‏ Luke 1

1 2Heiðraði Þeófílus.

Nú þegar hafa verið skrifaðar allmargar frásögur um Krist, byggðar á heimildum postulanna og annarra sjónarvotta.
3En ég taldi rétt að rannsaka þessar heimildir á ný frá upphafi til enda, og nú sendi ég þér árangur þeirra nákvæmu athugana sem ég hef gert. 4Þetta geri ég til að fullvissa þig um sannleiksgildi þess sem þú hefur heyrt hjá öðrum.

Engillinn birtist Sakaría

5Frásaga mín hefst á prestinum Sakaría, sem var uppi á dögum Heródesar konungs í Júdeu. Sakaría var úr flokki Abía, en það var einn af mörgum flokkum musterisþjónanna. Elísabet, kona hans, var einnig af gyðinglegri prestaætt; afkomandi Arons. 6Þau hjón voru bæði guðrækin og leituðust við að halda boðorð Guðs óaðfinnanlega. 7Þau voru barnlaus – Elísabet gat ekki átt börn – og auk þess orðin roskin.

8 9Dag nokkurn þegar Sakaría var að sinna störfum sínum í musterinu – flokkur hans var einmitt á vakt þá vikuna – féll það í hlut hans að fara inn í musterið og brenna reykelsi frammi fyrir Drottni. 10Eins og ávallt er reykelsisfórnin fór fram, stóð fjöldi fólks fyrir utan musterið á bæn.

11 12Allt í einu sá Sakaría engil standa hægra megin við reykelsisaltarið. Honum varð hverft við og hann varð mjög hræddur. 13Engillinn sagði: „Sakaría, vertu óhræddur! Ég kem til að segja þér að Guð hefur heyrt bæn þína. Konan þín, hún Elísabet, mun fæða þér son! Þú skalt láta hann heita Jóhannes. 14Fæðing hans mun verða ykkur báðum mikið gleðiefni og margir munu samgleðjast ykkur, 15því hann á eftir að verða einn af hetjum Guðs. Hann má aldrei snerta vín né sterka drykki, en þess í stað mun hann fyllast heilögum anda, meira að segja áður en hann fæðist! 16Hann mun snúa mörgum Gyðingum til Drottins, Guðs þeirra. 17Hann verður mikilmenni og máttugur eins og Elía, hinn forni spámaður. Hann mun koma á undan Kristi, búa fólkið undir komu hans og kenna því að elska Drottin eins og forfeður þess gerðu, og lifa sem trúað fólk.“ 18Þá sagði Sakaría við engilinn: „Já, en þetta er útilokað! Ég er orðinn gamall og konan mín líka.“ 19Engillinn svaraði: „Ég er Gabríel! Ég stend frammi fyrir hásæti Guðs, sem sendi mig til að flytja þér þessar góðu fréttir 20En fyrst þú trúðir mér ekki, munt þú verða mállaus þangað til barnið er fætt. Ég ábyrgist að orð mín munu rætast á sínum tíma.“

21Fólkið beið eftir Sakaría og undraðist hve honum dvaldist í musterinu. 22Þegar hann kom út, gat hann ekkert sagt, og fólkið skildi af látbragði hans að hann hlyti að hafa séð sýn inni í musterinu. 23Eftir þetta dvaldist hann í musterinu sinn tíma og fór síðan heim. 24Stuttu síðar varð Elísabet kona hans þunguð en hún leyndi því fyrstu fimm mánuðina.

25„En hvað Drottinn er góður að leysa mig undan þeirri skömm að geta ekki átt barn!“hrópaði hún.

Fæðing Jesú sögð fyrir

26 27Mánuði síðar sendi Guð engilinn Gabríel til meyjar sem María hét og bjó í þorpinu Nasaret í Galíleu. Hún var trúlofuð manni að nafni Jósef og var hann af ætt Davíðs konungs. 28Gabríel birtist henni og sagði: „Sæl, þú hin útvalda! Drottinn er með þér!“

29María varð undrandi og reyndi að skilja hvað engillinn ætti við. 30„Vertu ekki hrædd, María,“sagði engillinn, „Guð ætlar að blessa þig ríkulega. 31Innan skamms munt þú verða barnshafandi og eignast dreng, sem þú skalt nefna Jesú. 32Hann mun verða mikill og kallast sonur Guðs. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs konungs, ættföður hans, 33og hann mun ríkja yfir Ísrael að eilífu. Á ríki hans mun enginn endir verða!“

34„Hvernig má það vera?“spurði María, „ég hef ekki karlmanns kennt.“ 35Engillinn svaraði: „Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur Guðs mun umlykja þig, barnið þitt verður því heilagt sonur Guðs. 36Nú eru sex mánuðir síðan Elísabet frænka þín óbyrjan, eins og fólk kallaði hana – varð þunguð í elli sinni! 37Guði er ekkert um megn.“ 38Og María sagði: „Ég vil hlýða og þjóna Drottni. Verði allt eins og þú sagðir.“Þá hvarf engillinn.

39 40Nokkrum dögum síðar fór María til fjallaþorpsins í Júdeu þar sem Sakaría bjó og heimsótti Elísabetu. 41Þegar María heilsaði, tók barn Elísabetar viðbragð í kviði hennar og hún fylltist heilögum anda. 42Hún hrópaði upp í gleði sinni og sagði við Maríu: „Guð hefur blessað þig umfram allar aðrar konur, og barni þínu er ætluð hin æðsta blessun hans. 43Hvílíkur heiður fyrir mig að móðir Drottins míns skuli heimsækja mig. 44Um leið og þú komst inn og heilsaðir mér tók barnið mitt viðbragð af gleði! 45Þú trúðir að Guð mundi standa við orð sín og þess vegna hefur hann ríkulega blessað þig.“ 46Og María sagði: „Ó, ég lofa Drottin! 47Ég gleðst í Guði, frelsara mínum. 48Hann mundi eftir lítilmótlegri ambátt sinni og héðan í frá munu allar kynslóðir tala um hvernig Guð blessaði mig. 49Hann, hinn voldugi og heilagi, hefur gert mikla hluti fyrir mig. 50Miskunn hans við þá sem trúa á hann, varir frá kynslóð til kynslóðar.

51Hann hefur unnið stórvirki með mætti sínum og tvístrað hinum stoltu og drambsömu. 52Hann hefur steypt höfðingjum úr hásætum og upphafið auðmjúka. 53Hann hefur mettað hungraða gæðum og látið ríka fara tómhenta frá sér. 54Hann hefur hjálpað þjóni sínum, Ísrael, og ekki gleymt loforðum sínum. 55Hann lofaði feðrum okkar – Abraham og afkomendum hans – að sýna þeim miskunn að eilífu.“

56Eftir þetta dvaldist María hjá Elísabetu í þrjá mánuði, en að því búnu hélt hún heim.

Jóhannes skírari fæðist

57Þegar meðgöngutíma Elísabetar lauk, fæddi hún son. 58Vinir og ættingjar fréttu fljótt hve góður Drottinn hafði verið Elísabetu og samglöddust henni.

59Þegar barnið var átta daga gamalt komu þeir til að vera viðstaddir umskurnina. Allir gerðu ráð fyrir að drengurinn yrði látinn heita Sakaría eftir föður sínum, 60en Elísabet sagði: „Nei, hann á að heita Jóhannes.“

61„Hvers vegna?“spurði fólkið undrandi, „það er enginn með því nafni í allri fjölskyldunni!“ 62Faðir barnsins var síðan spurður með bendingum hvað barnið ætti að heita.

63Hann bað um spjald og skrifaði á það, öllum til mikillar furðu: „Nafn hans er Jóhannes.“ 64Á sama andartaki fékk hann málið og lofaði Guð. 65Nágrannarnir urðu undrandi og fréttin um þetta barst um alla fjallabyggð Júdeu. 66Þeir sem heyrðu þetta, veltu því vandlega fyrir sér og sögðu: „Hvað skyldi verða úr þessu barni? Hönd Drottins er greinilega með því á sérstakan hátt.“

67Sakaría, faðir drengsins, fylltist heilögum anda og spáði: 68„Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því hann hefur vitjað þjóðar sinnar til að bjarga henni. 69Hann gefur okkur máttugan frelsara af ætt Davíðs konungs, þjóns síns, 70eins og hinir heilögu spámenn höfðu sagt fyrir, 71til að frelsa okkur undan óvinum okkar og öllum þeim sem hata okkur.

72 73 74
Texti vers(s) 74 hefur verið sameinaður þessu versi.
Texti vers(s) 74 hefur verið sameinaður þessu versi.
Hann sýndi forfeðrum okkar miskunn og minntist síns heilaga loforðs, sem hann gaf Abraham, að frelsa okkur frá óvinum okkar,
75helga okkur og gera okkur hæf til að dvelja hjá sér að eilífu.

76Þú, sonur minn, verður kallaður spámaður almáttugs Guðs, því þú munt ryðja Kristi veg. 77Þú munt veita fólkinu þekkingu á hjálpræðinu og fyrirgefningu syndanna. 78Þessu mun kærleikur Guðs og miskunn koma til leiðar, hann sendir okkur ljós sitt. 79Það mun lýsa þeim er sitja í myrkri og skugga dauðans, og leiða okkur á friðarveg.“

80Og drengurinn óx og Guð styrkti hann. Þegar hann hafði aldur til, fór hann út í óbyggðina og dvaldist þar þangað til hann hóf starf sitt meðal þjóðarinnar.
Copyright information for IslLO