‏ Matthew 15

Umræður um lög og reglur

1Nokkrir farísear og lögfræðingar komu frá Jerúsalem að ræða við Jesú. 2„Hvers vegna fara lærisveinar þínir ekki eftir siðum þjóðar okkar?“spurðu þeir valdsmannslega, og bættu síðan við: „Þeir virða til dæmis ekki regluna um að þvo sér um hendur fyrir máltíðir.“

3„En hvers vegna eru þessar siðvenjur ykkar í andstöðu við boðorð Guðs?“spurði Jesús á móti. 4„Eitt af boðorðum Guðs er þannig: „Heiðra skaltu föður þinn og móður, hver sá sem formælir foreldrum sínum er dauðasekur.“ 5 6Þið segið hins vegar: „Þótt foreldrar þínir þarfnist hjálpar, máttu gefa musterinu það fé sem þú hefur lagt til hliðar handa þeim.“Með þessu mannaboðorði ónýtið þið þá skipun Guðs að menn heiðri og annist foreldra sína. 7Hræsnarar! Orð Jesaja eiga við um ykkur:

8„Þessir menn heiðra mig með vörunum en hjarta þeirra er langt í burtu frá mér. 9Trúrækni þeirra er gagnslaus, því þeir kenna sín eigin boðorð í stað boðorða Guðs!“ “

10Síðan hrópaði Jesús til mannfjöldans og sagði: „Hlustið á og reynið að skilja þetta: 11Þið saurgist ekki af matnum sem þið neytið, heldur af orðum ykkar og hugsunum!“

12Þá komu lærisveinar hans til hans og sögðu: „Þú móðgaðir faríseana með því sem þú sagðir.“ 13 14Jesús svaraði: „Hver sú jurt sem ekki er gróðursett af föður mínum, verður slitin upp með rótum. Látið þá afskiptalausa. Þeir eru blindir leiðtogar, ef blindur leiðir blindan, falla báðir í sömu gryfjuna.“

15Þá bað Pétur Jesú að útskýra hvers vegna fólk saurgaðist ekki við að borða mat sem lögin teldu óhreinan.

16„Skilurðu það ekki?“spurði Jesús. 17„Veistu ekki að það sem við borðum fer í gegnum meltingarfærin og síðan úr líkamanum? 18Ljót orð koma hins vegar frá illu innræti og spilla þeim sem segir þau. 19Illar hugsanir, morð, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, lygi og illt umtal, allt á þetta upphaf sitt í huga og sál mannsins. 20Það er þetta sem mengar mannlífið. Það er ekki syndsamlegt að neyta matar með óþvegnum höndum.“

21Jesús hélt síðan burt og fór norður til Týrusar og Sídonar, en þangað voru um 80 kílómetrar.

Heiðingi sýnir trú

22Kanversk kona, sem þar bjó, kom til Jesú og sagði: „Hjálpaðu mér Drottinn, sonur Davíðs konungs! Dóttir mín er með illan anda, sem kvelur hana dag og nótt.“ 23Jesús svaraði henni engu orði. Lærisveinarnir hvöttu hann til að vísa henni burt og sögðu: „Segðu henni að fara, hún ónáðar með þessu kvabbi.“ 24Jesús sagði þá við konuna: „Ég var sendur til að hjálpa Gyðingum, en ekki heiðingjum.“ 25Þá kom hún enn nær, hneigði sig og bað á nýjan leik: „Drottinn, hjálpaðu mér!“ 26„Það er ekki rétt að taka brauðið frá börnunum og gefa það hvolpunum,“sagði Jesús. 27„Satt er það,“sagði hún, „en hvolparnir fá þó að tína molana sem falla á gólfið.“ 28„Kona,“sagði Jesús, „þú hefur mikla trú og þú skalt fá það sem þú baðst um.“Dóttir hennar varð heilbrigð á sömu stundu.

Jesús læknar fjölda fólks

29Eftir þetta fór Jesús aftur að Galíleuvatni. Þar gekk hann upp á fjall og settist niður. 30Mannfjöldinn kom til hans með lamaða menn, blinda og mállausa, einnig marga aðra sjúklinga. Þeir lögðu þá við fætur Jesú og hann læknaði þá alla. 31Þetta var stórkostleg sjón! Þeir sem mállausir höfðu verið frá fæðingu töluðu nú reiprennandi. Þeir sem höfðu verið lamaðir gengu um og hlupu. Þeir sem voru blindir áður, horfðu nú furðu lostnir í kringum sig! Allir voru glaðir og undrandi og lofuðu Guð Ísraels.

Fjórar þúsundir fá að borða

32Þá kallaði Jesús á lærisveina sína og sagði: „Ég finn til með þessu fólki. Það hefur verið hér í þrjá daga samfleytt, og nú er það orðið matarlaust. Ég vil ekki senda það frá mér þannig á sig komið, því þá örmagnast það á leiðinni heim.“ 33„Hvernig eigum við að útvega mat hér í óbyggðinni handa öllum þessum fjölda?“spurðu lærisveinarnir. 34„Hvað tókuð þið mikið með ykkur?“spurði Jesús. „Sjö brauð og nokkra smáfiska,“svöruðu þeir. 35Jesús bauð þá fólkinu að setjast niður. 36Síðan tók hann brauðin og fiskana, og þakkaði Guði. Að því búnu skipti hann matnum í skammta, sem lærisveinarnir báru til fólksins. 37 38Allir fengu nóg, 4.000 karlmenn auk kvenna og barna! Þegar leifunum hafði verið safnað saman, fylltu þær sjö körfur!

39Eftir þetta sendi Jesús fólkið heim, sjálfur fór hann í bátnum yfir til Magadanhéraðs.
Copyright information for IslLO