Hebrews 13
Hvatningarorð og kveðjur
1Haldið áfram að elska hvert annað með fórnfúsum kærleika. 2Gleymið ekki gestrisninni því að sumir hafa, óafvitandi, tekið á móti englum. 3Gleymið ekki föngunum, heldur takið þátt í þjáningum þeirra eins og þið sjálf væruð í þeirra sporum. Samhryggist þeim sem illt þola, því að sjálf hafið þið líkama. 4Hjónabandið sé í heiðri haft og öll þau heit sem því fylgja. Lifið siðferðislega hreinu lífi, því að Guð mun sannarlega refsa öllum sem lifa í siðleysi og drýgja hór. 5Varist alla ágirnd og látið ykkur nægja það sem þið hafið. Guð hefur sagt: „Ég mun aldrei, aldrei bregðast þér né yfirgefa þig.“ 6Við getum því sagt, óttalaust og án efasemda: „Drottinn hjálpar mér og því óttast ég hvorki mennina né verk þeirra.“ 7Minnist leiðtoga ykkar, sem hafa frætt ykkur um orð Guðs. Hugsið um allt hið góða, sem þeir komu til leiðar, og reynið að treysta Drottni á sama hátt og þeir. 8Jesús Kristur er hinn sami í gær og í dag og að eilífu. 9Látið því engar nýjar og framandi kenningar hafa áhrif á ykkur. Styrkur ykkar kemur frá Guði, en ekki vissum reglum um mataræði – sú leið hefur reynst gagnslaus þeim er hana fóru. 10Við höfum okkar altari – kross Krists – en það kemur þeim ekki að gagni, sem reyna að frelsast með hlýðni við lög Gyðinga. 11Samkvæmt lögum Gyðinga, bar æðsti presturinn blóðið úr fórnardýrunum inn í helgidóminn – hið allra helgasta – sem syndafórn, og síðan voru hræin af þeim brennd fyrir utan borgina. 12Þetta skýrir hvers vegna Jesús þjáðist og dó fyrir utan borgina. Þar afmáði hann syndir okkar með blóði sínu. 13Göngum því út til hans, út fyrir borgina (það er að segja snúum baki við því sem heimurinn hefur mætur á og verum reiðubúin að þola fyrirlitningu) til að þjást þar með honum og bera smán hans. 14Við erum aðeins gestir á þessari jörð, sem horfa fram á veginn til himins, því að þar munum við eiga heima að eilífu. 15Með hjálp Jesú munum við enn bera lofgjörðarfórn fram fyrir Guð, með því að játa nafn hans meðal fólksins. 16Gleymið ekki að gera öðrum gott og deila eigum ykkar með þeim sem þurfandi eru, slíkar fórnir eru Guði mjög að skapi. 17Hlýðið ykkar andlegu leiðtogum með glöðu geði. Hlutverk þeirra er að vaka yfir sálum ykkar og Guð mun dæma þá eftir gerðum þeirra. Stuðlið að því að þeir geti minnst ykkar með gleði frammi fyrir Drottni, en ekki með hryggð, því að það yrði ykkur til ógagns. 18Biðjið fyrir okkur að við höfum góða samvisku og breytum vel í öllum hlutum. 19Ég þarfnast fyrirbæna ykkar á sérstakan hátt, einmitt nú, til þess að ég geti komist til ykkar sem fyrst. 20– 21Guð friðarins, sem vakti Drottin Jesú upp frá dauðum, annist allar þarfir ykkar, svo að þið getið gert vilja hans. Ég bið hann, hinn mikla hirði sauðanna, sem undirritaði eilífan sáttmála milli ykkar og Guðs með blóði sínu, að hann fullkomni ykkur í öllu góðu fyrir kraft Krists, svo að þið gerið hans vilja og séuð honum þóknanleg. Honum sé dýrðin að eilífu. Amen. 22Vinir, ég bið ykkur að lokum að fara eftir því sem ég hef sagt í þessu bréfi. Það er ekki langt og ætti því að vera fljótlesið. 23Ég vil gjarnan að þið vitið að bróðir Tímóteus er laus úr fangelsinu. Ef hann kemur hingað bráðlega, munum við verða samferða til ykkar. 24– 25Skilið kveðjum frá mér til leiðtoga ykkar og annarra trúaðra. Mennirnir frá Ítalíu, sem hér eru ásamt mér, senda ykkur kærar kveðjur. Náð Guðs sé með ykkur öllum. Amen.
Copyright information for
IslLO