‏ Psalms 11

1Hvernig getið þið sagt: „Flýðu til fjallanna og leitaðu skjóls!?“Vitið þið ekki að ég treysti því að Drottinn muni hjálpa mér.

2Óguðlegir leggja ör á streng, spenna boga sína og miða úr launsátri á lýð Guðs. 3Menn segja: „Lögin hafa verið afnumin! Hinir réttlátu verða að forða sér.“

4En, Drottinn er enn í sínu heilaga musteri. Hann ríkir enn frá himnum. Hann fylgist grannt með öllu sem gerist á jörðu. 5Hann prófar bæði trúaða og vantrúaða. Hann fyrirlítur þá sem elska ofbeldi. 6Hann mun senda eld og brennistein yfir illgjörðamennina og svíða þá með glóheitum vindi.

7Því að Guð er réttlátur og hefur mætur á góðum verkum. Hinir hjartahreinu munu sjá auglit hans.
Copyright information for IslLO