Mark 7
Trúarleiðtogarnir leggja spurningu fyrir Jesú
1Dag nokkurn komu trúarleiðtogarnir frá Jerúsalem til að fylgjast með Jesú. 2Þeir tóku eftir því að sumir lærisveina hans skeyttu engu reglum þeim sem farið var eftir áður en menn neyttu matar. 3(Gyðingar, og sérstaklega farísear, mötuðust aldrei nema þeir hefðu, samkvæmt sérstökum trúarsiðum, þvegið sér um hendurnar. 4Þegar þeir komu heim af markaðnum, urðu þeir alltaf að þvo sér á þennan hátt áður en þeir snertu matinn. Þetta var aðeins ein af mörgum reglum þeirra og lögum sem þeir hafa fylgt öldum saman og gera enn. Ein reglan er til dæmis sérstakur trúarlegur þvottur á pottum, pönnum og diskum.) 5Trúarleiðtogarnir spurðu því Jesú. „Hvers vegna hlýða lærisveinar þínir ekki aldagömlum venjum okkar? Þeir borða án þess að þvo sér, en það er brot á reglunum.“ 6– 7„Þið hræsnarar!“svaraði Jesús. „Jesaja spámaður lýsti ykkur vel þegar hann sagði: „Fólk þetta talar fagurlega um Drottin, en það elskar hann ekki. Tilbeiðsla þess er einskis virði, því það heldur því fram að það sé skipun Guðs að fólk hlýði öllum þeirra ómerkilegu reglum.“Jesaja hafði sannarlega rétt fyrir sér! 8Þið virðið að vettugi skýr boð Guðs en takið í staðinn upp ykkar eigin siðvenjur. 9Með þessu hafnið þið boðum Guðs og traðkið á þeim, til þess eins að gera eins og ykkur langar. 10Móse sagði til dæmis: „Heiðraðu föður þinn og móður.“Hann sagði einnig að hver sá er formælti foreldrum sínum væri dauðasekur. 11Þið segið hins vegar að í lagi sé að menn sinni ekki þörfum foreldra sinna og segi við þau: „Mér þykir leitt að geta ekki hjálpað ykkur, en ég hef gefið Guði það sem ég annars hefði gefið ykkur.“ 12– 13Þannig brjótið þið boðorð Guðs til að geta hlýtt ykkar eigin mannaboðorðum. Þetta er aðeins eitt dæmi, en ég gæti nefnt mörg önnur.“ 14Síðan kallaði Jesús á fólkið og sagði: „Takið eftir, og reynið að skilja. 15– 16 ▼▼Í sumum handritum er enginn texti hér. Sumir hafa texta svipað og Mrk 4:9, Mrk 4:23.
Sálir ykkar bíða ekki tjón af því sem þið borðið, heldur hinu sem þið hugsið og segið.“ 17Að því búnu fór hann í húsið til að fá næði fyrir fólkinu. Þá spurðu lærisveinar hans hvað hann hefði átt við með þessum orðum. 18„Eruð þið líka svona skilningslausir?“spurði hann. „Getið þið ekki skilið að það sem þið borðið skaðar ekki sál ykkar, 19því maturinn kemst ekki í snertingu við sálina, hann fer aðeins í gegnum meltingarfærin.“(Með þessu átti hann við að leyfilegt væri að neyta hvaða matar sem er.) 20Síðan bætti hann við: „Það er hugarfarið sem spillir manninum. 21Frá hjarta hans koma illar hugsanir, girnd, þjófnaður, morð, hórdómur, 22eftirsókn eftir eigum annarra, illmennska, sviksemi, saurlifnaður, öfund, baktal, hroki og alls konar heimska. 23Allt þetta illa kemur innan frá og spillir og óhreinkar manninn í augum Guðs?“ „Allt sem hann gerir er gott“
24Eftir þetta fór Jesús frá Galíleu og norður til héraðanna umhverfis Týrus og Sídon. Hann reyndi að fara huldu höfði en án árangurs. Fréttirnar um komu hans bárust um allt eins og venjulega. 25Kona ein sem þarna var kom til hans. Hún átti dóttur sem haldin var illum anda. Hún hafði heyrt um Jesú og því kom hún nú, kraup við fætur hans, 26og grátbað hann að losa dótturina við illa andann. (Konan var frá sýrlensku Fönikíu og því heiðingi í augum Gyðinga.) 27Jesús svaraði henni og sagði: „Fyrst verð ég að hjálpa samlöndum mínum – Gyðingunum. Það er ekki rétt að taka matinn frá börnunum og kasta honum til hvolpanna.“ 28„Rétt er það, herra, en hvolparnir týna þó upp molana sem börnin leifa,“sagði hún. 29„Rétt,“sagði hann, „þú svaraðir vel – svo vel, að nú hef ég læknað dóttur þína! Farðu nú heim – illi andinn er farinn út af henni.“ 30Þegar konan kom heim lá litla stúlkan róleg í rúminu; illi andinn var farinn. 31Frá Týrus fór Jesús til Sídonar og síðan til Dekapólis (þorpanna tíu) við Galíleuvatnið. 32Þá var leiddur til hans maður sem bæði var heyrnarlaus og mállaus. Bað fólkið Jesú að leggja hendur yfir hann og lækna hann. 33Jesús fór með hann afsíðis, stakk fingrunum í eyru hans og vætti tungu hans með munnvatni sínu. 34Síðan horfði hann upp til himins, andvarpaði og sagði: „Opnist þú.“ 35Um leið fékk maðurinn fulla heyrn og talaði skýrt! 36Jesús bannaði fólkinu að láta þetta fréttast, en því meir sem hann bannaði það, því meir var það borið út, 37kraftaverkið hafði mikil áhrif á alla. Fólk sagði: „Allt sem hann gerir er gott. Hann getur meira að segja gefið heyrnarlausum heyrn og mállausum mál.“
Copyright information for
IslLO