Ephesians 5
Reynið að þóknast Guði
1Takið Guð til fyrirmyndar í öllu, eins og barn sem elskar föður sinn og hlýðir honum. 2Lifið í kærleika og fylgið þannig fordæmi Krists, sem elskaði ykkur og fórnaði sjálfum sér frammi fyrir Guði til að taka burt syndir ykkar. Kærleikur Krists til ykkar var Guði mjög að skapi, rétt eins og sætur ilmur. 3Lauslæti, óhreinleiki eða ágirnd á ekki að nefnast á nafn á meðal ykkar. 4Klúrar sögur, heimskulegt tal og grófir brandarar – slíkt hæfir ykkur ekki. Í stað þess skuluð þið minna hvert annað á gæsku Guðs og verið þakklát. 5Eitt getið þið verið viss um: Sá sem er lauslátur og lifir í óhreinleika og ágirnd mun ekki fá inngöngu í ríki Krists og Guðs. Hinn ágjarni er í raun og veru hjáguðadýrkandi – hann elskar og tignar lífsgæðin í stað Guðs. 6Látið ekki blekkjast af þeim sem afsaka þessar syndir, því að reiði Guðs kemur yfir alla sem þær drýgja. 7Hafið ekkert samband við slíkt fólk, 8því að þótt myrkrið hafi eitt sinn ríkt í hjörtum ykkar, þá eru þau nú böðuð ljósi Drottins. Líferni ykkar ætti að bera því gleggstan vott! 9Í ljósi Drottins eflist góðvild, réttlæti og sannleikur. 10Reynið að skilja hver er vilji Drottins. 11Takið engan þátt í því sem illt er – verkum myrkursins, þau leiða aðeins til spillingar. Bendið heldur á þau og flettið ofan af þeim. 12Það sem hinir óguðlegu leggja stund á í leyndum, er svo svívirðilegt, að mér er jafnvel ómögulegt að nefna það á nafn! 13Þegar þið flettið ofan af þessum hlutum, skín ljósið á syndir þeirra og þær verða augljósar. En þegar þeir sem þannig lifa, sjá hve illa þeir eru á vegi staddir, snúa sumir þeirra sér ef til vill til Guðs og verða börn ljóssins. 14Um þetta segir Guðs orð: „Vakna þú sem sefur og rís upp frá dauðum og þá mun Kristur lýsa þér.“ 15– 16Gætið vel að hegðun ykkar, því við lifum á erfiðum tímum. Verið ekki óskynsöm, heldur skynsöm! Notið til fullnustu hvert það tækifæri sem þið fáið til að gera hið góða. 17Gerið ekkert í hugsunarleysi en reynið að skilja hver er vilji Drottins og framkvæmið hann. 18Drekkið ykkur ekki drukkin af víni, því að drykkjuskapur leiðir aðeins til ills, fyllist heldur heilögum anda og látið stjórnast af honum. 19Ræðið saman um Drottin, vitnið í sálma og söngva, syngið andlega söngva. Syngið og leikið Drottni lof í hjörtum ykkar 20og þakkið Guði föður fyrir alla hluti í nafni Drottins Jesú Krists.Reglur fyrir hamingjusamt heimili
21Verið hvert öðru undirgefin, slíkt hugarfar er Drottni velþóknanlegt. 22Eiginkonur, lútið eiginmönnum ykkar eins og um Drottin væri að ræða. 23Eiginmaður ber ábyrgð á konu sinni, á sama hátt og Kristur ber ábyrgð á líkama sínum, kirkjunni, en hann gaf líf sitt til að vernda hana og frelsa. 24Eiginkonur, lútið mönnum ykkar í öllu og það fúslega, á sama hátt og söfnuðurinn er undirgefinn Kristi. 25Eiginmenn! Sýnið konum ykkar sömu ást og umhyggju og Kristur söfnuðinum, þegar hann dó fyrir hann, 26til að helga, hreinsa og þvo hann í skírninni og orði Guðs. 27Þetta gerði hann til að geta leitt til sín fullkominn söfnuð, án bletts eða hrukku, heilagan og lýtalausan. 28Á sama hátt eiga eiginmenn að koma fram við konur sínar. Þeir eiga að elska þær sem hluta af sjálfum sér. Fyrst eiginmaðurinn og eiginkonan eru eitt, þá er maðurinn í raun og veru að gera sjálfum sér greiða og elska sjálfan sig, þegar hann elskar eiginkonu sína! 29– 30Enginn hatar sinn eigin líkama, heldur gæta menn hans af mikilli umhyggju. Eins er með Krist, hann gætir líkama síns, safnaðarins, en við erum hvert um sig limir á þeim líkama. 31Biblían sýnir ljóslega með eftirfarandi orðum að eiginmaður og eiginkona séu einn líkami: „Þegar maðurinn giftist verður hann að yfirgefa föður sinn og móður, svo að hann geti að fullu og öllu sameinast konunni og þau tvö orðið eitt.“ 32Ég veit að þetta er torskilið, en sambandið milli Krists og safnaðar hans hjálpar okkur þó að skilja það. 33Ég endurtek því: Maðurinn verður að elska konu sína sem hluta af sjálfum sér og konan verður að gæta þess að heiðra mann sinn og hlýða honum.
Copyright information for
IslLO