John 10
Ég er góði hirðirinn
1„Sá sem ekki vill ganga inn um dyrnar til að komast inn í sauðabyrgið, heldur klifrar yfir vegginn, hlýtur að vera þjófur. 2Hirðirinn kemur alltaf inn um dyrnar. 3Dyravörðurinn opnar fyrir honum og sauðirnir heyra rödd hans og koma til hans. Síðan kallar hann á sauðina með nafni og fer út með þá. 4Hann gengur á undan þeim og þeir fylgja honum, því að þeir þekkja rödd hans. 5Ókunnugum fylgja þeir ekki, heldur forðast þá, því að þeir þekkja ekki rödd þeirra.“ 6Þeir sem heyrðu Jesú segja þessa dæmisögu skildu hana ekki, 7og því útskýrði hann hana fyrir þeim: „Ég er dyr sauðanna,“sagði hann. 8„Allir sem komu á undan mér voru þjófar og ræningjar og sauðirnir hlýddu þeim ekki. 9Ég er dyrnar. Þeir sem koma inn um mig munu frelsast, ganga inn og út og fá gott fóður. 10Þjófurinn ætlar sér að stela; drepa og eyðileggja, en ég kom til að veita líf og nægtir. 11Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. 12Þegar leiguliðinn sér úlfinn koma, þá flýr hann og yfirgefur sauðina, því að hann á þá ekki. Og úlfurinn ræðst á hjörðina og hún tvístrast. 13Þá flýr leiguliðinn, því að hann hugsar aðeins um launin, en honum er ekki annt um hjörðina. 14Ég er góði hirðirinn og þekki mína og þeir þekkja mig, 15rétt eins og faðirinn þekkir mig og ég föðurinn. Ég fórna lífi mínu fyrir sauðina. 16Ég á líka aðra sauði í annarri rétt. Ég verð einnig að leiða þá og þeir munu hlýða rödd minni, það verður ein hjörð og einn hirðir. 17Faðirinn elskar mig vegna þess að ég legg líf mitt í sölurnar til þess síðan að fá það aftur. 18Enginn getur tekið líf mitt án míns samþykkis – ég legg það sjálfviljuglega í sölurnar. Ég hef vald til að gefa það þegar ég vil og ég hef einnig vald til að taka það aftur. Þennan rétt hefur faðir minn gefið mér.“ 19Við þessi orð Jesú urðu leiðtogar Gyðinganna enn einu sinni ósammála í skoðunum sínum um hann. 20Sumir þeirra sögðu: „Annað hvort hefur hann illan anda eða er brjálaður. Hvað þýðir að hlusta á slíkan mann?“ 21Aðrir sögðu: „Okkur virðist hann ekki hafa illan anda. Getur illur andi opnað augu blindra?“–„Segðu það hreinskilnislega“
22– 23Nú var vetur og Jesús var í Jerúsalem á vígsluhátíðinni. Hann var á gangi í súlnagöngum Salómons í musterinu. 24Þá umkringdu leiðtogar þjóðarinnar hann og spurðu: „Hversu lengi ætlar þú að halda okkur í óvissu? Ef þú ert Kristur, segðu okkur það þá hreinskilnislega.“ 25„Ég hef þegar sagt ykkur það,“svaraði Jesús, „en þið trúið mér ekki. Kraftaverkin, sem ég geri í nafni föður míns, bera mér vitni. 26Þið trúið mér ekki af því að þið tilheyrið ekki minni hjörð. 27Mínir sauðir þekkja mína rödd og ég þekki þá og þeir fylgja mér. 28Ég gef þeim eilíft líf og þeir munu aldrei að eilífu glatast. Enginn skal slíta þá úr hendi minni, 29því faðir minn, sem hefur gefið mér þá, er máttugri en nokkur annar. Enginn skal ræna þeim frá mér. 30Ég og faðirinn erum eitt.“ 31Þegar leiðtogarnir heyrðu þetta tóku þeir enn einu sinni upp steina til að grýta hann. 32Þá sagði Jesús: „Mörg góðverk sýndi ég ykkur frá Guði, fyrir hvert þeirra grýtið þið mig nú?“ 33„Við grýtum þig ekki fyrir góðverk, heldur guðlast,“svöruðu þeir. „Þú, sem ert bara venjulegur maður, segist vera Guð!“ 34– 35– 36 ▼▼Texti vers(s) 36 hefur verið sameinaður þessu versi.
▼▼Texti vers(s) 36 hefur verið sameinaður þessu versi.
„Stendur ekki í lögmálinu að menn séu guðir?“svaraði Jesús. „Fyrst Biblían, sem ekki getur farið með ósannindi, segir að þeir sem fengu boðskap frá Guði séu guðir í augum manna, hvernig getið þið þá kallað það guðlast þegar sá sem faðirinn helgaði og sendi í heiminn, segir: „Ég er sonur Guðs?“ 37Þið trúið mér ekki nema ég geri guðdómleg kraftaverk, 38en reynið þá að trúa þeim, þótt þið trúið mér ekki, og sannfærist um að faðirinn sé í mér og ég í föðurnum.“ 39Þegar þeir heyrðu þetta reyndu þeir aftur að handtaka hann en misstu af honum. 40– 41Jesús fór austur yfir Jórdan, til staðarins þar sem Jóhannes skírði fyrst. Þar dvaldist hann og margir komu til hans. „Jóhannes gerði að vísu engin kraftaverk,“sagði fólkið sín á milli, „en allir spádómar hans um þennan mann hafa ræst.“ 42Þarna gerðust margir trúaðir á að Jesús væri Kristur.
Copyright information for
IslLO