‏ Galatians 1

1Frá Páli, boðbera Krists, og öðrum kristnum mönnum sem hér eru.

2Til safnaðanna í Galatalandi.

Köllun mína til kristniboðs fékk ég ekki frá hópi manna eða félagi, heldur frá Kristi Jesú sjálfum og Guði föður sem reisti Krist upp frá dauðum.
3Friður og blessun Guðs föður og Drottins Jesú Krists sé með ykkur. 4Kristur dó fyrir syndir okkar eins og Guð faðir hafði ætlast til, og frelsaði okkur frá öllu því illa sem ræður ríkjum í þessum heimi. 5Dýrð sé Guði um aldir alda. Amen.

Ekkert annað fagnaðarerindi

6Ég undrast hve fljótt þið hafið snúið ykkur frá Guði, sem af kærleika sínum og miskunn bauð ykkur hlut í eilífa lífinu, sem hann gefur í Kristi. Þið eruð strax komin út á annan „veg til himins“, – veg sem hreint ekki liggur til himins! 7Það er ekki um neina aðra leið að ræða en þá sem við bentum ykkur á. Þið hafið látið blekkjast af þeim sem rangsnúa sannleikanum um Krist.

8Ef einhver boðar aðra leið til Guðs en þá sem við boðuðum ykkur, þá sé hann bölvaður, jafnvel þótt það væri ég eða engill frá himni. 9Ég endurtek: Ef einhver boðar annað fagnaðarerindi en það sem þið hafið tekið á móti, þá komi bölvun Guðs yfir hann.

10Ykkur er ljóst að ég er ekki að reyna að þóknast ykkur með fagurgala og smjaðri. Nei, ég reyni að þóknast Guði. Ef ég væri enn að reyna að þóknast mönnum, þá gæti ég ekki verið þjónn Krists.

11Kæru vinir, sú leið til himins, sem ég predika, er ekki byggð á hugmyndum eða óskhyggju manna. 12Boðskapur minn er frá sjálfum Kristi Jesú og engum öðrum! Það var hann sem lagði mér orð í munn. Hann einn uppfræddi mig.

13Þið vitið hvernig ég var meðan ég var í Gyðingdómnum. Ég elti hina kristnu miskunnarlaust, kom þeim á kné og gerði mitt besta til að útrýma þeim. 14Ég var einn trúhneigðasti Gyðingur landsins og reyndi eins og ég gat að fara eftir öllum gömlu siðareglum trúar minnar.

15En skyndilega breyttist allt! Sannleikurinn er sá, að áður en ég fæddist, hafði Guð af miskunn sinni útvalið mig sér til eignar. 16Síðan kallaði hann mig, því hann ætlaði mér að bera syni sínum vitni meðal heiðingjanna og kynna þeim gleðitíðindin um Jesú.

Fyrst í stað sagði ég engum frá þessu.
17Ég fór ekki til Jerúsalem til að ráðgast við þá sem höfðu orðið postular á undan mér, heldur fór ég til Arabíu. Síðan fór ég aftur til Damaskus. 18Og loks þrem árum síðar fór ég til Jerúsalem til að heimsækja Pétur og dvaldist hjá honum í fimmtán daga. 19Ég hitti aðeins einn annan postula, Jakob, bróður Drottins. 20Þetta sem ég nú hef sagt ykkur er satt, það veit Guð. Þannig var þetta nákvæmlega, ég lýg ekki. 21Eftir þessa heimsókn fór ég til Sýrlands og Kilikíu. 22Hinir kristnu í Júdeu þekktu mig ekki persónulega. 23Allt sem þeir vissu um mig, voru þessi ummæli: „Sá sem áður ofsótti, boðar nú trúna.“ 24Og þeir lofuðu Guð vegna mín.
Copyright information for IslLO