Matthew 19
Hjónaband og hjónaskilnaður
1Að lokinni þessari ræðu hélt Jesús af stað frá Galíleu til Júdeu og lagði leið sína um héruðin austan Jórdanar. 2Mikill fjöldi fylgdi honum og hann læknaði sjúka. 3Þá komu til hans nokkrir farísear sem vildu ræða við hann og reyna að flækja hann í orðum. „Leyfir þú hjónaskilnað?“spurðu þeir. 4„Hafið þið ekki lesið Biblíuna?“spurði hann. „Þar stendur að í upphafi hafi Guð skapað karl og konu, 5og sagt að karlmaðurinn ætti að fara að heiman frá foreldrum sínum og búa með eiginkonu sinni upp frá því. 6Þau tvö eiga að verða eitt – ekki framar tvö, heldur eitt! Enginn maður má aðskilja það sem Guð hefur sameinað.“ 7„En af hverju sagði þá Móse að maðurinn gæti skilið við konu sína með því að afhenda henni skilnaðarbréf?“spurðu þeir. 8„Móse leyfði ykkur skilnað vegna illsku ykkar og miskunnarleysis,“svaraði Jesús, „en það hafði Guð ekki upphaflega áformað. 9Ég segi: Sá sem skilur við konu sína af annarri ástæðu en þeirri að hún hafi verið honum ótrú og kvænist annarri, drýgir hór.“ 10„Ef svo er,“sögðu lærisveinarnir, „þá er nú betra að kvænast alls ekki!“Jesús kennir um einlífi
11„Ég veit að ekki geta allir framfylgt þessu,“sagði Jesús, „aðeins þeir sem fá hjálp frá Guði. 12Sumir eru fæddir þannig að þeir geta ekki lifað í hjónabandi, aðrir verða þannig af mannavöldum og enn aðrir vilja ekki gifta sig vegna guðsríkisins. Sá sem skilur orð mín ætti að fara eftir þeim.“Jesús blessar litlu börnin
13Fólk færði lítil börn til Jesú og bað hann um að leggja hendur yfir þau og biðja fyrir þeim. Lærisveinarnir brugðust illa við þessu og sögðu: „Verið ekki að ónáða hann.“ 14En Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því slíkra er guðsríki.“ 15Og hann lagði hendur sínar á höfuð þeirra, blessaði þau og hélt síðan áfram ferð sinni.Ríki maðurinn fer sína eigin leið
16Maður nokkur kom til Jesú og spurði: „Meistari, hvaða góðverk þarf ég að gera til þess að eignast eilíft líf?“ 17„Hvers vegna spyrð þú mig um hið góða?“svaraði Jesús. „Einn er góður og það er Guð. En spurningu þinni skal ég svara. Þú kemst til himins, ef þú hlýðir boðorðunum.“ 18„Hverjum?“spurði maðurinn. „Þessum,“svaraði Jesús: „Þú skalt ekki mann deyða, ekki drýgja hór, ekki stela, ekki ljúga, 19heiðraðu föður þinn og móður og elskaðu meðbróður þinn eins og sjálfan þig!“ 20„Ég hef alltaf hlýtt boðorðunum,“sagði ungi maðurinn, „hvað er það fleira sem ég þarf að gera?“ 21Jesús svaraði: „Ef þú vilt verða fullkominn, þá skaltu selja allt sem þú átt, gefa fátækum andvirðið og þá muntu eignast fjársjóð á himnum. Komdu síðan og fylgdu mér.“ 22Þegar ungi maðurinn heyrði þetta varð hann dapur og gekk burt – hann var mjög ríkur.Guði er allt mögulegt
23Þá sagði Jesús við lærisveinana: „Ríkum manni mun reynast erfitt að komast inn í guðsríki. 24Ég segi, það er auðveldara fyrir úlfalda að komast gegnum nálarauga en fyrir ríkan mann að komast inn í guðsríki!“ 25Lærisveinarnir urðu forviða og spurðu: „Hver getur þá frelsast?“ 26Jesús leit á þá einbeittur á svip og sagði: „Enginn, fyrir mannlegt tilstilli, en Guði eru allir hlutir mögulegir.“ 27„En við sem yfirgáfum allt og fylgdum þér,“sagði Pétur, „hvað berum við úr býtum?“ 28Jesús svaraði: „Þegar ég, Kristur, sest í hið dýrlega hásæti mitt í guðsríkinu, munuð þið sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels. 29Hver sá sem yfirgefur heimili, bræður, systur, föður, móður, eiginkonu, börn eða eignir til að geta fylgt mér, mun fá hundraðfalt í staðinn og eignast eilíft líf. 30Margir þeirra, sem nú eru fremstir, verða þá síðastir og hinir síðustu fremstir.“
Copyright information for
IslLO