Mark 13
Jesús lítur til framtíðarinnar
1Þegar Jesús gekk út úr musterinu þennan dag, sagði einn lærisveinanna við hann: „Meistari, þetta eru fallegar byggingar! Sjáðu til dæmis myndirnar þarna á veggjunum.“ 2„Já,“svaraði Jesús, „en hér verður samt ekki skilinn eftir steinn yfir steini, ekkert nema rústir einar.“ 3– 4Og þegar hann sat í hlíð Olíufjallsins, hinum megin dalsins gegnt musterinu, komu Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés til hans og spurðu: „Hvenær mun þetta verða? Mun eitthvert tákn birtast áður, til viðvörunar?“ 5Jesús svaraði: „Látið engan leiða ykkur afvega, 6því margir munu koma og segjast vera Kristur, og þeir munu leiða ógæfu yfir marga. 7Óttist ekki þótt styrjaldir geisi, það er óhjákvæmilegt, en endirinn er ekki þar með kominn. 8Þjóðir og ríki munu ráðast hvert gegn öðru, og víða munu verða jarðskjálftar og hungursneyð. Þetta verða fyrirboðar hörmunganna sem framundan eru. 9Gætið ykkar, því að þið verðið í mikilli hættu! Þið verðið dregnir fyrir rétt, þið verðið barðir í samkomuhúsunum og ákærðir frammi fyrir landstjórum og konungum, vegna þess að þið fylgið mér, en þá fáið þið líka tækifæri til að vitna um mig. 10Áður en endalokin koma, verða allar þjóðir að hafa fengið að heyra fagnaðarerindið. 11En þegar þið verið yfirheyrðir sem fangar, hafið þá ekki áhyggjur af því hvernig þið eigið að verja ykkur – segið það sem Guð minnir ykkur á. Það verða ekki þið sem talið, heldur heilagur andi! 12Bræður munu svíkja hver annan í dauðann, og sama munu feður gera við sín eigin börn og börnin við foreldrana. 13Allir munu hata ykkur af því að þið tilheyrið mér, en þeir sem standa stöðugir allt til enda og afneita mér ekki, munu bjargast. 14Þegar þið sjáið viðurstyggð eyðingarinnar í musterinu – lesandi, taktu eftir því – þá flýi þeir sem eru í Júdeu til fjalla, 15– 16og flýtið ykkur! Sértu staddur við þakdyrnar, farðu þá ekki inn í húsið, og sértu úti á akri, farðu þá ekki heim eftir peningum þínum eða fötum. 17Þær, sem eiga von á barni, verða illa settar á þeim dögum og einnig þær, sem þá hafa börn á brjósti. 18Biðjið að flótti ykkar verði ekki að vetri til. 19Þessir tímar verða svo miklir hörmungatímar, að þvílíkt hefur aldrei fyrr orðið frá upphafi sköpunarinnar og mun aldrei verða. 20Ef Drottinn stytti ekki þennan ógæfutíma, kæmist engin sála af í öllum heiminum, en vegna þeirra, sem hann hefur útvalið, mun hann stytta hann. 21Ef einhver segir við ykkur: „Þetta er Kristur,“eða „þarna er hann,“þá gefið því engan gaum. 22Margir falskristar og falsspámenn munu koma og gera stórkostleg kraftaverk til þess, ef mögulegt er, að villa um fyrir börnum Guðs. 23Varið ykkur! Nú hef ég sagt ykkur það! 24Eftir þessar þrengingar mun sólin myrkvast og tunglið hætta að skína, 25stjörnurnar munu hrapa og himnarnir nötra. 26Þá mun allt mannkynið sjá mig, Krist, koma í skýjunum með mætti og mikilli dýrð. 27Og ég mun senda englana út um allan heim til að safna saman mínum útvöldu – út til ystu endimarka heimsins. 28Þið getið lært af fíkjutrénu: Þið vitið að vorið er komið, þegar brumið er orðið mjúkt og laufin fara að springa út. 29Þegar þið sjáið þessa atburði gerast, sem ég nú hef lýst, þá getið þið reitt ykkur á að endurkoma mín er fyrir dyrum. 30Þetta eru táknin, sem gefa þessari kynslóð til kynna að endirinn sé kominn. 31Himinn og jörð munu hverfa en orð mín standa að eilífu. 32En daginn og stundina er þetta gerist, veit enginn, hvorki englarnir né ég, heldur aðeins faðirinn einn. 33Og fyrst þið vitið ekki stundina, verið þá allsgáðir. Vakið og biðjið og verið viðbúnir komu minni. 34Endurkomu minni má líkja við mann, sem ferðaðist til annars lands. Hann sagði starfsmönnum sínum hvað hver og einn ætti að gera meðan hann væri í burtu og bað dyravörðinn að vera vel á verði meðan hann biði komu sinnar. 35– 36– 37 ▼▼Texti vers(s) 37 hefur verið sameinaður þessu versi.
▼▼Texti vers(s) 37 hefur verið sameinaður þessu versi.
Gætið að! Þið vitið ekki hvenær mín er von, hvort það verður að kvöldi, um miðnætti, undir morgun eða árdegis. Látið mig ekki koma að ykkur sofandi, heldur verið vakandi þegar ég kem! Það sem ég segi ykkur, segi ég öllum: Vakið!“
Copyright information for
IslLO