‏ Matthew 1

Ættartala Jesú Krists

1Þessir eru forfeður Jesú Krists, afkomanda Davíðs konungs og Abrahams: 2Abraham var faðir Ísaks. Ísak var faðir Jakobs. Jakob var faðir Júda og bræðra hans. 3Júda var faðir Peresar og Sera (móðir þeirra hét Tamar). Peres var faðir Esroms. Esrom var faðir Rams, 4en Ram var faðir Ammínadabs og sonur hans var Nakson. Nakson var faðir Salmons. 5Salmon var faðir Bóasar (kona hans var Rut). Óbeð var faðir Ísaís, 6en Ísaí faðir Davíðs konungs og Davíð faðir Salómons (móðir hans var ekkja Úría). 7Salómon var faðir Róbóams og sonur hans var Abía. Abía var faðir Asafs. 8Asaf var faðir Jósafats. Jósafat var faðir Jórams og Jóram faðir Ússía. 9Ússía var faðir Jótams, en sonur hans var Akas og Esekía var sonur hans. 10Esekía var faðir Manasse, en hann var faðir Amoss og Amos faðir Jósía. 11Jósía var faðir Jekonja og bræðra hans (þeir fæddust í herleiðingunni til Babýlon).

12Eftir herleiðinguna: Jekonja var faðir Sealtíels, Sealtíel var faðir Serúbabels, 13Serúbabel faðir Abíúds og Abíúd faðir Eljakíms. Eljakím var faðir Asórs, 14en sonur hans var Sadók. Og Sadók var faðir Akíms, Akím faðir Elíúds 15og Elíúd faðir Eleasars. Eleasar var faðir Mattans, Mattan faðir Jakobs og 16Jakob faðir Jósefs en hann var eiginmaður Maríu, móður Jesú Krists.

17Þetta eru fjórtán ættliðir frá Abraham til Davíðs konungs, fjórtán ættliðir frá Davíð fram að herleiðingunni og einnig fjórtán ættliðir frá herleiðingunni fram til Krists.

Fæðing barnsins sögð fyrir

18Aðdragandinn að fæðingu Jesú var á þessa leið: María móðir hans var trúlofuð Jósef. Hún varð þunguð af völdum heilags anda meðan hún var enn ósnortin mey. 19Jósef, unnusti hennar, sem var mjög sómakær maður, ákvað þá að slíta trúlofuninni í kyrrþey, því að hann vildi ekki valda henni opinberri smán.

20Eitt sinn er hann var að íhuga þetta á andvökunóttu, sofnaði hann og dreymdi að engill stóð hjá honum og sagði:

„Jósef, sonur Davíðs, hikaðu ekki við að kvænast Maríu, því að barnið sem hún gengur með, er getið af heilögum anda.
21Hún mun eignast son, og þú skalt láta hann heita Jesú (sem þýðir Guð frelsar), því að hann mun frelsa þjóð sína frá syndum hennar. 22Þannig mun rætast það sem spámaður Guðs sagði: 23„Takið eftir! Meyjan mun þunguð verða! Hún mun fæða son og hann verða kallaður „Immanúel“(en það þýðir Guð er með okkur)“.“

24Þegar Jósef vaknaði, ákvað hann að gera eins og engillinn hafði sagt honum og ganga að eiga Maríu, 25þau höfðu þó ekki kynmök fyrr en eftir að sonurinn var fæddur. Og Jósef gaf drengnum nafnið Jesús.
Copyright information for IslLO