Psalms 137
1Við sátum á bökkum Babylonsfljóts og minntumst Jerúsalem – og grétum. 2Gígjurnar höfum við lagt til hliðar, hengt þær á greinar pílviðarins. 3– 4Hvernig eigum við að geta sungið? Samt heimta kúgarar okkar söng, vilja að við syngjum gleðiljóð frá Síon! 5– 6Ef ég gleymi þér Jerúsalem, þá visni mín hægri hönd! Ef ég elska annað umfram Jerúsalem, þá sé mér mátulegt að missa málið og tapa röddinni. 7Ó, Drottinn, gleymdu ekki orðum Edómíta, daginn þegar Babyloníumenn hernámu Jerúsalem. „Rífið allt til grunna!“æptu þeir. 8Þú Babýlon, ófreskja eyðingarinnar, þú munt sjálf verða lögð í rúst. Lengi lifi þeir sem eyða þig – þig sem eyddir okkur. 9Og heill þeim sem tekur ungbörn þín og slær þeim við stein!
Copyright information for
IslLO