Matthew 7
Dæmið ekki
1Verið ekki aðfinnslusamir, og þá munu aðrir ekki heldur finna að við ykkur. 2Eins og þú ert við aðra, munu þeir verða gagnvart þér. 3Hvers vegna hefur þú áhyggjur af flísinni í auga bróður þíns? Þú ert sjálfur með planka í auganu! – Já, heilan bjálka! 4Er rétt af þér að segja: „Vinur, leyfðu mér að hjálpa þér að fjarlægja þessa flís úr auganu á þér,“meðan þú sérð alls ekki til vegna plankans sem er í þínu eigin auga? 5Hræsnari! Losaðu þig fyrst við plankann, og eftir það muntu sjá vel til að hjálpa bróður þínum. 6Láttu ekkert heilagt í hendur spilltra manna. Kastaðu ekki perlum fyrir svín, því þau munu troða þær niður í svaðið og ráðast að því búnu gegn þér.Gefist ekki upp
7Biðjið og þið munuð öðlast. Leitið og þið munuð finna. Knýið á og þá mun verða lokið upp. 8Því sá öðlast sem biður. Sá finnur sem leitar og fyrir þeim, sem á knýr, mun opnað verða. 9Hvaða maður gæfi barni sínu stein, ef það bæði um brauð? 10Eða höggorm, ef það bæði um fisk? Enginn! 11Fyrst þið sem eruð vondir og syndugir menn, hafið vit á að gefa börnunum ykkar góðar gjafir, hversu miklu fremur mun þá faðir ykkar á himnum gefa þeim góðar gjafir sem biðja hann? 12Vertu við aðra eins og þú vilt að þeir séu við þig – þetta er kjarninn í lögum Móse.Mjói vegurinn
13Eina leiðin til himins liggur um þrönga hliðið. Vegurinn til glötunar er breiður og hlið hans vítt – greiðfær leið öllum sem hana velja. 14Vegurinn til lífsins er mjór og hlið hans þröngt, fáir eru þeir sem finna hann. 15Gætið ykkar á falskennendum sem dulbúa sig sem saklaus lömb, en eru hið innra sem gráðugir úlfar. 16Þið getið þekkt þá á afleiðingum orða þeirra og verka – á sama hátt og þið þekkið tré af ávöxtum þess. Það er óþarfi fyrir ykkur að ruglast á vínviði og þyrnirunna, eða á fíkjutré og þistlum. 17Tré þekkist af ávöxtunum. 18Tré sem ber ljúffenga ávexti, ber ekki óæta ávexti, og tré sem ber vonda ávexti, ber ekki góða á sama tíma. 19Tré það, sem ber eintómt óæti, er rifið upp og notað í eldinn. 20Leiðin til að þekkja tré eða mann er að kanna ávextina.Aldrei þekkt ykkur
21Ekki eru allir guðræknir, sem tala guðrækilega. Þeir ávarpa mig: „Herra“– en munu samt ekki komast til himins, heldur aðeins þeir sem gera það sem faðir minn á himnum vill að þeir geri. 22Margir munu segja við mig á dómsdegi: „Herra, herra, við sögðum fólkinu frá þér, við rákum út illa anda með þínu nafni og unnum mörg önnur mikil kraftaverk.“ 23Ég mun svara þeim: „Ég hef aldrei þekkt ykkur né þið haft samfélag við mig. Farið burt, því verk ykkar eru vond.“ 24Þeir sem hlusta á orð mín og fara eftir þeim, líkjast hyggnum manni sem byggir húsið sitt á klöpp. 25Þó að rigni og vatnavextir verði, stormurinn æði og lemji húsið, mun það ekki haggast, því það er byggt á traustum grunni. 26Þeir sem heyrt hafa orð mín, en fara samt ekki eftir þeim, eru heimskir. Þeir eru eins og maður sem byggir húsið sitt á sandi. 27Og þegar stormurinn blæs og flóðbylgjan kemur æðandi og skellur á því, hrynur það með braki og brestum.“ 28Mannfjöldinn undraðist predikun Jesú, því að hann talaði af miklum myndugleika, eins og sá sem valdið hefur, en ekki eins og fræðimennirnir.
Copyright information for
IslLO