Psalms 116
1Ég elska Drottin, því að hann heyrir bænir mínar – og svarar þeim. 2Meðan ég dreg andann mun ég biðja til hans, því að hann lítur niður og hlustar á mig. 3Ég horfðist í augu við dauðann – var hræddur og hnípinn. 4Þá hvíslaði ég: „Drottinn, frelsaðu mig!“ 5Náðugur er Drottinn og góður er hann! 6Drottinn hlífir vondaufum og styrkir hjálparvana. 7Nú get ég slakað á og verið rór, því að Drottinn hefur gert mikla hluti fyrir mig. 8Hann hefur bjargað mér frá dauða, augum mínum frá gráti og fótum mínum frá hrösun. 9Ég fæ að lifa! Já, lifa með honum hér á jörðu! 10– 11Þegar ég átti erfitt hugsaði ég: Þeir segja ósatt, að allt muni snúast mér í hag. 12En nú, hvernig get ég nú endurgoldið Drottni góðverk hans við mig? 13Ég vil lyfta bikarnum og vínberjalegi að fórn, þakka honum lífið. 14Fórnina sem ég lofaði Drottni, færi ég nú í allra augsýn. 15Hann elskar vini sína og lætur þá ekki deyja án gildrar ástæðu. 16Drottinn, þú hefur leyst fjötra mína, því vil ég þjóna þér af öllu hjarta. 17Ég vil lofa þig og færa þér þakkarfórn. 18– 19Í forgörðum musteris Drottins í Jerúsalem vil ég – og það í augsýn allra – færa honum allt sem ég hafði lofað. Dýrð sé Drottni!
Copyright information for
IslLO