‏ Luke 21

1Jesús stóð í musterinu og virti fyrir sér auðmenn sem voru að bera fram gjafir til musterisins. 2Þá kom þar að fátæk ekkja sem gaf tvo litla koparpeninga.

3„Þessi fátæka ekkja hefur gefið meira en allir hinir samanlagt,“sagði Jesús. 4„Þeir gáfu smábrot af öllum auðæfum sínum, en hún, fátæklingurinn, gaf allt sem hún átti.“

Jesús sér fyrir óorðna hluti

5Nú fóru nokkrir lærisveinanna að tala um fegurð musterisins og höggmyndirnar á veggjum þess.

6„Sú stund kemur,“sagði Jesús, „er allt þetta sem þið nú dáist að verður brotið niður, svo að ekki mun standa steinn yfir steini, heldur verða þar rústir einar.“

7„Meistari!“hrópuðu þeir, „hvenær verður þetta? Verðum við varaðir við?“

8Jesús svaraði: „Látið engan villa ykkur sýn. Margir munu koma og kalla sig Krist og segja: „Stundin er komin.“En trúið þeim ekki! 9Og þegar þið heyrið um stríð og byltingar, þá verið ekki hræddir. Satt er það að styrjaldir verða, en endirinn er ekki þar með kominn. 10Því að þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki. 11Og miklir jarðskjálftar, hungursneyð og farsóttir munu verða vítt um heim.

12En áður en þetta gerist, munu verða miklar ofsóknir. Mín vegna verðið þið dregnir inn í samkomuhús, fangelsi og fram fyrir konunga og landshöfðingja. 13Þetta mun verða til þess að nafn Krists verður kunnugt og vegsamað. 14Verið því ekki að hugsa um hvernig þið eigið að svara ákærunum. 15Því ég mun gefa ykkur rétt orð að mæla og slíka rökfimi, að mótstöðumenn ykkar munu verða orðlausir! 16Þeir sem ykkur standa næst – foreldrar, bræður, ættingjar og vinir – munu svíkja ykkur í hendur óvina og sumir ykkar verða líflátnir. 17Þið verðið hataðir af öllum mín vegna og vegna þess að þið eruð kenndir við mig. 18En ekkert hár á höfði ykkar skal þó farast! 19Með stöðuglyndi munuð þið bjarga sálum ykkar.

20Þegar þið sjáið Jerúsalem umkringda hersveitum, þá vitið þið að tími eyðileggingarinnar er nálægur. 21Þá eiga þeir sem eru í Júdeu að flýja til fjalla. Þeir sem þá verða í Jerúsalem ættu að reyna að flýja og þeir sem eru utan við borgina eiga alls ekki að gera tilraun til að fara inn í hana. 22Þessa daga mun dómi Guðs verða fullnægt. Orð Biblíunnar, sem skráð voru af hinum fornu spámönnum, munu vissulega rætast. 23Þá verða hræðilegir tímar fyrir verðandi mæður og þær sem þá verða með börn á brjósti. Miklar hörmungar munu dynja yfir þessa þjóð og mikil reiði blossa upp gegn henni. 24Fólkið verður stráfellt og sumt tekið til fanga, og sent í útlegð út um allan heim. Jerúsalem verður sigruð og fótum troðin af heiðingjunum, þar til yfirráðatími þeirra er liðinn.

25Þá munu gerast einkennilegir hlutir á himninum – illir fyrirboðar. Fyrirboðar þessir verða á sólu, tungli og stjörnum, en á jörðinni birtast þeir sem angist meðal þjóðanna, í vanmætti við brimgný og flóð. 26Margir munu missa kjarkinn vegna þeirra skelfilegu atburða sem þeir sjá gerast í heiminum – því jafnvægi himintunglanna mun raskast. 27Og þá munu þjóðir jarðarinnar sjá mig, Krist, koma í skýi með mætti og mikilli dýrð. 28Þegar þetta tekur að gerast, þá réttið úr ykkur og lítið upp, því að þá er hjálp ykkar á næsta leiti.“

29Síðan sagði hann þeim líkingu: „Takið eftir trjánum. 30Þegar laufin fara að springa út, þá vitið þið að sumarið er í nánd. 31Og þegar þið sjáið þessa atburði gerast, sem ég var að lýsa fyrir ykkur, þá vitið þið á sama hátt að guðsríki er í nánd.

32Ég segi ykkur satt: Þessi kynslóð mun alls ekki deyja fyrr en allt þetta er komið fram. 33En þótt himinn og jörð líði undir lok, munu orð mín standa óhögguð að eilífu.

34 35Gætið ykkar! Látið endurkomu mína ekki koma ykkur í opna skjöldu; látið mig ekki rekast á ykkur eins og alla aðra, andvaralausa, við veisluhöld, drykkjuskap og niðursokkna í áhyggjur lífsins. 36Verið á verði og biðjið, að ef mögulegt er, þá mættuð þið komast hjá þessum hörmungum og standast frammi fyrir mér.“

37 38Á hverjum degi fór Jesús upp í musterið til að kenna og snemma á morgnana tók fólkið að hópast þangað til að hlýða á hann. Á kvöldin sneri hann svo aftur, því að náttstaður hans var á Olíufjallinu.
Copyright information for IslLO