‏ John 14

1„Látið ekki óttann ná tökum á ykkur. Treystið Guði og treystið mér. 2 3Heima hjá föður mínum eru margar vistarverur og ég ætla að búa þær undir komu ykkar. Þegar allt er reiðubúið, kem ég aftur og sæki ykkur, svo að þið getið verið hjá mér alla tíð. Ef þessu væri öðruvísi varið, hefði ég sagt ykkur það. 4En nú vitið þið hvert ég fer og hvernig á að komast þangað.“

5„Nei, það vitum við ekki,“sagði Tómas. „Við höfum ekki hugmynd um hvert þú ætlar, og hvernig ættum við þá að rata þangað?“

6Jesús svaraði: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemst til föðurins nema hann trúi á mig. 7Ef þið hafið þekkt mig, þá þekkið þið einnig föður minn. Héðan í frá þekkið þið hann og hafið þegar séð hann.“

8„Herra,“sagði Filippus, „sýndu okkur föðurinn og það nægir okkur.“

9„Filippus,“svaraði Jesús, „þekkir þú mig ekki enn, eftir allan þennan tíma sem við höfum verið saman? Sá sem hefur séð mig, hefur séð föðurinn. Hvers vegna biður þú þá um að fá að sjá hann? 10Trúir þú ekki að ég sé í föðurnum og faðirinn í mér? Það sem ég segi, er ekki frá eigin brjósti, heldur frá föðurnum sem í mér er og vinnur verk sitt í gegnum mig. 11Trúið þessu: Ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Ef þið eigið erfitt með að trúa því, þá minnist allra kraftaverkanna sem þið hafið séð mig gera.

12 13Ég segi ykkur satt: Sá sem á mig trúir, mun gera sömu kraftaverk og þau sem ég gerði, og jafnvel enn meiri, því að ég fer til föðurins. Hvað sem þið biðjið föðurinn um, mun ég gera ef þið biðjið hann um það í mínu nafni. Allt það sem ég, sonurinn, geri fyrir ykkur, verður föður mínum til vegsemdar. 14Biðjið um hvað sem þið viljið og notið nafn mitt, og þá mun ég svara bæn ykkar.

Fyrirheitið um heilagan anda

15 16Ef þið elskið mig, hlýðið þá orðum mínum. Ég mun biðja föðurinn og hann mun gefa ykkur annan hjálpara, sem aldrei yfirgefur ykkur. 17Þessi hjálpari er heilagur andi. Andinn sem leiðir menn í allan sannleikann. Heimurinn getur ekki tekið á móti honum, því heimurinn leitar hans ekki og þekkir hann ekki heldur. En þið þekkið hann, því að hann lifir í ykkur og er með ykkur. 18Ég mun ekki sleppa af ykkur hendinni né skilja ykkur eina eftir; ég kem til ykkar. 19Innan skamms yfirgef ég þennan heim en ég verð samt með ykkur, því að ég lifi og þið munuð lifa. 20Þegar ég er risinn upp frá dauðum, munuð þið skilja að ég er í föður mínum, þið í mér, og ég í ykkur. 21Sá sem hlýðir mér, elskar mig og vegna þess að hann elskar mig, mun faðir minn elska hann, og ég mun elska hann og sjálfur birtast honum.“

22Júdas (ekki Júdas Ískaríot, heldur nafni hans) sagði þá við hann: „Herra, hvers vegna vilt þú einungis opinbera þig fyrir okkur, lærisveinunum, en ekki fyrir heiminum?“

23„Vegna þess að ég vil aðeins opinbera mig þeim sem elska mig og hlýða mér,“svaraði Jesús. Síðan bætti hann við: „Faðirinn mun einnig elska þá og við munum koma til þeirra og búa hjá þeim. 24Sá sem óhlýðnast mér, sýnir þar með að hann elskar mig ekki. Takið eftir, að þetta svar við spurningu ykkar er ekki mitt svar, heldur föðurins sem sendi mig. 25Þetta segi ég ykkur nú meðan ég er hjá ykkur. 26En þegar faðirinn sendir ykkur hjálparann í minn stað – og þegar ég tala um hjálparann, þá á ég við heilagan anda – þá mun hann, andinn, fræða ykkur um margt og minna ykkur á allt sem ég hef sagt ykkur.

27Frið skil ég eftir hjá ykkur, minn frið gef ég ykkur. Minn friður er ekki hverfull eins og sá friður sem heimurinn gefur, verið því hvorki kvíðafullir né hræddir. 28Minnist orða minna: Ég fer burt, en ég kem aftur til ykkar. Ef þið elskið mig í raun og veru, þá samgleðjist þið mér, því nú fæ ég að fara til föðurins, hans sem mér er æðri. 29Þetta segi ég ykkur fyrir fram, svo að þið trúið, þegar það gerist.

30Tíminn sem ég hef til að ræða þetta við ykkur styttist óðum, því að hinn illi höfðingi þessa heims er á næsta leiti. Hann hefur ekki vald yfir mér, 31en ég vil gera vilja föðurins, svo að heimurinn fái að vita að ég elska föðurinn. Standið upp, við skulum fara.“
Copyright information for IslLO