‏ John 17

Jesús biður fyrir fylgjendum sínum

1Að svo mæltu leit Jesús til himins og sagði: „Faðir, stundin er komin. Gerðu nú son þinn dýrlegan, svo að hann geti vegsamað þig. 2Þú hefur gefið honum vald yfir sérhverjum manni á þessari jörð. Öllum þeim, sem þú hefur gefið mér, hef ég gefið eilíft líf. 3Eilíft líf er það að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. 4Ég vegsamaði þig hér á jörðinni, með því að gera allt sem þú bauðst mér. 5Faðir, þegar ég stend frammi fyrir þér, veittu mér þá hlut í dýrðinni, sem við áttum saman áður en heimurinn varð til.

6Ég hef sagt þessum mönnum allt um þig. Þeir voru í heiminum og þú gafst mér þá. Þeir tilheyrðu þér, og þú gafst mér þá, og þeir hafa hlýðnast orðum þínum. 7Nú vita þeir að allt sem tilheyrir mér, er gjöf frá þér, 8því að fyrirmælin sem þú gafst mér, flutti ég þeim og þeir tóku við þeim. Nú vita þeir með vissu að ég kom frá þér og trúa að þú hafir sent mig.

9Ég bið ekki fyrir heiminum, heldur fyrir þeim sem þú gafst mér úr heiminum, því að þeir eru þínir. 10Og nú er ég orðinn dýrlegur í þeim. 11Nú yfirgef ég þennan heim og ég skil þá eftir og kem til þín. Heilagi faðir, varðveittu alla þá sem þú hefur gefið mér, svo þeir séu sameinaðir, rétt eins og við, og enginn verði þar undanskilinn. 12Þann tíma sem ég hef verið hér hef ég gætt allra þeirra sem þú gafst mér. Ég stóð vörð um þá, svo að enginn þeirra týndist, nema sá sem hlaut að glatast, eins og ritningin hafði sagt fyrir um.

13Faðir, nú kem ég til þín. Þennan tíma, sem ég hef verið með þeim, hef ég sagt þeim margt, svo að gleði mín gagntæki þá. 14Ég hef flutt þeim fyrirmæli þín. Þeir tilheyra ekki heiminum fremur en ég og þess vegna hatar heimurinn þá. 15Ekki bið ég þig að taka þá burt úr heiminum, heldur að þú varðveitir þá frá illu. 16Þeir tilheyra ekki þessum heimi frekar en ég. 17Helgaðu þá með sannleikanum, þitt orð er sannleikur. 18Ég sendi þá út í heiminn, eins og þú sendir mig í heiminn, 19og ég helga sjálfan mig, svo að þeir geti vaxið í sannleika og helgun.

20Ég bið ekki aðeins fyrir þessum mönnum, heldur einnig fyrir þeim sem síðar munu trúa á mig fyrir orð þeirra. 21Faðir, þeir eiga allir að vera eitt eins og við – þú og ég – erum eitt. Þú ert í mér og ég í þér, og þannig eiga þeir einnig að vera í okkur, til þess að heimurinn trúi að þú hafir sent mig.

22Dýrðina, sem þú gafst mér, hef ég gefið þeim – svo að þeir séu eitt eins og við – 23ég í þeim og þú í mér – allir fullkomlega sameinaðir þannig að heimurinn komist að raun um að þú hafir sent mig og sjái að þú elskar þá, jafn heitt og þú elskar mig. 24Faðir, ég vil að þeir sem þú hefur gefið mér, séu hjá mér, svo að þeir sjái dýrð mína, dýrðina sem þú af elsku þinni gafst mér, áður en heimurinn varð til. 25Réttláti faðir, heimurinn þekkir þig ekki, en ég þekki þig og þessir lærisveinar vita að þú hefur sent mig. 26Ég hef sýnt þeim þig og ég mun halda því áfram, svo að bæði ég og kærleikurinn, sem þú berð til mín, séu í þeim.“
Copyright information for IslLO