‏ Psalms 1

1Mikil er gæfa þess manns sem ekki fer að ráðum óguðlegra, ekki á félagsskap við syndara sem hæða Guð, 2heldur hefur unun af því að hlýða Drottni og íhuga orð hans dag og nótt, og þannig nálgast hann sífellt meira.

3Hann líkist tré sem stendur við rennandi læk og ber sætan ávöxt sinn á réttum tíma og blöð þess visna ekki. Slíkum manni tekst allt vel.

4En hvað með syndarana? Það er önnur saga! Þeir fjúka burt eins og hismi undan vindi. 5Þeir munu ekki standast á degi dómsins né heldur í söfnuði réttlátra.

6Drottinn vakir yfir lífi og áformum hinna trúuðu, en vegur óguðlegra endar í vegleysu.
Copyright information for IslLO