‏ Matthew 5

Sæluboðin

1Dag nokkurn þegar fólkið þyrptist að honum fór hann upp á fjallið ásamt lærisveinum sínum, 2settist þar niður og kenndi:

3„Sælir eru auðmjúkir, því að þeirra er himnaríki.

4Sælir eru sorgmæddir, því að þeir munu huggaðir verða.

5Sælir eru hógværir, því að þeir munu eignast landið.

6Sælir eru þeir sem þrá réttlætið, því að það mun falla þeim í skaut.

7Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.

8Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu sjá Guð.

9Sælir eru þeir sem vinna að friði, því að þeir munu kallaðir verða synir Guðs.

10Sælir eru þeir sem ofsóttir eru fyrir trú sína á mig, því að þeirra er himnaríki.

11Gleðjist og fagnið þegar fólk talar illa um ykkur, ofsækir ykkur eða ber lognar sakir á ykkur vegna þess að þið fylgið mér, 12því að mikil laun bíða ykkar á himnum!

Minnist þess að hinir fornu spámenn þoldu einnig ofsóknir.

Salt og ljós

13Þið eruð salt jarðarinnar, þið eigið að bæta heiminn! Hvernig færi ef þið misstuð seltuna? Þið yrðuð einskis nýt eins og rusl sem fleygt er út og fótum troðið. 14Þið eruð ljós heimsins. Allir sjá borg sem reist er á fjalli. 15 16Felið því ekki ljósið ykkar heldur látið það skína til að allir sjái það! Leyfið öllum að sjá góðverk ykkar, svo að þeir þakki föður ykkar á himnum.

Kristur uppfyllir lögmálið

17Misskiljið mig ekki. Ég kom ekki til að afnema lög Móse og viðvaranir spámannanna. Nei, ég kom til að uppfylla hvort tveggja og staðfesta það. 18Ég segi ykkur satt: Hver einasta grein lögbókarinnar mun standa óhögguð uns tilgangi hennar hefur verið náð. 19Þar af leiðir að sá sem brýtur hið minnsta boðorð og hvetur aðra til þess að gera hið sama verður minnstur í himnaríki. En sá sem kennir lög Guðs og fer eftir þeim mun verða mikill í himnaríki. 20Ég vil benda ykkur á eitt: Ef góðverk ykkar verða ekki fremri góðverkum faríseanna og annarra leiðtoga þjóðarinnar, þá komist þið alls ekki inn í guðsríkið.

Morð á upptök í hjartanu

21Þannig segir í lögum Móse: „Drepir þú mann, verður þú sjálfur að deyja.“ 22En ég bæti við: Ef þú reiðist – jafnvel þótt það sé aðeins við bróður þinn á þínu eigin heimili – vofir dómurinn yfir þér! Ef þú kallar vin þinn fífl, átt þú á hættu að þér verði stefnt fyrir réttinn! Og bölvir þú honum áttu eld helvítis yfir höfði þér. 23Ef þú stendur frammi fyrir altarinu í musterinu og ert að færa Guði fórn, og minnist þess þá allt í einu að vinur þinn hefur eitthvað á móti þér, 24skaltu skilja fórn þína eftir hjá altarinu, fara og biðja hann fyrirgefningar og sættast við hann. Komdu síðan aftur og berðu fram fórnina. 25Flýttu þér að sættast við óvin þinn áður en það er um seinan, því að annars mun hann draga þig fyrir rétt. Þá verður þér varpað í skuldafangelsi, 26þar sem þú verður að dúsa uns þú hefur greitt þinn síðasta eyri.

Hórdómur í huganum

27Boðorðið segir: „Þú skalt ekki drýgja hór.“ 28En ég segi: Sá sem horfir á konu með girndarhug, hefur þegar drýgt hór með henni í huga sínum. 29Ef það sem þú sérð með auga þínu verður til þess að þú fellur í synd, skaltu stinga augað úr þér og fleygja því. Betra er að hluti af þér eyðileggist en að þér verði öllum kastað í víti. 30Ef hönd þín – jafnvel sú hægri – kemur þér til að syndga, þá er betra að höggva hana af og fleygja henni en að lenda í helvíti.

Hjónabandið er heilagt og bindandi

31Í lögum Móse segir svo: „Sá sem vill skilja við konu sína verður að fá henni skilnaðarbréf.“ 32En ég segi: Skilji maður við konu sína af annarri ástæðu en þeirri að hún hafi verið honum ótrú, veldur hann því að hún drýgir hór, og sá sem síðar kvænist henni drýgir einnig hór.

Sverjið ekki

33Þið þekkið líka þessa gömlu reglu: „Þú skalt ekki sverja rangan eið, og haltu þau heit sem þú hefur gefið Guði.“ 34Ég segi: Sverjið ekki, hvorki við himininn, því að hann er hásæti Guðs, 35né jörðina, því hún er fótskör hans. Sverjið ekki við Jerúsalem, því hún er borg hins mikla konungs. 36Þú mátt ekki heldur sverja við höfuð þitt, því þú getur ekki einu sinni breytt háralit þínum, hvað þá meira. 37Látið nægja að segja: Já, ég vil… eða: Nei, ég vil ekki! Það á að vera hægt að treysta því sem þú segir. Þurfir þú að staðfesta orð þín með eiði er ekki allt með felldu.

Gakktu auka mílu

38Í lögum Móse stendur: „Stingi maður auga úr öðrum manni, skal hann sjálfur gjalda fyrir það með eigin auga. Brjóti einhver tönn úr þér, skaltu brjóta tönn úr honum í staðinn.“ 39Ég segi hins vegar: Launið ekki ofbeldi með ofbeldi! Slái einhver þig á aðra kinnina, snúðu þá einnig hinni að honum. 40Höfði einhver mál gegn þér þannig að þú tapar skyrtunni þinni, skaltu líka láta yfirhöfn þína af hendi. 41Ef hermenn skipa þér að bera varning sinn eina mílu, þá skaltu bera hann tvær. 42Gefðu þeim sem biðja þig, og snúðu ekki bakinu við þeim sem vilja fá lán hjá þér.

Elskið óvini ykkar

43Sagt hefur verið: „Elskaðu vini þína og hataðu óvini þína.“ 44En ég segi: Elskið óvini ykkar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja ykkur. 45Ef þið gerið það, komið þið fram eins og hæfir sonum hins himneska föður. Hann lætur sólina skína jafnt á vonda sem góða. Hann lætur einnig rigna jafnt hjá réttlátum sem ranglátum. 46Hvaða góðverk er það að elska þá eina sem elska ykkur? Jafnvel skattheimtumennirnir gera það. 47Eruð þið nokkuð frábrugðin heiðingjunum, ef þið eruð einungis vinir vina ykkar? Nei! 48Verið því fullkomin eins og ykkar himneski faðir er fullkominn.
Copyright information for IslLO