‏ Matthew 3

Jóhannes skírari tekur til starfa

1Meðan þau bjuggu í Nasaret tók Jóhannes skírari að predika í óbyggðum Júdeu. Kjarninn í boðskap hans var þessi:

2„Snúið ykkur frá syndinni og til Guðs, því ríki himnanna er nálægt.“ 3Jesaja spámaður sagði þannig fyrir um starf Jóhannesar mörgum öldum áður: „Ég heyri hrópað í auðninni: Ryðjið Drottni veg – gjörið beinar brautir hans.“

4Klæðnaður Jóhannesar var ofinn úr úlfaldahári, og hann notaði leðurbelti. Hann lifði á engisprettum og villihunangi. 5Fólk streymdi frá Jerúsalem, allri Júdeu og úr Jórdandalnum til þess að hlusta á hann. 6Þá sem játuðu syndir sínar skírði hann í ánni Jórdan. 7Margir farísear og saddúkear komu til að láta skírast hjá Jóhannesi. Þegar hann sá þá koma ásakaði hann þá opinberlega og sagði:

„Þið höggormssynir! Hver hefur sagt að þið gætuð umflúið reiði Guðs?
8Áður en þið látið skírast verðið þið að sýna í verki að þið hafið snúið ykkur frá syndinni. 9Þið skuluð ekki halda að þið getið sloppið með því að segja: „Það er allt í lagi með okkur, við erum Gyðingar – afkomendur Abrahams“það er engin trygging í því. Guð gæti breytt grjótinu hérna í Gyðinga, ef hann vildi. 10Nú þegar hefur öxi Guðs verið reidd til höggs, því að dómurinn er skammt undan og hvert það tré sem ekki ber ávöxt verður upp höggvið og brennt í eldi. 11Þá sem iðrast synda sinna skíri ég í vatni, en sá sem kemur á eftir mér er mér svo miklu æðri að ég er ekki einu sinni verður þess að halda á skónum hans! 12Hann mun skilja hismið frá kjarnanum og safna korninu í hlöðuna en brenna hismið í óslökkvandi eldi.“

Skírn Jesú

13Þá kom Jesús frá Galíleu til árinnar Jórdan til þess að skírast hjá Jóhannesi, 14en Jóhannes færðist undan að skíra hann og sagði:

„Kemur þú til að skírast hjá mér?! Ég þyrfti fremur að fá skírn hjá þér.“

15„Láttu þetta samt eftir mér því þá gerum við það sem rétt er,“sagði Jesús.

Þá skírði Jóhannes hann.
16Þegar Jesús steig upp úr vatninu að skírninni lokinni, opnuðust himnarnir yfir honum og hann sá anda Guðs koma niður yfir sig, í dúfulíki, 17og rödd af himni sagði: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“
Copyright information for IslLO