Philemon
1Frá Páli, sem er í fangelsi fyrir að boða fagnaðarerindið um Jesú Krist, og frá bróður Tímóteusi. Til Fílemons, okkar kæra samstarfsmanns, og hinna trúuðu, sem koma saman á heimili þínu, 2til Appíu systur okkar og Arkippusar, sem berst fyrir málstað krossins eins og ég. 3Guð, faðirinn, og Drottinn Jesús Kristur blessi ykkur og gefi ykkur frið.Páll biður Fílemon bónar
4Kæri Fílemon, ég þakka Guði í hvert sinn sem ég bið fyrir þér, 5því að ég hef heyrt um traust þitt til Drottins Jesú og kærleika þinn til hinna kristnu. 6Ég bið þess að vitnisburður þinn nái hjörtum áheyrenda þinna og að þeir sjái hve auðugur þú ert að góðum verkum, í trúnni á Jesú Krist. 7Kærleikur þinn, bróðir kær, hefur bæði glatt mig og huggað, því að góðvild þín hefur oft endurnært hjörtu þeirra sem tilheyra Guði. 8– 9Nú langar mig að biðja þig að gera mér greiða. Ég gæti að vísu krafið þig um þetta í nafni Jesú Krists, því að það er skylda þín. En ég elska þig og vil heldur fara bónarveginn, því ég er nú eins og ég er, hann Páll gamli, og sit þar að auki í fangelsi vegna Jesú Krists. 10Bón mín er sú að þú hjálpir honum Onesímusi, barninu mínu, sem ég leiddi til Krists hér í fangelsinu. 11Onesímus (sem merkir „gagnlegur“) hefur ekki komið þér að miklu gagni upp á síðkastið, en nú ætlar hann að verða okkur báðum hjálplegur. 12Ég sendi hann hér með aftur til þín, enda þótt hann sé mér sem hjartað úr brjósti mínu. 13Ég hefði svo gjarnan viljað hafa hann hjá mér á meðan ég sit í fangelsi fyrir að predika gleðiboðskapinn. Á þann hátt gætir þú létt undir með mér, 14en ég vildi ekki gera þetta án samþykkis þíns. Ég vil ekki þvinga þig til að hjálpa mér, heldur að þú gerir það af fúsum vilja. 15Kannski getum við lýst því sem gerst hefur á þennan hátt: Hann strauk frá þér um stund, til þess síðan að geta verið hjá þér það sem eftir er. 16En nú er hann meira en þræll, hann er annað og miklu betra: Elskaður bróðir – þannig er hann í mínum augum. Framvegis verður hann þér miklu meira virði, því að hann er ekki einungis þjónn, heldur líka bróðir þinn í Kristi. 17Fyrst ég er vinur þinn, taktu þá á móti honum eins og það væri ég sjálfur. 18– 19Hafi hann valdið þér tjóni á einhvern hátt eða haft eitthvað af þér, skrifaðu það þá á minn reikning, og ég skal endurgreiða þér. Ég, Páll, ábyrgist þetta persónulega og staðfesti það hér með eigin hendi, en ég skal ekki minnast á hve mikið þú skuldar mér. Sannleikurinn er sá að þú skuldar mér jafnvel fyrir þína eigin sál! 20Já, kæri bróðir, gleddu mig með slíku kærleiksverki og hresstu hjarta mitt í Drottni. 21Ég hef skrifað þér þetta bréf vegna þess að ég álít að þú munir gera það, sem ég bið þig um, og jafnvel enn meira! 22Viltu hafa herbergi til reiðu handa mér þegar ég kem? Ég vona nefnilega að Guð svari bænum ykkar og leyfi mér að koma til ykkar áður en langt um líður. 23Epafras, samfangi minn, sem einnig er hér fyrir að predika Krist Jesú, sendir ykkur kveðju sína. 24Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir, senda einnig kveðjur. 25Blessun Drottins Jesú Krists sé með anda þínum. Páll
Copyright information for
IslLO