Psalms 119
1Sælir eru þeir sem breyta í öllu eftir lögum Guðs. 2Sælir eru þeir sem leita Guðs og gera vilja hans í hvívetna, 3þeir sem hafna málamiðlun við hið illa og ganga heilshugar á Guðs vegum. 4Þú, Drottinn, gafst okkur lög þín til þess að við hlýddum þeim 5– ó, hve ég þrái að breyta grandvarlega eftir þeim. 6Þá verð ég ekki til skammar, heldur hef hreinan skjöld. 7Ég vil þakka þér leiðsögn þína og réttláta ögun, það hefur kennt mér að lifa lífinu rétt! 8Ég vil vera þér hlýðinn! Og þá veit ég að þú munt alls ekki yfirgefa mig. 9Hvernig getur ungt fólk lifað hreinu lífi? Með því að hlusta á orð þín og fara eftir þeim. 10Ég leitaði þín af öllu hjarta – láttu mig ekki villast burt frá boðum þínum. 11Ég hef íhugað orð þín af kostgæfni og varðveitt þau í hjarta mínu svo að þau verndi mig frá því að syndga. 12Lof sé þér Drottinn, kenndu mér lög þín. 13Ég fer með lög þín upphátt 14– þau veita mér meiri gleði en mikil auðæfi. 15Ég vil íhuga þau og hafa þau í heiðri. 16Ég gleðst yfir þeim og gleymi þeim ekki. 17Leyfðu mér að lifa langa ævi, og læra að hlýða þér meir og meir. 18Opnaðu augu mín svo að ég sjái dásemdirnar í orði þínu. 19Ég er pílagrímur hér á jörðu – mikið vantar mig leiðsögn! Boðorð þín eru mér bæði leiðsögn og kort! 20Ég þrái fyrirmæli þín meira en orð fá lýst! 21Ávítaðu þá sem hafna boðum þínum. Þeir hafa kallað bölvun yfir sig. 22Láttu það ekki viðgangast að þeir spotti mig fyrir að hlýða þér. 23Jafnvel þjóðhöfðingjar hallmæla mér, en samt vil ég halda lög þín. 24Lögmál þitt er mér bæði ljós og leiðsögn. 25Ég er bugaður maður, alveg kominn á kné. Lífgaðu mig með orði þínu! 26Ég sagði þér áform mín og þú svaraðir mér. Skýrðu nú fyrir mér leiðsögn þína, 27svo að ég skilji hvað þú vilt og upplifi dásemdir þínar. 28Ég græt af hryggð, hjarta mitt er bugað af sorg. Uppörvaðu mig og lífga með orðum þínum. 29– 30Leiddu mig burt frá öllu illu. Hjálpaðu mér, óverðugum, að hlýða lögum þínum, því að ég hef valið að gera rétt. 31Ég held mér við boðorð þín og hlýði þeim vandlega. Drottinn, forðaðu mér frá öllu rugli. 32Ég vil kappkosta að fara eftir lögum þínum, því að þú hefur gert mig glaðan í sinni. 33– 34Segðu mér, Drottinn, hvað mér ber að gera og þá mun ég gera það. Ég vil hlýða þér af heilum hug svo lengi sem ég lifi. 35Ó, leiddu mig um réttan veg, – því hvað er betra en það?! 36Gefðu að ég hlýði reglum þínum, en leiti ekki eftir rangfengnum gróða. 37Snúðu huga mínum frá öllu öðru en því að fylgja þér. Lífgaðu mig, hresstu mig, svo að ég geti horft til þín. 38Minntu mig á það aftur og aftur að fyrirheit þín gilda fyrir mig! Já, ég treysti þér, heiðra þig og óttast! 39Þaggaðu niður háðið og spottið sem beint er að mér, því að lög þín eru góð og þeim fylgi ég. 40Ég þrái að hlýða þeim. Þess vegna, Drottinn, lífgaðu mig við! 41Þú lofaðir að frelsa mig! Miskunna mér nú í kærleika þínum, 42og þá mun ég geta svarað þeim sem spotta mig, því að orðum þínum treysti ég. 43Gef að ég gleymi aldrei orðum þínum og treysti alltaf þínum réttláta úrskurði. 44– 45– 46 ▼▼Texti vers(s) 46 hefur verið sameinaður þessu versi.
▼▼Texti vers(s) 46 hefur verið sameinaður þessu versi.
Þess vegna vil ég hlýða þér um aldur og ævi og njóta þess frelsis sem lög þín veita. Ég mun fræða konunga um gildi þeirra og þeir munu hlusta af áhuga og virðingu. 47Ég elska lög þín! Ég gleðst yfir boðum þínum! 48„Komið, komið til mín!“segi ég við þau; því að ég elska þau og þrái að íhuga þau. 49– 50Drottinn, gleymdu ekki fyrirheitum þeim sem þú gafst mér, þjóni þínum, – þau eru það sem ég treysti á. Þau eru styrkur minn þegar á móti blæs – þau hressa mig og lífga! 51Ofstopamenn spotta mig fyrir hlýðni mína við Guð, en ég læt ekki haggast. 52Allt frá því ég var barn hef ég leitast við að hlýða þér, orð þín hafa verið mér huggun. 53Ég reiðist hinum óguðlegu, þeim sem hafna og fyrirlíta lög þín. 54Því að þessi lög hafa verið uppspretta gleði minnar alla ævi. 55Um nætur hugsa ég til þín Drottinn og minnist laga þinna. 56Það hefur veitt mér mikla blessun að halda fyrirmæli þín. 57Drottinn, þú ert minn og ég hef ákveðið að hlýða orðum þínum. 58Ég þrái blessun þína af öllu hjarta. Miskunna mér eins og þú lofaðir mér. 59– 60Þegar ég sá að ég var á rangri leið, snéri ég við og flýtti mér aftur til þín. 61Óguðlegir menn hafa reynt að tæla mig til syndar, en ég er staðráðinn í að hlýða lögum þínum. 62Um miðnætti rís ég upp og þakka þér þín réttlátu ákvæði. 63Sá er bróðir minn sem óttast og treystir Drottni og hlýðir orðum hans. 64Ó, Drottinn, jörðin er full af miskunn þinni! Kenndu mér lög þín! 65Drottinn, blessun þín umlykur mig, eins og þú hafðir lofað mér. 66Kenndu mér góð hyggindi og þekkingu, því að lög þín vísa mér veginn. 67Áður var ég reikull, þar til þú refsaðir mér, en nú hlýði ég þér með glöðu geði. 68Þú ert góður og gerir aðeins gott, hjálpaðu mér að fylgja leiðsögn þinni. 69Ofstopamenn hafa spunnið upp lygar um mig, en málið er, að ég hlýði lögum þínum af öllu hjarta. 70Þeir eru tilfinningalausir, skilja ekkert, en ég elska þig og fylgi orðum þínum. 71– 72Hirting þín var það besta sem fyrir mig gat komið, því að hún beindi augum mínum að lögum þínum. Lög þín eru mér meira virði en hrúgur af gulli og silfri! 73Þú, Drottinn, ert skapari minn, gefðu mér vit til að halda lög þín. 74Allir þeir sem óttast og elska þig, taka mér vel, þeir sjá að einnig ég treysti orðum þínum. 75– 76– 77 ▼▼Texti vers(s) 77 hefur verið sameinaður þessu versi.
▼▼Texti vers(s) 77 hefur verið sameinaður þessu versi.
Ég veit, Drottinn, að ákvarðanir þínar eru réttar og að úrskurðir þínir gerðu mér gott. Huggaðu mig með miskunn þinni, eins og þú lofaðir mér. Umvef mig náð þinni svo að ég haldi lífi. Lög þín eru unun mín. 78Lát hina stoltu verða til skammar, þá sem beita mig brögðum. En ég vil íhuga fyrirmæli þín. 79Láttu þá sem treysta þér, þá sem heiðra þig, koma til mín og við munum ræða lög þín. 80Gefðu mér náð til að þóknast vilja þínum svo að ég verði aldrei til skammar. 81Ég þrái hjálp þína af öllu hjarta! Þú lofaðir að hjálpa mér! 82Ég einblíni á þig, bíð eftir því að sjá loforð þitt rætast. Hvenær ætlar þú að hugga mig með hjálp þinni? 83Ég er eins og hrukkóttur vínbelgur, skorpinn af reyk, uppgefinn af að bíða. Samt held ég fast við lög þín og hlýði þeim. 84Hve lengi verð ég að bíða þess að þú refsir ofsækjendum mínum? 85– 86Ofstopamenn sem hata sannleika þinn og lög hafa grafið mér gryfju. Lygi þeirra hefur komið mér í mikinn vanda. Þú elskar sannleikann, hjálpaðu mér! 87Þeir höfðu næstum gert út af við mig, en ég neitaði að láta undan og óhlýðnast lögum þínum. 88Láttu mig halda lífi sakir miskunnar þinnar og ég mun halda áfram að fara eftir boðum þínum. 89Drottinn, á himnum stendur orð þitt óhaggað um eilífð. 90– 91Trúfesti þín nær frá kynslóð til kynslóðar, hún stendur óhögguð eins og jörðin sem þú hefur skapað. Hún varir samkvæmt orðum þínum. Allir hlutir lúta þér. 92Ég hefði örvænt og farist ef lögmál þitt hefði ekki verið unun mín. 93Ég mun aldrei yfirgefa lög þín, í þeim fann ég lífsgleði og góða heilsu. 94Ég tilheyri þér! Ég bið þig, varðveittu mig! Ég vil breyta eftir orðum þínum. 95Óguðlegir bíða færis til að drepa, en ég íhuga loforð þín og reglur. 96Ekkert er fullkomið í þessum heimi nema eitt – orð þín. 97Ég elska þau! Ég íhuga þau liðlangan daginn. 98Þau hafa gert mig vitrari en óvini mína, veitt mér leiðsögn gegnum lífið. 99Ég er orðinn hyggnari en allir kennarar mínir, því að ég íhuga reglur þínar, 100skynsamari en öldungar, því að ég held fyrirmæli þín. 101Ég hef hafnað vegum illskunnar, því að ég vil vera hlýðinn orðum þínum. 102– 103Ekki hef ég snúið baki við fyrirmælum þínum; orð þín eru sætari en hunang! 104Orð þín ein veita mér skilning og vísdóm, er þá nokkur hissa þótt ég hati lygina? 105Þitt orð er lampi fóta minna, ljós á vegum mínum. Það forðar mér frá hrösun. 106Ég hef sagt það áður og segi enn: „Ég vil hlýða lögum þínum, þau eru yndisleg!“ 107Óvinum mínum hefur næstum tekist að koma mér á kné, frelsaðu mig eins og þú lofaðir mér! 108Hlustaðu á þakkargjörð mína og kenndu mér vilja þinn. 109Líf mitt hangir á bláþræði, samt vil ég ekki óhlýðnast boðum þínum. 110Illmenni hafa lagt gildrur fyrir mig, en ég mun ekki víkja af þínum vegi. 111Lög þín eru það besta sem ég á! – Þau eru fjársjóður minn og endast mér að eilífu! 112Ég er ákveðinn í að hlýða þér allt þar til ég dey. 113Þeir finnst mér andstyggilegir sem haltra til beggja hliða – þeir sem ófúsir eru að hlýða þér. Mitt val er klárt: Ég elska boðorð þín. 114Þú ert skjól mitt og skjöldur og ég treysti orðum þínum. 115Burt frá mér, þið illgjörðamenn! Reynið ekki að fá mig til að óhlýðnast boðorðum Guðs. 116Drottinn, þú lofaðir að halda í mér lífinu. Láttu engan geta sagt að þú hafir brugðist mér. 117Hjálpaðu mér svo að ég megi frelsast og halda áfram að íhuga orðin þín. 118Þú snýrð þér frá þeim sem afneita lögum þínum. Þeir verða sjálfum sér til skammar. 119Illgjörðamennirnir eru eins og sorp í þínum augum. Ég vil ekki vera einn af þeim, og þess vegna elska ég þig og hlýði lögum þínum. 120Ég skelf af hræðslu við þig; óttast að þú dæmir mig sekan. 121Ofursel mig ekki duttlungum óvina minna, því að ég hef iðkað réttlæti og verið heiðarlegur í öllu. 122Lofaðu mér einu: Að blessa mig! Láttu ekki hina hrokafullu kúga mig. 123Ó, Drottinn, hvenær ætlar þú að efna loforð þitt og frelsa mig? 124Drottinn, gerðu við mig eftir gæsku þinni og kenndu mér, þjóni þínum, hlýðni. 125Ég er þjónn þinn, gefðu mér því vit til að fara eftir reglum þínum í öllu sem ég geri. 126Drottinn, láttu nú til skarar skríða! Þessi illmenni hafa brotið lög þín. 127Ég elska boðorð þín meira en skíra gull! 128Öll eru þau réttlát, boðorð Guðs, sama um hvað þau fjalla. Aðrar reglur vil ég ekki sjá. 129Lögmál þitt er yndislegt! Er einhver hissa á að ég vilji hlýða því? 130Þú útskýrir fyrir okkur orð þín og jafnvel einfeldningurinn skilur þau. 131Orð þín vekja áhuga minn, ég hlusta á þau með opnum munni! 132Komdu og miskunnaðu mér, eins og öðrum þeim sem elska þig. 133Leiðbeindu mér með lögum þínum, svo að hið illa nái ekki tökum á mér. 134Bjargaðu mér úr klóm vondra manna svo að ég geti farið eftir fyrirmælum þínum. 135Líttu til mín í náð þinni og kenndu mér lög þín. 136Ég græt því að lög þín eru fótum troðin. 137Drottinn, þú ert réttvís og refsing þín sanngjörn. 138Skipanir þínar góðar og réttlátar. 139Ég er í uppnámi og reiðin sýður í mér, því að óvinir mínir hafa forsmáð lög þín. 140Ég hef séð að orð þín eru sönn og hrein, og þess vegna elska ég þau! 141Ég er lítilmótlegur og fyrirlitinn en boðorðum þínum hef ég ekki gleymt. 142Réttlæti þitt varir að eilífu, og lög þín eru byggð á trúfesti. 143Boðorð þín eru huggun mín í andstreymi og neyð. 144Lög þín eru réttlát í öllum greinum. Hjálpaðu mér að skilja þau svo að ég haldi lífi. 145Ég ákalla þig af öllu hjarta! Bænheyrðu mig, Drottinn! Þá mun ég hlýða lögum þínum. 146„Bjargaðu mér!“hrópa ég, „svo að ég geti hlýtt þér.“ 147Fyrir sólarupprás var ég á fótum, ég bað til þín og beið svars. 148Já, ég vaki um nætur og íhuga fyrirheit þín. 149Hlustaðu á bæn mína og miskunna mér, bjargaðu lífi mínu eins og þú hefur heitið mér. 150Nú koma illmennin, nú gera þau árás! Orð þitt þekkja þeir ekki, nei alls ekki. 151En þú Drottinn ert mér nærri, í trúfesti eru orð þín sögð. 152Ég heyrði orð þín í bernsku og veit að þau breytast ekki. 153Líttu á sorg mína og bjargaðu mér, því að boðum þínum hef ég hlýtt. 154Já, frelsaðu mig frá dauða samkvæmt orði þínu. 155Óguðlegir munu ekki frelsast því að þeim er sama um boðorð þín. 156Drottinn, mikil er miskunn þín, bjargaðu lífi mínu! 157Margir eru óvinir mínir og fjendur, en frá reglum þínum hvika ég ekki. 158Þarna eru svikararnir – mér býður við þeim! Þeim er alveg sama um orð þitt. 159Drottinn, það skaltu vita, að ég elska boðorð þín. Miskunnaðu mér og leyfðu mér að halda lífi og heilsu. 160Trúfestin er rauði þráðurinn í orðum þínum og reglur þínar vara að eilífu. 161Höfðingjar ofsækja mig án saka, hvað geri ég? – skoða lög þín með lotningu! 162Ég fagna yfir lögum þínum eins fundnum fjársjóði. 163Ég hata lygi og fals, en elska lög þín. 164Sjö sinnum á dag lofa ég þig vegna þinna réttlátu ákvæða. 165Þeir sem elska lögmál þitt eiga frið í hjarta og er ekki hætt við hrösun. 166Drottinn, ég þrái hjálp þína og þess vegna hlýði ég boðum þínum. 167– 168Ég hef leitað og gætt boðorða þinna og elska þau af öllu hjarta. Þetta veistu, því að allt sem ég geri þekkir þú til fulls. 169Drottinn, heyr þú hróp mitt og gefðu mér skilning á orði þínu. 170Hlusta á bænir mínar og frelsaðu mig eins og þú lofaðir mér. 171Ég vegsama þig því að þú kenndir mér boðorð þín. 172Efni þeirra er lofgjörð mín, öll eru þau réttlát. 173Veittu mér lið þegar ég þarfnast hjálpar, því að ég hef kosið að hlýða þér. 174Ó, Drottinn, ég þrái hjálpræði þitt og lög þín elska ég! 175Láttu sál mína lifa svo að ég geti lofað þig og orð þín styðja mig á göngu lífsins. 176Ég villist eins og týndur sauður, leitaðu mín, því að boðorðum þínum hef ég ekki gleymt.
Copyright information for
IslLO