Psalms 128
1Sæll er hver sá sem heiðrar Drottin, treystir honum og hlýðir. 2Honum mun launað með velgengni og hamingju. 3Kona hans hugsar vel um heimilið – og ekki mun þau skorta börn! Þarna sitja þau að matnum, þróttmikil og frísk eins og ung olífutré! 4Þannig launar Guð þeim sem elska hann og treysta honum. 5Drottinn blessi þig frá musterinu á Síon. Alla þína ævidaga muntu gleðjast yfir velgengni Jerúsalem 6og eignast marga afkomendur. Friður Guðs sé yfir Ísrael!
Copyright information for
IslLO