‏ Psalms 108

1
108:1 í sumum biblíum.
2
108:1 í flestum biblíum.
Ó, Guð, nú vil ég lofa þig! Ég vil syngja og fagna frammi fyrir þér.

3
108:2 í flestum biblíum.
Vaknaðu, harpa og gígja! Við viljum bjóða morgunroðann velkominn með söng!
4
108:3 í flestum biblíum.
Ég vil lofa þig um víða veröld, Drottinn, vegsama þig hjá hverri þjóð.
5
108:4 í flestum biblíum.
Því að miskunn þín nær til skýjanna og trúfesti þín er ómælanleg!
6
108:5 í flestum biblíum.
Láttu tign þína og mátt birtast og dýrð þína breiðast yfir jörðina.
7
108:6 í flestum biblíum.
Hlustaðu á ákall vina þinna og bjargaðu þeim með krafti þínum, já, bænheyrðu þá.

8
108:7 í flestum biblíum.
Fögnum og gleðjumst því að við höfum fengið loforð frá Guði! Hann hefur lofað að gefa okkur Síkemland og Súkkótdal.
9
108:8 í flestum biblíum.
„Ég á Gíleað, ég á Manasse og Efraím er hjálmurinn á höfði mínu. Júda er veldissproti minn
10
108:9 í flestum biblíum.
en Móab og Edóm fyrirlít ég og yfir Filisteu æpi ég siguróp.“

11
108:10 í flestum biblíum.
Hver nema Guð getur veitt mér styrk til að sigrast á víggirtum borgum? Hver nema hann getur opnað mér leið inn í Edóm?

12
108:11 í flestum biblíum.
Drottinn, hefur þú útskúfað okkur? Hefur þú gert her okkar óvígan?
13
108:12 í flestum biblíum.
Ó, veittu okkur lið gegn óvinum okkar, því að mannahjálp er gagnslaus.
14
108:13 í flestum biblíum.
Með hjálp Guðs munum við vinna hetjudáð og hann mun gjörsigra óvini okkar.
Copyright information for IslLO