Philippians 4
Nokkur hvatningarorð að lokum – og bæn
1Kæru vinir í Kristi, ég elska ykkur og þrái að sjá ykkur, því að þið eruð gleði mín og kóróna, verkalaun mín. Elsku vinir, verið stöðug í Drottni framvegis eins og hingað til. 2Nú langar mig að biðja ykkur, Evódídu og Sýntýke, um eitt: Gerið það fyrir mig, með hjálp Drottins, að sættast og standa saman. 3Ég bið þig, kæri samherji, að hjálpa þessum konum, því að þær unnu við hlið mér að flytja öðrum gleðitíðindin. Þær störfuðu einnig með Klemens og öðrum félögum mínum, sem eiga nöfn sín rituð í lífsins bók. 4Verið ávallt glöð vegna samfélagsins við Drottin. Ég endurtek: Verið glöð! 5Ljúflyndi ykkar verði öllum kunnugt. Munið að Drottinn kemur skjótt! 6Hafið ekki áhyggjur af neinu. Segið Guði frá öllum þörfum ykkar og gleymið ekki að þakka honum, því að hann svarar bænum. 7Þá mun friður Guðs, sem er ofar öllum skilningi, fylla hjörtu ykkar og hugsanir, vegna þess að þið tilheyrið og treystið Kristi Jesú. 8Vinir mínir, nú fer ég að ljúka þessu bréfi, en mig langar þó að nefna eitt enn: Venjið ykkur á að hugsa um það sem er satt, gott og rétt. Festið í huga ykkar hið fagra og hreina og það sem gott er í fari annarra. Hugsið um allt það sem þið getið glaðst yfir og lofað Guð fyrir. 9Venjið ykkur á að gera það sem þið lærðuð af mér og sáuð mig gera, og Guð friðarins mun vera með ykkur. 10Ég er glaður og þakklátur og lofa Guð fyrir að þið skylduð aftur veita mér aðstoð. Ykkur hefur alltaf verið umhugað að senda mér það sem þið gátuð, en ég veit að um tíma höfðuð þið ekki aðstöðu til þess. 11Þið megið ekki halda að ég hafi alltaf liðið skort, því að ég hef lært að komast af með það sem ég hef og gleðjast yfir því, hvort sem það er mikið eða lítið. 12Ég kann að lifa af því sem lítið er og einnig því sem mikið er. Ég hef lært þann leyndardóm að láta mér nægja það sem ég hef, hvort sem það er magafylli eða hungur, allsnægtir eða skortur. 13Með hjálp Krists get ég gert allt sem Guð biður mig um. Kristur gefur mér styrk og kraft. 14En hvað sem því líður, þá var fallega gert af ykkur að hjálpa mér í erfiðleikum mínum. 15Ykkur er vel ljóst að þegar ég kom fyrst með gleðitíðindin til ykkar og einnig eftir að ég yfirgaf Makedóníu, þá voruð þið þeir einu sem hjálpuðu mér, bæði við að gefa og þiggja. Þið voruð eini söfnuðurinn sem slíkt gerði. 16Og þegar ég var í Þessaloníku, þá senduð þið mér tvívegis pakka. 17Ég kann vel að meta gjafir ykkar, en það sem gleður mig mest eru launin sem þið munuð uppskera og fyrir þeim hafið þið vissulega unnið. 18Nú sem stendur hef ég allt sem ég þarf og meira en það! Gjafirnar sem Epafrodítus kom með frá ykkur voru ríkulegar. Þær eru eins og ilmandi fórnir og eru Guði þóknanlegar. 19Guð mun veita ykkur ríkulega allt sem þið þarfnist vegna samfélags ykkar við Krist Jesú. 20Guði föður sé dýrð um aldir alda. Amen. Páll P.S. 21Skilið kærri kveðju frá mér til allra kristinna í Filippí. Bræðurnir sem með mér eru, biðja að heilsa. 22Allir aðrir sem kristnir eru hér, biðja einnig að heilsa ykkur, sérstaklega þeir sem starfa í höll keisarans. 23Blessun Drottins Jesú Krists sé með anda ykkar.
Copyright information for
IslLO