‏ Psalms 124

1Hefði það ekki verið Drottinn sem með okkur var þetta skulu allir í Ísrael játa – hefði það ekki verið Drottinn, 2 3þá hefðu óvinirnir gleypt okkur lifandi, útrýmt okkur í heiftarreiði sinni. 4 5Við hefðum skolast burt á augabragði, horfið í strauminn.

6Lofaður sé Drottinn, hann bjargaði okkur úr klóm þeirra. 7Við sluppum eins og fugl úr snöru veiðimanns. Snaran gaf sig og við flugum burt!

8Hjálp okkar kemur frá Drottni sem skapaði himin og jörð.
Copyright information for IslLO