Psalms 107
1Þakkið Drottni, því að hann er góður og miskunn hans varir að eilífu. 2Hafi Drottinn frelsað þig, þá segðu frá því! Segðu öðrum frá því að hann hafi frelsað þig frá óvinum þínum. 3Hann leiddi hina útlægu heim frá ystu endimörkum jarðarinnar. 4Þeir ráfuðu heimilislausir um eyðimörkina, 5hungraðir og þyrstir og að niðurlotum komnir. 6„Drottinn, hjálpaðu okkur!“hrópuðu þeir, og hann svaraði bæn þeirra! 7Hann leiddi þá í öruggt skjól, til byggilegrar borgar. 8Ó, að þetta fólk vildi nú lofa Drottin fyrir miskunn hans og öll hans dásamlegu verk, 9því að hann svalar þyrstri sál og mettar hungraðan gæðum. 10Hverjir eru þessir sem sitja í myrkri og skugga dauðans, þjáðir af eymd og volæði? 11Þeir gerðu uppreisn gegn Drottni, fyrirlitu hann, hinn hæsta Guð. 12Þess vegna beygði hann þá með mæðu. Þeir hrösuðu og enginn gat hjálpað þeim á fætur. 13Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni og hann bjargaði þeim! 14Hann leiddi þá út úr myrkri og skugga dauðans og braut fjötra þeirra. 15Þeir skulu lofa Drottin fyrir elsku hans og öll hans miskunnarverk! 16Því að hann mölvaði hlið dýflissunnar og braut sundur rimlana. 17Sumir kölluðu yfir sig ógæfu með heimsku sinni. 18Loks bauð þeim við öllum mat. Þeir sáu ekkert framundan nema dauðann. 19Þá kölluðu þeir til Drottins í neyð sinni og hann bjargaði þeim úr angist þeirra, kom þeim á réttan veg. 20Hann sendi út orð sitt og læknaði þá, hreif þá frá dyrum dauðans. 21Ó, að menn þessir vildu lofa Drottin fyrir elsku hans og öll hans dásemdarverk! 22Þeir þakki honum heilshugar og kunngjöri verk hans með gleði. 23Og svo eru þeir sem sigla um höfin, kaupmenn sem flytja vörur milli landa. 24Einnig þeir fá að reyna máttarverk Drottins. 25Hann kallar á storminn og lætur öldurnar rísa. 26Skipin sveiflast til himins og hverfa í öldudali – öllum um borð fellst hugur í neyðinni. 27Þeir ramba og skjögra eins og drukknir menn og vita ekki sitt rjúkandi ráð. 28Þá hrópa þeir til Drottins í neyð sinni og hann frelsar þá. 29Hann kyrrir bæði sjó og vind. 30Hvílík blessun að ná höfn og njóta lognsins! 31Ó, að þessir menn vildu þakka Drottni miskunn hans og öll hans dásemdarverk. 32Þeir lofi hann upphátt í söfnuðinum og í áheyrn leiðtoga Ísraels. 33Hann þurrkar upp fljótin 34og gerir land óguðlegra að skorpinni saltsléttu. 35En hann kann líka að breyta auðninni í frjósama og vatnsríka vin. 36Þangað leiðir hann hungraða sem setjast þar að og byggja sér borgir, 37sá í akra, gróðursetja víngarða og afla afurða. 38Þannig blessar hann! Og þeir margfaldast stórum og fénaði þeirra fjölgar. 39Sumir missa allt í ofsókn, þjáningu og sorg, 40því að Guð sendir hrokafullum skömm og lætur tignarmenn ráfa um í rústum, 41en hann bjargar fátæklingum sem honum treysta, gefur þeim fjölda afkomenda og mikla hagsæld. 42Þetta sjá hinir guðhræddu og þeir gleðjast, meðan óguðlegir þegja í skömm. 43Þú sem ert vitur, hugleiddu þetta! Hugsaðu um miskunn og kærleika Drottins.
Copyright information for
IslLO