‏ Matthew 16

Farísear og saddúkear biðja um tákn

1Dag nokkurn komu farísear og saddúkear til Jesú og vildu sannprófa þá fullyrðingu hans að hann væri Kristur. Þeir báðu hann að sýna sér tákn af himni. Þá sagði Jesús: 2 3„Þið eigið auðvelt með að átta ykkur á veðrinu. Kvöldroði boðar góðviðri að morgni, en morgunroði og dimm ský vita á vont veður. En tákn tímanna, þau getið þið ekki skilið. 4Þessi illa og vantrúaða þjóð biður um sérstakt tákn af himnum, en hún mun ekki fá annað tákn en það sem Jónas fékk.“Að þessu mæltu gekk hann burt frá þeim.

Súrdeig farísea og saddúkea

5Þegar lærisveinarnir komu yfir vatnið, tóku þeir eftir því að þeir höfðu gleymt að hafa með sér nesti. 6„Varið ykkur!“sagði Jesús, „varið ykkur á súrdeigi faríseanna og saddúkeanna.“ 7Þeir héldu að hann segði þetta af því að þeir höfðu gleymt að taka með sér brauð. 8Jesús vissi hvað þeir hugsuðu og bætti við: „Lítil er trú ykkar! Af hverju hafið þið áhyggjur af mat? 9Hvar er skilningur ykkar? Munið þið ekki eftir brauðunum fimm sem nægðu handa fimm þúsund manns, og öllu því sem gekk af? 10Og munið þið ekki heldur eftir þúsundunum fjórum og öllu sem þá varð afgangs? 11Hvernig datt ykkur í hug að ég væri að tala um mat? En ég endurtek: Varið ykkur á súrdeigi faríseanna og saddúkeanna!“

12Þá skildu þeir loks að með „súrdeiginu“átti hann við varasamar kenningar farísea og saddúkea.

Pétur játar Krist

13Þegar Jesús kom til Sesareu Filippí spurði hann lærisveina sína: „Hvern segir fólk mig vera?“ 14Þeir svöruðu: „Sumir segja að þú sért Jóhannes skírari, aðrir Elía, og enn aðrir Jeremía eða einhver af spámönnunum.“ 15„En þið,“spurði hann, „hvað segið þið?“ 16Símon Pétur svaraði: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.“ 17„Sæll ert þú, Símon Pétur,“svaraði Jesús, „því faðir minn á himnum hefur sjálfur sannfært þig um þetta – þú hefur þetta ekki frá neinum manni. 18Þú ert Pétur – kletturinn – á þessum kletti mun ég byggja söfnuð minn og vald vítis mun ekki megna að yfirbuga hann. 19Ég mun gefa þér lykla himnaríkis. Það sem þú leysir á jörðu skal verða leyst á himnum!“ 20Síðan lagði hann ríkt á við lærisveinana að segja engum að hann væri Kristur.

Jesús talar um dauða og upprisu

21Eftir þetta tók Jesús að segja lærisveinum sínum berum orðum að hann yrði að fara til Jerúsalem. Þar mundu leiðtogar þjóðarinnar ofsækja hann og lífláta, en hann síðan rísa upp að þrem dögum liðnum.

22Pétri blöskruðu þessi orð. Hann leiddi Jesú afsíðis til að tala um fyrir honum og sagði: „Guð hjálpi þér! Þetta mun aldrei koma fyrir þig!“ 23Jesús sneri sér að Pétri og sagði: „Burt með þig Satan! Þú ert á móti mér! Þú lítur ekki á málið frá sjónarmiði Guðs, heldur manna.“

Takið upp krossinn og fylgið Jesú

24Síðan sagði Jesús við lærisveinana: „Vilji einhver fylgja mér þá verður hann að afneita sjálfum sér, taka upp kross sinn og fylgja mér. 25Sá sem vill njóta lífsins að eigin geðþótta mun týna því, en sá sem fórnar lífi sínu mín vegna, mun finna það. 26Hverju eru menn bættari þótt þeir eignist allan heiminn, ef þeir glata eilífa lífinu? 27Ég, mannssonurinn, mun koma ásamt englum mínum í dýrð föðurins og dæma sérhvern eftir verkum hans. 28Sumir ykkar, sem hér standa, munu lifa og sjá mig í konungsríki mínu.“
Copyright information for IslLO