‏ Matthew 23

Vei faríseum og hræsnurum

1Jesús talaði til mannfjöldans og lærisveina sinna og sagði:

2„Halda mætti að þessir leiðtogar og farísear væru sjálfir Móse, því þeir eru alltaf að setja ný lög. 3Þið skuluð gera það sem þeir segja, en eftir verkum þeirra skuluð þið ekki breyta, því að þeir fara sjálfir ekki eftir því sem þeir kenna. 4Þeir krefjast mikils af öðrum, en lítils af sjálfum sér. 5Þeir gera allt til að sýnast. Þeir láta líta út sem þeir séu heilagir með því að breikka minnisborðana og lengja skúfana á skikkjum sínum. 6Þeir njóta þess að sitja við háborðið í veislum og hafa mætur á stúkusætum samkomuhúsanna. 7Þeim líkar vel að tekið sé eftir þeim á götum og þeir vilja gjarnan láta kalla sig „rabbí“eða „meistari“. 8Látið engan kalla ykkur meistara, því ykkar eini meistari er Guð og allir eruð þið jafnir sem bræður. 9Ávarpið heldur engan sem föður á jörðu, því að þannig á aðeins að ávarpa Guð á himnum. 10Kallið ykkur ekki heldur „leiðtoga“því ykkar eini leiðtogi er Kristur. 11Sá ykkar sem er fremstur, á að vera þjónn ykkar. Sá sem er mestur, þjóni hinum! 12Sá sem upphefur sjálfan sig, mun niðurlægjast, en þeir sem auðmýkja sig hljóta heiður. 13 14
Í sumum handritum er enginn texti hér. Sumir hafa texta svipað og Mrk 12:40; Luk 20:47.
Þið farísear og trúarleiðtogar, vei ykkur, því þið eruð hræsnarar! Þið útilokið menn frá því að komast inn í himnaríki og sjálfir munuð þið ekki komast þangað. Þið biðjið langar bænir á almannafæri til að auglýsa guðrækni ykkar, en svo flæmið þið ekkjur út af heimilum sínum Hræsnarar!
15Já, vei ykkur, þið hræsnarar! Þið farið langar leiðir til þess að vinna einn trúskipting, og gerið hann síðan að miklu verra helvítisbarni en þið eruð sjálfir. 16Þið eruð blindir leiðsögumenn. Vei ykkur! Þið segið að það sé markleysa að sverja við musterið, en sá sem sverji við eigur musterisins sé skuldbundinn. 17Blindu heimskingjar! Hvort er meira, gullið eða musterið sem helgar gullið? 18Einnig segið þið að rjúfa megi eið sem svarinn sé við altarið en ekki þann sem svarinn sé við gjöfina á altarinu. 19Þið eruð blindir! Hvort er meira, gjöfin á altarinu eða altarið sjálft, sem helgar gjöfina? 20Þegar þú sverð við altarið, þá sverðu við það sjálft og allt sem á því er. 21Þegar þú sverð við musterið, þá sverðu við það og við Guð sem þar býr. 22Þegar þú sverð við himininn, sverðu við hásæti Guðs og við Guð sjálfan. 23Farísear og aðrir leiðtogar, vei ykkur, því að þið eruð hræsnarar! Þið gætið þess að gjalda tíund, en skeytið ekkert um það sem meira er um vert, réttvísi, miskunnsemi og trúmennsku. Haldið áfram að gefa tíund, en látið hitt ekki ógjört sem mikilvægara er. 24Blindu leiðsögumenn! Þið tínið flugurnar úr matnum, en gleypið svo úlfaldann með húð og hári. 25Vei ykkur, farísear og trúarleiðtogar – hræsnarar! Þið nostrið við að fægja bollann og diskinn að utan, en gleymið að hann er mengaður kúgun og ágirnd að innan. 26Þú blindi farísei! Hreinsaðu fyrst bollann og diskinn að innan svo að hann verði allur hreinn. 27Vei ykkur, fræðimenn og farísear. Þið líkist kölkuðu grafhýsi, sem er fagurt að utan – en að innan fullt af ódaun, rotnun og dauðra manna beinum. 28Þið reynið að sýnast heilagir menn í annarra augum, en hjörtu ykkar eru menguð af hræsni og lögbrotum. 29 30Vei ykkur, farísear og fræðimenn – hræsnarar! Þið reisið minnismerki um spámennina sem forfeður ykkar drápu, skreytið grafir guðrækinna manna, sem þeir einnig líflétu, og segið: „Aldrei hefðum við framið slíkt ódæði sem forfeður okkar.“ 31Með þessum orðum lýsið þið yfir að þið séuð synir vondra manna, 32síðan fetið þið í fótspor þeirra og fullkomnið illverk þeirra. 33Eiturnöðrur og höggormssynir! Hvernig fáið þið umflúið dóm helvítis? 34Ég sendi til ykkar spámenn og kennimenn. Suma þeirra munið þið krossfesta, en berja aðra í samkomuhúsum ykkar og ofsækja þá í borg eftir borg. 35Þannig berið þið ábyrgð á lífláti allra guðrækinna manna, allt frá Abel hinum réttláta til Sakaría Barakíasonar, sem þið drápuð milli altarisins og musterisins. 36Dómurinn fyrir glæpaverkin mun koma yfir þessa kynslóð.“

Jesús grætur yfir Jerúsalem

37„Jerúsalem, Jerúsalem, þú borg sem líflætur spámennina og grýtir þá sem sendir eru til þín. Oft hef ég viljað safna börnum þínum saman eins og hæna safnar ungum sínum undir vængi sína – en þið hafið ekki viljað það, 38Hús þín munu verða skilin eftir í eyði. 39Og þetta skaltu vita: Þú munt ekki sjá mig aftur fyrr en þú ert reiðubúin að taka á móti þeim, sem Guð sendir til þín.“
Copyright information for IslLO