Matthew 2
Jesús fæðist
1Jesús fæddist í bænum Betlehem í Júdeu á valdatímum Heródesar konungs. Um það leyti komu stjörnufræðingar til Jerúsalem frá Austurlöndum og spurðu: 2„Hvar er nýfæddi Gyðingakonungurinn? Við höfum séð stjörnu hans austur í löndum og nú erum við komnir til þess að sýna honum lotningu.“ 3Heródes konungur varð óttasleginn er hann heyrði þetta, og alls kyns sögusagnir komust á kreik í Jerúsalem. 4Heródes kallaði því saman trúarleiðtoga Gyðinga og spurði: „Hafa spámennirnir sagt hvar Kristur eigi að fæðast?“ 5„Já,“svöruðu leiðtogarnir, „í Betlehem, því að þannig skrifaði Míka spámaður: 6„Þú Betlehem litla, þú ert ekki einhver þýðingarlaus smábær í Júdeu, því frá þér mun koma höfðingi sem annast þjóð mína, Ísrael“.“ 7Heródes sendi þá stjörnufræðingunum leynileg boð um að finna sig, og á þeim fundi fékk hann að vita hvenær þeir hefðu fyrst séð stjörnuna. Síðan sagði hann: 8„Farið til Betlehem og leitið að barninu, og þegar þið hafið fundið það, skuluð þið koma aftur og láta mig vita hvar það er, svo að ég geti einnig veitt því lotningu!“ 9Að þessum viðræðum loknum héldu stjörnufræðingarnir aftur af stað. Og sjá! Stjarnan birtist þeim á ný og fór fyrir þeim uns hún staðnæmdist loks yfir Betlehem. 10Gleði þeirra var takmarkalaus! 11Þeir gengu inn í húsið þar sem María og barnið voru, krupu á kné frammi fyrir því og tilbáðu það. Síðan tóku þeir upp farangur sinn og gáfu barninu gull, reykelsi og myrru. 12Á heimleiðinni komu þeir ekki við í Jerúsalem til þess að hitta Heródes, því að Guð hafði sagt þeim í draumi að fara aðra leið.Flóttinn til Egyptalands
13Þegar þeir voru farnir, dreymdi Jósef að hann sæi engil frá Drottni sem sagði: „Flýðu til Egyptalands og taktu með þér barnið og móður þess, því að Heródes konungur sækist eftir lífi barnsins. Vertu síðan um kyrrt í Egyptalandi þar til ég segi þér að snúa heim aftur.“ 14Jósef lagði af stað til Egyptalands með barnið og Maríu þessa sömu nótt. 15Þar dvöldust þau uns Heródes konungur lést, en þá rættust orð spámannsins: „Ég kallaði son minn frá Egyptalandi.“Saklausum fórnað
16Heródes varð æfur af reiði þegar hann komst að því að stjörnufræðingarnir höfðu brugðist honum og sendi þegar í stað alla hermenn til Betlehem. Hann gaf þeim skipun um að drepa alla drengi, tveggja ára og yngri, sem ættu heima þar í nágrenninu. Þetta gerði Heródes vegna þess að stjörnufræðingarnir höfðu sagt honum að þeir hefðu fyrst séð stjörnuna tveimur árum áður. 17Jeremía spámaður hafði sagt fyrir um þennan hryllilega verknað Heródesar með þessum orðum: 18„Í Rama kveður við angistarvein og óstöðvandi grátur. Rakel grætur börnin sín. Hún er óhuggandi því þau eru ekki lengur lífs.“ 19Eftir dauða Heródesar birtist engill Drottins Jósef í draumi í Egyptalandi og sagði: 20„Rís þú á fætur og farðu aftur til Ísraels með Jesú og móður hans.“ 21Hann sneri því þegar í stað aftur til Ísraels með Jesú og móður hans. 22Á leiðinni frétti hann sér til mikils ótta að nýi konungurinn í Júdeu væri Areklás, sonur Heródesar. Þá var hann varaður við í öðrum draumi, að fara til Júdeu, og því héldu þau til Galíleu 23og settust að í Nasaret. Þar með rættist þessi spádómur um Krist: „Hann mun kallaður Nasarei.“
Copyright information for
IslLO