidóm Guðs. 22Já, þið eruð líka, Krists vegna, bústaður fyrir anda Guðs.
Copyright information for IslLO