‏ Psalms 139

1Drottinn, þú rannsakar mig út og inn og veist allt um mig. 2Hvort ég sit eða stend, það veist þú. Og þú lest hugsanir mínar úr fjarlægð! 3Þú veist hvert ég stefni og þekkir langanir mínar. Og hvort sem ég geng eða ligg, þá athugar þú það. Þú veist öllum stundum hvar ég er. 4Þú þekkir orðin á tungu minni áður en ég opna munninn! 5Þú bæði fylgir mér og ferð á undan mér, leggur hönd þína á höfuð mitt og blessar mig.

6Þetta er stórkostlegt! Já, næstum of gott til að vera satt! 7Hvert get ég farið frá anda þínum eða flúið frá augliti þínu? 8Fari ég til himna, þá ertu þar, til dánarheima, þá ertu líka þar! 9Ef ég svifi á skýjum morgunroðans og settist við fjarlæga strönd, 10einnig þar mundi hönd þín leiða mig og ég finna styrk þinn og vernd. 11Og þótt ég reyndi að læðast frá þér inn í myrkrið, þá myndi nóttin lýsa eins og dagur! 12Því að myrkrið hylur ekkert fyrir Guði, dagur og nótt eru jöfn fyrir þér.

13Öll líffæri mín hefur þú skapað, ofið þau í kviði móður minnar. 14Þökk, að þú skapaðir mig eins undursamlega og raun ber vitni! Þetta er dásamlegt um að hugsa! Handaverk þín eru stórkostleg – það er mér alveg ljóst. 15Þú varst til staðar þegar ég var myndaður í leyni. 16Þú þekktir mig þegar ég var fóstur í móðurkviði og áður en ég sá dagsins ljós hafðir þú ákvarðað alla mína ævidaga – sérhver dagur var skráður í bók þína!

17 18Hugsanir þínar, ó Guð, eru mér torskildar, en samt eru þær stórkostlegar! Ef ég reyndi að telja þær, þá yrði það mér ofviða því að þær eru fleiri en sandkorn á sjávarströnd! Já, ég mundi vakna eins og af draumi, en hugur minn, hann væri enn hjá þér!

19Vissulega munt þú, Guð, útrýma níðingunum. Já, burt með ykkur, þið morðingjar! 20Þeir guðlasta og hreykja sér upp gegn þér – hvílík heimska! 21Drottinn, ætti ég ekki að hata þá sem þig hata? Og ætti ég ekki að hafa viðbjóð á þeim? 22Jú, ég hata þá, því að þínir óvinir eru mínir óvinir.

23Prófaðu mig Guð. Rannsakaðu hjarta mitt og hugsanir mínar. 24Sýndu mér það í fari mínu sem hryggir þig og leiddu mig svo áfram veginn til eilífs lífs.
Copyright information for IslLO