Matthew 24
Jesús spáir eyðingu musterisins
1Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum langaði lærisveinana að fá hann með sér í skoðunarferð um musterissvæðið. 2En hann sagði við þá: „Þessar byggingar verða allar lagðar í rúst svo að ekki mun standa steinn yfir steini!“Tákn tímanna og endir veraldar
3Stuttu seinna þegar Jesús sat í hlíð Olíufjallsins gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann um þetta: „Hvenær verður það og hvaða atburðir verða á undan endurkomu þinni og endi veraldar?“ 4„Látið engan blekkja ykkur,“svaraði Jesús, 5„því margir munu koma og segjast vera Kristur og leiða marga í villu. 6Þið munuð heyra stríðsfréttir, en þær eru ekki tákn um endurkomu mína. Því að styrjaldir halda áfram eins og verið hefur, en endirinn er ekki þar með kominn. 7Þjóðir og ríki jarðarinnar munu heyja styrjaldir sín á milli og hungursneyð og jarðskjálftar geisa víða. 8Þetta er aðeins byrjun hörmunganna sem koma. 9Þið verðið pyntaðir og líflátnir, og allir munu hata ykkur vegna þess að þið tilheyrið mér. 10Þá munu margir falla frá trúnni, og hata og svíkja hverjir aðra. 11Margir falsspámenn munu koma og leiða marga í villu. 12Afbrot aukast er kærleikur flestra kólnar, 13en sá sem stöðugur stendur allt til enda mun frelsast. 14Gleðiboðskapurinn um guðsríki verður fluttur öllum þjóðum heimsins, og þá loks mun endirinn koma.“Þrengingin mikla
15„Þegar þið sjáið viðurstyggð eyðingarinnar, sem Daníel spámaður talaði um, standandi á helgum stað – lesandinn athugi það! 16Þá verða þeir sem eru í Júdeu að flýja til fjalla, 17þeir sem staddir eru á svölunum heima hjá sér, fari þá ekki inn til að taka saman föggur sínar áður en þeir flýja. 18Þeir sem þá verða á ökrum fari ekki heim eftir nauðsynjum. 19Neyð þeirra sem þá verða barnshafandi eða hafa fyrir ungbörnum að sjá, mun verða mikil. 20Biðjið að flótti ykkar verði ekki um vetur eða á helgidegi, 21því þá verða meiri ofsóknir en nokkru sinni fyrr. 22Sannleikurinn er sá að yrði þessi tími ekki styttur, myndi allt mannkynið farast, en vegna hinna útvöldu mun tíminn verða styttur. 23Ef einhver segir þá við þig: „Kristur er kominn á þennan eða hinn staðinn,“eða „hann hefur birst hér eða þar,“þá trúið því ekki. 24Falskristar munu koma fram og einnig falsspámenn, sem gera munu mikil kraftaverk til að blekkja fólk, jafnvel þá sem Guð hefur kallað. 25Munið að ég hef varað ykkur við. 26Ef einhver kemur og segir ykkur að Kristur sé kominn aftur og sé úti í eyðimörkinni, þá sinnið því ekki og farið ekki þangað. Ef sagt er að hann sé í felum á tilteknum stað, þá trúið því ekki! 27Ég, Kristur, mun koma jafn óvænt og eldingin sem leiftrar frá austri til vesturs! 28Reynið að skilja tákn tímanna á sama hátt og þið skiljið að þar muni hræið vera sem gammarnir safnast.“Koma mannssonarins
29„Eftir þessar ofsóknir mun sólin myrkvast og tunglið hætta að lýsa. Stjörnurnar munu hrapa af himni og kraftar alheimsins ganga úr skorðum! 30Þá mun tákn komu minnar sjást á himninum og allir jarðarbúar skelfast. Þeir munu sjá mig koma í skýjum himinsins með mætti og mikilli dýrð. 31Þegar lúðurinn hljómar, munu englar mínir safna saman þeim sem ég hef valið, úr öllum áttum, heimshorna á milli.“Dæmið af fíkjutrénu
32„Lærið af fíkjutrénu: Þegar greinar þess eru orðnar mjúkar og laufið fer að springa út, þá vitið þið að sumarið er í nánd. 33Eins skuluð þið vita að þegar þið sjáið allt þetta, þá er endurkoma mín í nánd, 34og þá fyrst mun þessi kynslóð líða undir lok.“Enginn veit daginn né stundina
35„Himinn og jörð munu hverfa, en mín orð standa að eilífu. 36Enginn veit þann dag eða stund er endirinn verður, hvorki englarnir né sonur Guðs, aðeins faðirinn einn. 37– 38Fólk mun almennt taka öllu með ró eins og allt sé í lagi – það verða veisluhöld, mannfagnaðir og brúðkaup – rétt eins og var á dögum Nóa áður en flóðið kom. 39Menn trúðu ekki orðum Nóa fyrr en flóðið skall á og hreif þá alla burt. Þannig fer einnig við komu mína. 40Tveir munu vinna á akri, annar verður tekinn en hinn skilinn eftir. 41Tvær verða við heimilisstörf, önnur verður tekin en hin skilin eftir. 42Verið viðbúnir! Þið vitið ekki hvaða dag Drottinn kemur. 43Innbrotsþjófur gerir ekki boð á undan sér, þess vegna verða menn að vera á verði. 44Þess vegna verðið þið að vera stöðugt viðbúnir endurkomu minni.“Trúr og ótrúr þjónn
45„Hver er trúr og hygginn þjónn, sem húsbóndinn hefur falið umsjónarstarfið svo að allir fái fæðu sína á réttum tíma? 46– 47Sæll er sá þjónn sem húsbóndinn finnur að breytir þannig þegar hann kemur. Víst er að hann mun fela honum umsjón með öllu sem hann á. 48En segi svikull þjónn við sjálfan sig: „Húsbóndinn kemur ekki strax,“ 49og tekur að berja samstarfsmenn sína og stunda veislur og drykkjuskap 50þá kemur húsbóndi hans honum að óvörum 51og refsar honum sviksemina.“
Copyright information for
IslLO