‏ Matthew 10

Postularnir tólf

1Jesús kallaði nú til sín tólf af lærisveinum sínum, gaf þeim vald til að reka út illa anda og lækna hvers konar sjúkdóma. 2 3 4
Texti vers(s) 4 hefur verið sameinaður þessu versi.
Texti vers(s) 4 hefur verið sameinaður þessu versi.
Nöfn þessara tólf lærisveina eru: Símon (einnig kallaður Pétur),
Andrés (bróðir Péturs),
Jakob Sebedeusson,
Jóhannes (bróðir Jakobs),
Filippus,
Bartólómeus,
Tómas,
Matteus (skattheimtumaðurinn),
Jakob Alfeusson,
Taddeus,
Símon (en hann var meðlimur róttæks stjórnmálaflokks sem kallaðist Selótar) og
Júdas Ískaríot (sá sem síðar sveik hann).

Fyrirmæli til lærisveinanna

5Jesús sendi þá af stað og gaf um leið þessi fyrirmæli: „Farið hvorki til heiðingja né Samverja. 6Farið aðeins til Ísraelsmanna – hinna týndu sauða Guðs þeirra á meðal. 7Segið þeim að ríki himnanna sé nálægt. 8Læknið sjúka og holdsveika, vekið upp dauða og rekið út illa anda. Gefið á sama hátt og þið hafið þegið! 9Takið ekki með ykkur peninga, 10föt né skó til skiptanna og jafnvel ekki göngustaf. Þeir sem njóta hjálpar ykkar munu annast ykkur. 11Þegar þið komið inn í bæ eða þorp, reynið þá að finna einhvern sem er opinn fyrir Guði og gistið þar uns þið farið til næsta þorps. 12 13Þegar þið beiðist gistingar þá blessið heimilið, sé það guðrækið, en ef ekki, haldið þá blessuninni fyrir sjálfa ykkur. 14Ef eitthvert þorp eða heimili vill ekki taka við ykkur, dustið þá rykið af fótum ykkar um leið og þið farið þaðan. 15Ég segi ykkur satt: Þeim stað mun verr farnast á dómsdegi en borgunum guðlausu, Sódómu og Gómorru.

Ofsóknir koma

16Ég sendi ykkur sem lömb á meðal úlfa. Verið því kænir sem höggormar en falslausir sem dúfur. 17Gætið að! Þið munuð verða handteknir, yfirheyrðir og húðstrýktir í samkomuhúsunum. 18Þið verðið jafnvel að svara til saka frammi fyrir stjórnvöldum mín vegna. Þá fáið þið tækifæri til að segja þeim frá mér – vitna um mig frammi fyrir heiminum. 19Þegar þið verðið handteknir, hafið þá engar áhyggjur af því hvernig þið eigið að verja mál ykkar, því ykkur verða gefin rétt orð á réttum tíma. 20Það verða ekki þið sem talið, heldur mun andi föður ykkar á himnum tala í ykkur!

21Bróðir mun svíkja bróður sinn í dauðann og feður börn sín. Börn munu einnig rísa gegn foreldrum sínum til að lífláta þá! 22Allir munu hata ykkur vegna þess að þið tilheyrið mér, en þeir sem standa stöðugir allt til enda munu frelsast. 23Þegar þið mætið ofsóknum í einhverri borg, skuluð þið flýja til þeirrar næstu. Ég mun koma aftur áður en þið hafið náð til þeirra allra! 24Nemandi er ekki fremri kennara sínum. Og þjónninn er ekki settur yfir húsbónda sinn. 25Nemandinn á hlutdeild í kjörum kennara síns og þjónninn húsbónda síns. En hvernig mun fara fyrir ykkur, fyrst ég, húsbóndinn, hef verið kallaður Satan? 26Óttist ekki þá sem hafa í hótunum við ykkur, því að sannleikurinn mun koma í ljós.

27Það sem ég segi ykkur í rökkrinu, skuluð þið kalla að morgni og það sem ég hvísla í eyru ykkar, skuluð þið hrópa á húsþökum!

Óttist Guð

28Óttist ekki þá sem aðeins geta deytt líkama ykkar, en megna ekki að skaða sálina. Óttist Guð, því að hann getur tortímt sál og líkama í helvíti. 29Vitið þið verðið á spörfuglum? Fást ekki tveir fyrir einn smápening? Ekki einn einasti þeirra fellur til jarðar án vitundar föður ykkar. 30Hann veit meira að segja hve hárin eru mörg á höfði ykkar! 31Verið því ekki kvíðafullir. Þið eruð dýrmætari í augum Guðs en margir spörfuglar.

Játið Krist fyrir mönnum

32Hvern þann sem viðurkennir mig sem vin sinn fyrir mönnum mun ég viðurkenna sem vin minn fyrir föður mínum á himnum. 33En hverjum þeim sem afneitar mér fyrir mönnum, mun ég afneita fyrir föður mínum á himnum.

Kristur veldur aðskilnaði

34Haldið ekki að ég sé hér til að koma á friði á jörðu – nei, þvert á móti. 35Ég kom til að gera son ósáttan við föður sinn, dóttur ósátta við móður sína og tengdadóttur við tengdamóður sína. 36Heimilismennirnir verða óvinir húsbónda síns. 37Ef þið elskið föður ykkar eða móður meira en mig, þá eruð þið ekki verðir þess að tilheyra mér. Sama er að segja ef þið elskið son ykkar eða dóttur meira en mig. 38Sá sem ekki vill deyja sjálfum sér og fylgja mér er mín ekki verður. 39Sá sem vill njóta lífsins sjálfs sín vegna, mun glata því, en sá sem fórnar því mín vegna, mun bjarga því.

Glas af svaladrykk

40Þeir sem taka við ykkur, taka við mér. Þegar þeir taka við mér, þá taka þeir við Guði sem sendi mig. 41Ef þið takið á móti spámanni vegna þess að hann er maður Guðs, þá hljótið þið sömu laun og þeir. 42Ef þið, lærisveinar mínir, gefið smælingja þó ekki sé nema glas af svaladrykk, þá mun ykkur vissulega verða launað fyrir það.“
Copyright information for IslLO